1. gr. Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2005, frá 29. apríl 2005 um að fella inn í EES-samninginn og taka upp í innlendan rétt ákvæði reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB að því er varðar upplýsingar í lýsingum, svo og framsetningu þeirra, upplýsingar felldar inn með tilvísun, og birtingu lýsinganna, svo og dreifingu auglýsinga. 2. gr. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB að því er varðar upplýsingar í lýsingum, svo og framsetningu þeirra, upplýsingar felldar inn með tilvísun, og birtingu lýsinganna, svo og dreifingu auglýsinga, merkt fylgiskjal I, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn, nr. 64/2005, frá 29. apríl 2005, merkt fylgiskjal II. Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 73. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Viðskiptaráðuneytinu, 23. mars 2006. Valgerður Sverrisdóttir. Kristján Skarphéðinsson. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |