FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
2. tölul. 1. gr. orðast svo: Þjóðmenningu, þar á meðal:
|
a. |
Varðveislu menningararfsins, þ.m.t. jarðfastra minja og gripa. |
|
b. |
Vernd þjóðarverðmæta og flutning menningarminja úr landi. |
|
c. |
Skil menningarverðmæta til annarra landa. |
|
d. |
Vernd húsa og mannvirkja. |
|
e. |
Vernd sögulegrar og menningartengdrar byggðar og umhverfis- og skipulagsmál því tengd. |
|
f. |
Minjastofnun Íslands. |
|
g. |
Þjóðminjasafn Íslands. |
2. gr.
Upphafsmálsliður 7. tölul. 2. gr. orðast svo: Hagstjórn og fjármálastöðugleiki, þar á meðal.
3. gr.
Á eftir i-lið 6. tölul. 3. gr. kemur nýr stafliður sem orðast svo: Rannsóknir á lífríki í ám og vötnum og ráðgjöf um nýtingu þeirra, þ.m.t. málefni Veiðimálastofnunar.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.: 1. Við 5. tölul. bætist nýr stafliður sem orðast svo: Menningarminjasöfn. 2. 8. tölul. orðast svo: Íslensk fræði, þar á meðal:
|
a. |
Íslenska tungu. |
|
b. |
Íslenskt táknmál. |
|
c. |
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. |
|
d. |
Örnefni og bæjanöfn. |
|
e. |
Örnefnanefnd. |
5. gr.
C-liður 4. tölul. 6. gr. fellur brott.
6. gr.
Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 31. desember 2013.
Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.)
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
|