Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 164/2010

Nr. 164/2010 12. febrúar 2010
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015, dreifbýli.

Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 12. febrúar 2010 staðfest breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015 frá 8. desember 2003.
Breytingin tekur til alls lands sveitarfélagsins utan þéttbýlismarka aðalskipulags Grundarfjarðar 2003-2015 og felst í því að mörkuð er stefna varðandi landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar í dreifbýli sveitarfélagsins, þ.e. á öllu svæðinu utan marka gildandi þéttbýlisuppdráttar. Sveitarfélagsuppdráttur frá 8. desember 2003 fellur jafnframt úr gildi en aðalskipulag heldur gildi sínu að öðru leyti.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar.
Breytingin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 12. febrúar 2010.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Logi Kjartansson.

B deild - Útgáfud.: 26. febrúar 2010