Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 543/2011

Nr. 543/2011 4. maí 2011
REGLUGERÐ
um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum aðilum í Túnis.

1. gr.

Almenn ákvæði.

Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um þvingunaraðgerðir gagnvart tilteknum aðilum í Túnis sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða eiga við um framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 101/2011 frá 4. febrúar 2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis skal öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr. reglugerðar ráðsins er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa, þ.m.t. I.-II. viðauki (Annex I-II).

3. gr.

Aðlögun.

Líta ber svo á að tilvísanir í reglugerð ráðsins skv. 2. gr. til ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtækja, stjórnvalda, opinberra stofnana, tungumála, yfirráðasvæðis eða aðildarríkja þess („EB“, „bandalagsins“ eða „sameiginlega markaðarins“) eigi við um íslenska ríkis­borgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfir­ráða­svæði eða Ísland, eftir því sem við á.

Ákvæði reglugerðar ráðsins skv. 2. gr. um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja þess eða stofnana skulu ekki gilda. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða fram­kvæmd reglugerðarinnar.

Tilvísanir í gerðir Evrópusambandsins, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahags­svæðið (EES-samningsins), skulu eiga við um þau lagaákvæði sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á.

Tilvísanir í I.-II. viðauka við reglugerð ráðsins skv. 2. gr. eiga við um „Annex I-II“:

I. viðauki - Listi yfir einstaklinga og lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir skv. 1. mgr. 2. gr.

II. viðauki - Listi yfir lögbær stjórnvöld í aðildarríkjunum skv. 1. mgr. 4. gr., 1. mgr. 5. gr., 7. gr. og a-lið 1. mgr. 9. gr. og heimilisfang fyrir tilkynningar til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi skv. II. viðauka er:

http://www.utn.is/thvingunaradgerdir/.

4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila í I. viðauka við reglugerð ráðsins skv. 2. gr. skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir, sem kveðið er á um í reglugerðinni, beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglu­gerð þessa, en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 4. maí 2011.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 1. júní 2011