1. gr. Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 171/2007, frá 7. desember 2007, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 610/2007 frá 1. júní 2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) nr. 10. 2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 610/2007 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 11/2009, 19. febrúar 2009 bls. 173. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 171/2007 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 26/2008, 8. maí 2008, bls. 32. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi. Fjármálaráðuneytinu, 23. febrúar 2009. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Þórður Reynisson. |