Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 600/2008

Nr. 600/2008 6. júní 2008
REGLUGERÐ
um skipun loftrýmis í flokk og aðgang flugs samkvæmt sjónflugsreglum yfir fluglagi 195.

1. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að mæla fyrir um kröfur um samhæfða skipun loftrýmis í flokk, sem gildir fyrir fluglag yfir 195, og þar er mælt fyrir um samræmdar kröfur um aðgang flugs samkvæmt sjónflugsreglum að þessu loftrými.

2. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um loftrými Alþjóðaflugmálastofnunarinnar innan Evrópusvæðis (ICAO EUR) og Afríku- og Indlandshafssvæðis (ICAO AFI) þar sem aðildarríki innan Evrópska efnahagssvæðisins eru ábyrg fyrir því að veita flugumferðarþjónustu.

3. gr.

Orðskýringar.

Vísað er til frekari orða og orðskýringa en hér greinir í reglugerð um flugleiðsögu í samevrópska loftrýminu nr. 870/2007.

Þegar eftirfarandi orð og orðasambönd eru notuð í reglugerð þessari hafa þau þá merkingu sem hér segir:

Loftrýmisreglugerðin (Airspace Regulation): Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 551/2004 frá 10. mars 2004 um skipulag og notkun loftrýmis á samevrópska flugumferðarsvæðinu. Sjá fylgiskjal IV með reglugerð um flugleiðsögu í samevrópska loftrýminu nr. 870/2007.
Rammareglugerðin (Framework Regulation): Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 549/2004 frá 10. mars 2004 um setningu rammaákvæða um að koma á samevrópsku flugumferðarsvæði, sjá fylgiskjal II með reglugerð um flugleiðsögu í samevrópska loftrýminu nr. 870/2007.
Rekstrarsamhæfisreglugerðin (Interoperability Regulation): Reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 552/2004 frá 10. mars 2004 um rekstrarsamhæfi evrópska netsins fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar. Sjá fylgiskjal V með reglugerð um flugleiðsögu í samevrópska loftrýminu nr. 870/2007.
Þjónustureglugerðin (Service Regulation): Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 550/2004 frá 10. mars 2004 um að veita þjónustu á sviði flugleiðsögu á samevrópska flugumferðarsvæðinu. Sjá fylgiskjal III með reglugerð um flugleiðsögu í samevrópska loftrýminu nr. 870/2007.

4. gr.

Innleiðing gerða.

Með reglugerð þessari öðlast gildi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 730/2006 frá 11. maí 2006 um skipun loftrýmis í flokk og aðgang samkvæmt sjónflugsreglum yfir fluglagi 195 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 133/2006 frá 27. október 2006. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

5. gr.

Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi sem er sett með heimild í 75. og 76. sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgönguráðuneytinu, 6. júní 2008.

Kristján L. Möller.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 25. júní 2008