1. gr. Fjárhæðir greiðslna samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar skulu vera sem hér segir fyrir árið 2014: Hámarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 1. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna skal nema 593.928 kr. á mánuði. Lágmarksfjárhæð tekjutengdra greiðslna skv. 2. málsl. 3. mgr. 10. gr. laganna skal nema 154.109 kr. á mánuði. Fjárhæð greiðslna til líffæragjafa í námi skv. 1. mgr. 15. gr. laganna skal nema 154.109 kr. á mánuði.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr., sbr. 8. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 15. gr. laga nr. 40/2009, um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, öðlast gildi 1. janúar 2015. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1215/2013, um fjárhæðir greiðslna fyrir árið 2014 samkvæmt lögum um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar. Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2014. Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |