Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 999/2009

Nr. 999/2009 18. desember 2009
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um útlendinga, nr. 53 23. janúar 2003, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3, I:

  1. Á eftir ríkjaheitinu Makaó kemur: Makedónía (fyrrum sambandslýðveldi Júgó­slavíu), að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum.
  2. Á eftir ríkjaheitinu San Maríno kemur: Serbía að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum en á ekki við um handhafa serbneskra vegabréfa sem gefin eru út af Serbnesku samræmingarstofnuninni (á serbnesku: Koodinaciona uprava).
  3. Á eftir ríkjaheitinu Suður-Kórea kemur: Svartfjallaland að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 6. gr. og 58. gr. laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002 öðlast gildi þegar í stað.

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 18. desember 2009.

Ragna Árnadóttir.

Kristrún Kristinsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 18. desember 2009