Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 185/2015

Nr. 185/2015 10. febrúar 2015
REGLUGERÐ
um (8.) breytingu á reglugerð nr. 105/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 854/2004 um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 210/2014, frá 1. nóvember 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 218/2014 frá 7. mars 2014 um breytingu á viðaukum við reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004 og (EB) nr. 854/2004 og við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2074/2005. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73, frá 4. desember 2014, bls. 264.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 219/2014 frá 7. mars 2014 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 854/2004 að því er varðar sértækar kröfur varðandi skoðun á alisvínum eftir slátrun. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73, frá 4. desember 2014, bls. 268.

    2. gr.

    Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

    3. gr.

    Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

    4. gr.

    Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

    5. gr.

    Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. febrúar 2015.

    F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

    Ólafur Friðriksson.

    Eggert Ólafsson.

    B deild - Útgáfud.: 24. febrúar 2015