1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar: a. Við b-lið bætast orðin: fyrir tímabilið 1. janúar – 31. maí og 159.116 kr. á mánuði fyrir tímabilið 1. júní – 31. desember. b. Við c-lið bætast orðin: fyrir tímabilið 1. janúar – 31. maí og 159.116 kr. á mánuði fyrir tímabilið 1. júní – 31. desember. Við d-lið bætast orðin: fyrir tímabilið 1. janúar – 31. maí og 23.411 kr. á mánuði fyrir tímabilið 1. júní – 31. desember.d. Við e-lið bætast orðin: fyrir tímabilið 1. janúar – 31. maí og 6.777 kr. á mánuði vegna tveggja barna og 17.620 kr. á mánuði vegna þriggja barna fyrir tímabilið 1. júní – 31. desember. 2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. mgr. 11. gr., 3. mgr. 16. gr., 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 21. gr., 2. mgr. 22. gr. og 31. gr. laga nr. 22/2006 um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 6. júní 2011. Guðbjartur Hannesson. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |