Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 18/2012

Nr. 18/2012 14. mars 2012
LÖG
um breytingu á tollalögum, lögum um vörugjald og lögum um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
1. gr.
    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 122. gr. laganna skal fyrirkomulag gjalddaga aðflutningsgjalda, hjá aðilum sem njóta greiðslufrests á aðflutningsgjöldum, vegna uppgjörstímabila á árinu 2012 vera sem hér segir:
    1.    Helmingi af aðflutningsgjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 122. gr., skal skila eigi síðar en á 15. degi næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
    2.    Helmingi af aðflutningsgjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 122. gr., skal skila eigi síðar en á 5. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.
2. gr.
    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. laganna skal fyrirkomulag gjalddaga vörugjalds, hjá aðilum sem skráðir eru skv. 2. mgr. 4. gr., vegna uppgjörstímabila á árinu 2012 vera sem hér segir:
    1.    Helmingi af vörugjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 9. gr., skal skila eigi síðar en á 28. degi annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
    2.    Helmingi af vörugjöldum á viðkomandi uppgjörstímabili, sbr. 1. mgr. 9. gr., skal skila eigi síðar en á 28. degi þriðja mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.

III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
3. gr.
    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði VII. kafla og 7. mgr. 20. gr. er á gjalddaga virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabila á árinu 2012, sbr. 1. mgr. 24. gr., heimilt að færa til innskatts á virðisaukaskattsskýrslu allan virðisaukaskatt vegna viðkomandi uppgjörstímabils, þótt einungis hluta af gjaldföllnum virðisaukaskatti hafi á þeim tíma verið skilað, sbr. ákvæði til bráðabirgða IX í tollalögum, nr. 88/2005.

4. gr.
    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 14. mars 2012.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Oddný G. Harðardóttir.

A deild - Útgáfud.: 14. mars 2012