Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 40/2015

Nr. 40/2015 8. janúar 2015

GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Blönduósbæ.

1. gr.

Árlegt sorphirðugjald, vegna sorphirðu, sorpeyðingar og afnota af gámasvæði í Blönduósbæ er sem hér segir:

 

1.1.

Fyrir hverja íbúð og lögbýli eða íbúðarhús utan þéttbýlis:

  

Sorphirðugjald

kr. 20.300

  

Sorpförgunargjald

kr. 20.300

  

Samtals:

kr. 40.600

  

Gjald skv. þessum lið miðast við að sorp sé hirt úr einu 240 lítra sorpíláti á hvern greiðanda. Óski greiðendur eftir fleiri sorpílátum skal greiða kr. 20.300 fyrir hvert viðbótar 240 lítra sorpílát.

 

1.2.

Fyrir sumarhús, kr. 20.300 sorpförgunargjald, enda geti notendur þeirra losað sig við sorp á gámasvæði sveitarfélagsins samkvæmt gildandi reglum þar um.

 

1.3.

Fyrir hesthús og gripahús í þéttbýli, kr. 20.300 á hús, enda geta eigendur notað gámasvæði sveitarfélagsins samkvæmt gildandi reglum þar um.

2. gr.

Gjald fyrir sorphirðu og -eyðingu skv. 1. gr. skal innheimta með fasteignagjöldum.

3. gr.

Að lokinni álagningu gjalda skv. 1. gr. gefst greiðendum 30 daga frestur til að gera athuga­semdir við gjaldtöku sveitarstjórnar. Ósk um breytingu gjalda skal vera skrifleg og vel rök­studd og er bæjarstjórn heimilt að breyta gjaldtöku með tilliti til réttmætis framsettra athuga­semda.

4. gr.

Gjaldskrá endurvinnslustöðvar er sem hér segir:

Þeir sem koma með úrgang á gámastæðið að Efstubraut 5a, Blönduósi greiða fyrir losun á úrgangi í eftirtöldum flokkum eftir rúmmáli:

Stærð farms:

0,25 (1/4) m³

0,50 (1/2) m³

0,75(3/4) m³

1 m³

Gjald

1.000 kr.

2.000 kr.

3.000 kr.

4.000 kr.


Gjaldskylt frá heimilum

Gjaldskylt frá rekstraraðilum

Vörubretti, kassar o.þ.h.

Timbur – þar með talið ljós-/hvítmálað eða plasthúðað frá framkvæmdum

Húsgögn o.þ.h.

Nei

Grófur úrgangur frá framkvæmdum

Bólstruð húsgögn, dýnur o.þ.h.

Nei

Blandaður úrgangur frá framkvæmdum

Blandaður heimilisúrgangur o.þ.h.

Nei

Steinefni frá framkvæmdum

Bílrúður

Jarðvegur

Gras og hey

Nei

Trjágreinar

Garðaúrgangur

Nei

Brotajárn

Flokkaður úrgangur sem fer til endurvinnslu er án gjalds fyrir alla.
Flokkaður úrgangur skal vera án aðskotahluta eða mengandi efna í samræmi við reglur um flokkun og móttöku úrgangs.
Úrgangsflokkur þarf að vera staðfestur af starfsmanni á gámastöð.
Afgreiðslugjald á gjaldskyldum flokkum er að lágmarki 1.000 kr. m. vsk.
Þegar um stærri farm er að ræða (5-10 m³) þarf að semja sérstaklega um móttöku þeirra.

5. gr.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Blönduósbæjar að fenginni umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, á grundvelli samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Blönduósbæ og 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum og skal þegar öðlast gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 44/2014 vegna sorphirðu fyrir Blönduósbæ.

Blönduósi, 8. janúar 2015.

Arnar Þór Sævarsson sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 22. janúar 2015