Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 383/2015

Nr. 383/2015 24. apríl 2015
REGLUGERÐ
um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1062/2013 um framsetningu evrópska tæknimatsins fyrir byggingarvörur.

1. gr.

Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Eftirtalin reglugerð sem vísað er til í XXI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efna­hags­svæðið, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1062/2013 frá 30. október 2013 um framsetningu evrópska tæknimatsins fyrir byggingarvörur, sem vísað er til í II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 24/2015, frá 25. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16/2015, 19. mars 2015, bls. 889.

2. gr.

Innleiðing tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1062/2013 frá 30. október 2013 um framsetningu evrópska tæknimatsins fyrir byggingarvörur.

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 114/2014 um byggingarvörur.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 24. apríl 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. apríl 2015