1. gr. Við 3. mgr 20. gr. bætist nýr málsliður sem orðast svo: Þó er blindu og fötluðu fólki heimilt að hafa með sér leiðsögu- eða hjálparhunda í lyfjabúðir. 2. gr. 44. gr. ásamt fyrirsögn orðast svo: Veikindi starfsfólks. Lyfsöluleyfishafi skal tryggja að í gæðakerfi lyfjabúðar séu til staðar ferlar sem fyrirbyggi að enginn starfi í lyfjabúð sem sé ekki hæfur til starfans vegna veikinda. 3. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 18. september 2013. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Margrét Björnsdóttir. |