Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 276/2012

Nr. 276/2012 7. mars 2012
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015, hesthúsasvæðið Fákafell.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 7. mars 2012 breytingu á aðalskipulagi Grundarfjarðar 2003-2015, sem samþykkt var í bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar þann 9. febrúar 2012. Niðurstaða sveitarstjórnar var birt í Jökli 16. febrúar 2012.
Breytingin er fólgin í stækkun hesthúsasvæðis vestast í Grundarfirði úr 3 ha í 9 ha. Við breytinguna verða um 6 ha óbyggðs svæðis að opnu svæði til sérstakra nota. Aðkoma að svæðinu færist austar og óverulegar breytingar verða á legu reiðleiða.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 7. mars 2012.

Stefán Thors.

Erna Hrönn Geirsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 21. mars 2012