1. gr. 2. gr. orðast svo: Lögreglustjóra í öðrum umdæmum en í umdæmum lögreglustjóranna á Akureyri, Akranesi, Borgarnesi, Eskifirði, Vestfjörðum á Ísafirði, Selfossi, Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu er heimilt að ráða allt að 8 héraðslögreglumenn til starfa í umdæmi sínu, að fengnu samþykki ríkislögreglustjóra. Lögreglustjórunum á Akureyri, Akranesi, Borgarnesi, Eskifirði, Vestfjörðum á Ísafirði og Selfossi er heimilt að ráða allt að 16 héraðslögreglumenn, lögreglustjóranum á Suðurnesjum er heimilt að ráða allt að 40 héraðslögreglumenn og lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu er heimilt að ráða allt að 80 héraðslögreglumenn að fengnu samþykki ríkislögreglustjóra. 2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 3. mgr. 10. gr. lögreglulaga, nr. 90 13. júní 1996 með áorðnum breytingum, öðlast þegar gildi. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 12. nóvember 2008. Björn Bjarnason. Þórunn J. Hafstein. |