1. gr. Í stað „félagsmálaráðuneytisins“ í 5. mgr. 15. gr. samþykktarinnar komi: samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. 2. gr. 6. töluliður, B. liðar 50. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Skólanefnd grunnskóla: Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara í skólanefnd Hallormsstaðarskóla skv. 13. gr. laga um grunnskóla og samþykkta þar að lútandi. 3. gr. Í stað „félagsmálaráðuneytinu“ í 62. gr. samþykktarinnar komi: samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. 4. gr. Í stað „félagsmálaráðuneytinu“ í 4. mgr. 62. gr. samþykktarinnar komi: samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Fljótsdalshrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 19. mars 2010. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |