1. gr. Bönnuð er netaveiði göngusilungs í sjó á árinu 2011 frá og með 1. júlí til og með 1. ágúst með strandlengju Skjálfandaflóa frá friðunarsvæði Laxár í Þingeyjarsýslu í suðri að Tjörnestá í norðri. 2. gr. Brot gegn reglum þessum varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði með síðari breytingum. 3. gr. Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 5. - 7. mgr. 15. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 368/2009 um sama efni. Fiskistofu, 7. júní 2011. Árni Ísaksson, forstöðumaður lax- og silungsveiðisviðs. Hrefna Gísladóttir, forstöðu- maður fiskveiðistjórnunarsviðs. |