Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1296/2014

Nr. 1296/2014 31. desember 2014
GJALDSKRÁ
Vatnsveitu Dalvíkur.

Gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Dalvíkur er byggð á lögum nr. 32/2004, um vatnsveitur sveitar­félaga, ásamt síðari breytingum og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005.

1. gr.

Vatnsgjald.

Af öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar, sem liggja við vegi eða opin svæði þar sem vatnsæðar liggja, ber að greiða vatnsgjald árlega til Vatnsveitu Dalvíkur og skal það vera eftirfarandi:

 

a)

Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 8.148,40 kr. pr. íbúð og 193,52 kr. pr. fermetra húss.

 

b)

Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 16.296,80 kr. pr. eign og 193,52 kr. pr. fermetra húss.

 

c)

Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum.

 

d)

Álagning skv. a., b. og c. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,4% eða lægra en 0,2% af fasteignamati allra húsa og lóða.

2. gr.

Gjalddagar.

Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist vatns­gjaldið með fasteignasköttum.

3. gr.

Aukavatnsgjald.

Auk vatnsgjalds, skulu fyrirtæki og aðrir, er nota vatn til annars en heimilisþarfa, greiða aukavatnsgjald sem hér segir:

Aukavatnsgjald

kr./m³

fyrstu 100.000 m³

26,93

100.000 - 250.000 m³

24,45

eftir 250.000 m³

22,30

Aukavatnsgjald skal innheimta samkvæmt mæli sem Vatnsveita Dalvíkur leggur til.

4. gr.

Mælaleiga.

Greiðendur aukavatnsgjalds skulu á tveggja mánaða fresti greiða mælagjald vegna leigu á vatnsmælum sem hér segir:

Stærð mælis

Mælagjald kr. á dag

að 32 mm

12,41

40 mm

12,41

50 mm

14,45

80 mm

34,75

100 mm

62,75

5. gr.

Heimæðagjald.

Þvermál inntaks

Inntaksgjald kr.

Yfirlengd kr./m

25

 mm

192.982

8.755

32

 mm

278.751

8.755

40

 mm

353.799

8.755

50

 mm

471.732

8.755

63

 mm

664.713

8.755

75

 mm

943.464

8.755

90

 mm

1.393.753  

8.755

Yfirlengd reiknast af heimtaug sem er lengri en 50 metrar í lóð viðkomandi mannvirkis. Heimæðar 110 mm og víðari greiðast samkvæmt reikningi. Heimæðargjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2014, 120,8 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu.

6. gr.

Ábyrgð á greiðslu gjalda.

Eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðargjalds, en notandi, ef hann er annar en eigandi, ber ábyrgð á greiðslu aukavatnsgjalda og leigugjalda. Vatnsgjald og heimæðargjald nýtur aðfararheimildar skv. 9. gr. laga nr. 32/2004. Vatnsgjald og heim­æðar­gjald, ásamt vöxtum og áföllnum kostnaði, nýtur lögveðsréttar í fasteign eiganda næstu 2 ár eftir gjalddaga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfarar­veði. Aukavatnsgjald og leigugjald, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum, má taka fjárnámi.

7. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar þann 25. nóvember 2014, er sett með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga. Jafnframt fellur gjaldskrá um vatns­veitu í Dalvíkurbyggð nr. 1149/2013 úr gildi.

Dalvíkurbyggð, 31. desember 2014.

Bjarni Th. Bjarnason sveitarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 21. janúar 2015