1. gr. Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms á vormisseri 1. námsárs í hjúkrunarfræði í janúar 2011 við heilbrigðisvísindasvið miðast við grunntöluna 50 nemendur. 2. gr. Ákvörðun þessi, tekin af háskólaráði, skv. lögum nr. 85/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 454/2009 um fjöldatakmörkun í hjúkrunarfræði við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri. Háskólanum á Akureyri, 14. apríl 2010. Stefán B. Sigurðsson rektor. |