Bústofn til eignar. Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar í árslok með verði, er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun og árslok á landbúnaðarskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint. Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi til eignar í árslok 2007 sem færa skal á landbúnaðarskýrslu 4.08 með skattframtali 2008. | | kr. | Mjólkurkýr | 95.000 | Holdakýr og naut | 83.000 | Kvígur, 1 1/2 árs og eldri | 61.000 | Geldneyti | 44.000 | Kálfar, yngri en 1/2 árs | 12.000 | Ær og sauðir | 6.400 | Hrútar | 10.700 | Gemlingar | 5.600 | Hross á 14. vetri og eldri | 16.000 | Hross á 5. – 13. vetri | 32.000 | Fulltamin reiðhross (á 5. – 13. vetri) | 120.000 | Önnur nýtanleg reiðhross | 60.000 | Verðlaunahross (á 5. – 13. vetri) | 160.000 | Kynbótahestar á 5. – 13. vetri | 240.000 | Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri | 340.000 | Tryppi á 2. – 4. vetri | 10.000 | Folöld | 7.000 | Hænsni, eldri en 6 mánaða | 840 | Varphænsni 6 mánaða og yngri | 520 | Kjúklingar | 170 | Endur | 690 | Gæsir | 1.300 | Kalkúnar | 1.800 | Gyltur | 35.000 | Geltir | 50.000 | Grísir | 7.500 | Kanínur | 1.500 | Minkar: | Karldýr | 5.200 | | Kvendýr | 3.500 | | Hvolpar | 0 | Refir: | Karldýr og kvendýr | 6.000 | | Hvolpar | 0 | Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri | 3.200 |
Reykjavík, 21. janúar 2008. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. |