1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á heiti námsins í núverandi reglum. Orðið „lýðheilsuvísindum“ kemur í stað „lýðheilsufræðum“ og „lýðheilsufræði“: - Í heiti reglnanna.
- Í 1. ml. 1. mgr. 1. gr. um gildissvið.
- Í 1. ml. 1. mgr. 2. gr. um markmið.
- Í 1. ml. 1. mgr. 4. gr. um stjórn námsins og ráðgjafahóp.
- Í heiti II. kafla.
- Í 1. ml. 8. gr. um einingafjölda og tímalengd náms.
- Í 1. ml. 7. gr. um inntökuskilyrði.
- Í 1. ml. 2. mgr. 9. gr. um námsleiðir, framvindu og samsetningu náms.
- Í 2. ml. 10. gr. um námskeið í grunnnámi sem hluti af framhaldsnámi.
- Í 3. ml. 1. mgr. 16. gr. um skil og frágang meistararitgerða.
- Í heiti III. kafla.
- Í fyrirsögn 19. gr., og 1. ml. 1. mgr. og 2. ml. 2. mgr. sömu greinar.
- Í 2. ml. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða.
Orðið „lýðheilsuvísindi“ kemur í stað „lýðheilsufræði“: - Í 1. ml. 1. mgr. 6. gr. um meðferð umsókna.
- Í 1. ml. 1. mgr. 7. gr. um inntökuskilyrði.
Orðið „lýðheilsuvísinda“ kemur í stað „lýðheilsufræða“: - Í 2. ml. 1. mgr. 9. gr. um námsleiðir, framvindu og samsetningu náms.
Háskóla Íslands, 26. mars 2007. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |