Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 417/2010

Nr. 417/2010 29. apríl 2010
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um gjöld og þóknanir sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á.

1. gr.

2. gr. orðist svo:

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB), með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 593/2007 frá 31. maí 2007 um gjöld og þóknanir sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2007 frá 7. desember 2007. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, 14. maí 2009, bls. 577.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1356/2008 frá 23. desember 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 593/2007 um þóknanir og gjöld sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2009 frá 4. desember 2009. Reglugerðin er jafnframt birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 21, 29. apríl 2010, bls. 118.

2. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 29. apríl 2010.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 14. maí 2010