1. gr. Önnur mgr. 7. gr. breytist og verður svohjóðandi: Á vormisseri 2010 verða teknir inn 5 nemendur í BS nám í tannsmíði að loknu samkeppnisprófi í desember 2009. Núverandi 2. mgr. verður 3. mgr. 2. gr. Gildistaka o.fl. Reglur þessar sem háskólaráð hefur sett, að fengnum tillögum tannlæknadeildar og á grundvelli heimildar í 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og 114. gr. reglna nr. 458/2000, gilda fyrir háskólaárið 2009-2010. Háskóla Íslands, 16. júní 2009. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |