Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 866/2012

Nr. 866/2012 23. október 2012
REGLUGERÐ
um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

1. gr.

Lögbært yfirvald.

Umhverfisstofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds sbr. 43. gr. reglugerðar (EB) nr. 1272/2008, um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sbr. 1. mgr. 6. gr.

2. gr.

Upplýsingar til eitrunarmiðstöðvar.

Eitrunarmiðstöð Landspítala skal taka við upplýsingum frá innflytjendum og eftir­notendum um efnablöndur í samræmi við 45. gr. reglugerðar (EB) nr. 1272/2008, sbr. 1. mgr. 6. gr.

3. gr.

Merkingar á umbúðum.

Merkingar á umbúðum efna og efnablandna skulu vera á íslensku.

Þó mega merkingar innfluttra vara bera upprunalegar merkingar á ensku, dönsku, norsku eða sænsku ef:

a)

rúmmál innfluttrar vörutegundar er undir 125 ml og fellur undir lið 1.5.2.1. í I. viðauka í reglugerð (EB) nr. 1272/2008, sbr. 1. mgr. 6. gr. eða

b)

vara er eingöngu ætluð til notkunar á rannsóknastofum, við raungreinakennslu í skólum eða öðrum hliðstæðum tilgangi þar sem ætla má að notendur vöru skilji erlendar merkingar.

4. gr.

Eftirlit.

Um eftirlit með reglugerð þessari fer samkvæmt 9. og 10. gr. laga nr. 45/2008 um efni og efnablöndur.

5. gr.

Viðurlög.

Um brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt 12. gr. laga nr. 45/2008 um efni og efnablöndur.

6. gr.

Innleiðing EES-gerða.

Eftirfarandi gerðir gilda hér á landi:

a)

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 frá 16. desember 2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sem breytir og kemur í stað tilskipana 67/548/EBE og 1999/45/EB, og breytir reglugerð (EB) nr. 1907/2006, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sam­eiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2012, 15. júní 2012, með þeim breyt­ingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, II. viðauka samn­ings­ins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 20. sept­ember 2012, 2012/EES/52/01, bls. 1-1355.

b)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 790/2009 frá 10. ágúst 2009 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga reglugerðina að tæknilegum og vísindalegum framförum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2012, 15. júní 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 38 frá 5. júlí 2012, 2012/EES/38/09, bls. 102-540.

c)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 286/2011 frá 10. mars 2011 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að tækni­framförum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samn­ings­ins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2012, 15. júní 2012. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59 frá 18. október 2012, 2012/EES/59/38, bls. 527-579.

7. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 6. mgr. 5. gr. a og 3. mgr. 6. gr. a laga nr. 45/2008 um efni og efnablöndur.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 23. október 2012.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

B deild - Útgáfud.: 25. október 2012