I. KAFLI Bæjarstjórn sveitarfélagsins. 1. gr. Kjör til bæjarstjórnar og starfstímabil. Bæjarstjórn skal skipuð níu kjörnum fulltrúum samkvæmt lögum um sveitarstjórnarkosningar nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir sveitarstjórnarkosningar og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum. 2. gr. Valdsvið bæjarstjórnar. Bæjarstjórn fer með stjórn Fjallabyggðar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. 1. Bæjarstjórn fer með æðsta ákvörðunarvald framkvæmda þeirra verkefna sem sveitarfélagið annast og nýtingu tekjustofna þess. 2. Bæjarstjórn fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins. 3. Bæjarstjórn fer með æðsta vald starfsmannaráðninga sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins. 4. Bæjarstjórn getur með viðauka við samþykkt þessa veitt nefndum, ráðum og framkvæmdastjórum sviða sveitarfélagsins umboð til yfirstjórnunar og starfsmannaráðninga sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins ef lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því. 5. Bæjarstjórn getur fjallað um hvert það mál sem hún hefur falið öðrum að vinna að í umboði sínu og afturkallað umboð sitt í einstökum málum. 6. Bæjarstjórn getur ályktað um hvert það málefni sem hún telur að varði sveitarfélagið. 7. Bæjarstjórn er fjölskipað stjórnvald. Bæjarfulltrúar hlutast aðeins til um framkvæmd stefnu með samþykktum í bæjarstjórn, bæjarráði og á nefndarfundum en hafa sem einstaklingar ekki ákvörðunarvald í málum, boðvald yfir starfsmönnum eða heimild til að skuldbinda sveitarfélagið. 3. gr. Verkefni bæjarstjórnar. Meðal verkefna bæjarstjórnar er: 1. Bæjarstjórn skal stjórna fjármálum sveitarfélagsins, fyrirtækja og stofnana þess samkvæmt VI. kafla sveitarstjórnarlaga. 2. Bæjarstjórn skal setja og birta reglugerðir, samþykktir, ákveða útsvar og gjaldskrár um starfsemi og eftirlit sveitarfélagsins eftir því sem við á og/eða eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur. 3. Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins og vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa. 4. Bæjarstjórn skal í störfum sínum leitast við að ná því grundvallarmarkmiði að tryggja að ákvarðanir hennar og vinna skuli fyrst og fremst vera í þágu allra íbúa svæðisins og leggur þær skyldur á herðar kjörnum fulltrúum að setja ávallt almannahagsmuni ofar sérhagsmunum hvort heldur er sínum eigin eða einstakra hópa. 5. Bæjarstjórn skal sjá um að lögbundin verkefni sveitarfélagsins séu rækt og að fylgt sé þeim reglum um meðferð sveitarstjórnarmála sem ákveðnar eru í lögum, reglugerðum og samþykktum sveitarfélagsins. 4. gr. Innra eftirlit sveitarfélagsins. Bæjarstjórn skal ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun ársreikninga sveitarfélagsins. Bæjarstjórn skal kjósa skoðunarmenn reikninga til fjögurra ára í senn. Verkefni skoðunarmanna reikninga er að yfirfara reikninga sveitarfélagsins og gera viðeigandi athugasemdir. II. KAFLI Fundir bæjarstjórnar. 5. gr. Boðun funda bæjarstjórnar. Sá kjörni fulltrúi sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn skal boða til fyrsta fundar og kveðja bæjarstjórnina saman eigi síðar en 15 dögum eftir að bæjarstjórn tekur við stjórn sveitarfélagsins. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar setið jafnlengi í bæjarstjórn sveitarfélagsins, fer aldursforseti þeirra með ofangreint verkefni. Bæjarstjóri skal boða til bæjarstjórnarfunda eftir fyrsta fund bæjarstjórnar. Bæjarstjóri skal boða til funda á þann hátt sem bæjarstjórn hefur ákveðið. Í fundarboði bæjarstjóra skal koma fram fundarstaður og fundartími, enda hafi bæjarstjórn ekki ákveðið fundarstað. Fundarboð skal sent aðal- og varabæjarfulltrúum með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara. Bæjarstjóri skal boða til aukafundar bæjarstjórnar með minnst eins sólarhrings fyrirvara frá upphafi fundarins. 6. gr. Fyrirkomulag funda bæjarstjórnar. Bæjarstjórn skal taka ákvörðun í upphafi kjörtímabilsins um hvar og hvenær reglulegir fundir skulu haldnir. Reglulegir fundir bæjarstjórnar skulu haldnir minnst einu sinni í mánuði. Heimilt er bæjarstjórn að halda bæjarstjórnarfundi með síma- eða fjarfundabúnaði ef veður og færð hamla eðlilegum samgöngum. Slíka fundi má þó aðeins halda ef brýna nauðsyn ber til og ekki er hægt að fresta afgreiðslu þeirra mála sem á dagskrá fundarins eru að mati forseta bæjarstjórnar. Tryggja skal almenningi aðgang að þessum fundum sem og um venjulegan bæjarstjórnarfund væri að ræða. Bæjarstjórn skal halda aukafundi eftir því sem þörf krefur að mati bæjarstjóra eða forseta bæjarstjórnar. Ef þriðjungur aðalmanna í bæjarstjórn krefst þess skriflega af bæjarstjóra eða forseta bæjarstjórnar skal hann haldinn. Fundir bæjarstjórnar skulu haldnir fyrir opnum dyrum. Bæjarstjórn getur í einstökum málum ákveðið að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum, enda er það nauðsynlegt vegna eðlis málsins. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn. Bæjarstjórn er heimilt að fella niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi. 7. gr. Auglýsing funda bæjarstjórnar. Reglulegir fundir bæjarstjórnar skulu auglýstir í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar með þeim hætti að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni. Í auglýsingunni skal koma fram hvar og hvenær reglulegir fundir bæjarstjórnar verða haldnir. 8. gr. Lögmætir fundir bæjarstjórnar. Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er á fundi. Bæjarstjórn getur enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lögmætur. 9. gr. Kosning forseta og varaforseta bæjarstjórnar. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar kjósa oddvita og fyrsta og annan varaoddvita sveitarstjórnar til eins árs. Oddviti bæjarstjórnar kallast forseti bæjarstjórnar og fyrsti og annar varaoddviti, fyrsti og annar varaforseti bæjarstjórnar. Sá er rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar eða fyrsti varaforseti bæjarstjórnar og annar varaforseti bæjarstjórnar sem hefur fengið meirihluta atkvæða bæjarstjórnar. Tilkynna skal kjör forseta og fyrsta og annars varaforseta til samgönguráðuneytis þegar að því loknu. Verði meirihluta atkvæðafjölda bæjarstjórnar ekki náð, skal kjósa um þá er fengu flest atkvæði í fyrstu umferð kosninganna. Nú deyr forseti bæjarstjórnar, missir kjörgengi sitt í sveitarfélaginu, verður varanlega forfallaður frá sveitarstjórnarstörfum eða nýtur ekki trausts bæjarstjórnar sem forseti bæjarstjórnar áður en kjörtími hans er á enda, skal þá kjósa á ný forseta bæjarstjórnar samkvæmt 2. mgr. í hans stað, sem eftir er kjörtímabilsins. 10. gr. Forseti bæjarstjórnar. Forseti bæjarstjórnar setur, stýrir og slítur fundum eftir að dagskrá fundarins er tæmd. Hann skal stjórna málefnaumfjöllun þannig að þau mál sem til umræðu eru hverju sinni skulu fullrædd og afgreidd eftir atvikum áður en næsta mál er tekið til umfjöllunar. Forseti bæjarstjórnar kannar lögmæti funda bæjarstjórnar og sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp. Forseti bæjarstjórnar sér um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnar og að allar samþykktir og ályktanir séu nákvæmlega bókaðar. Forseti bæjarstjórnar úrskurðar um fundarsköp, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýði bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta ef nauðsyn krefur. Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur einnig borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn skal afgreiða tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir. Ákvæði greinar þessarar gilda ekki um umræður um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Raski áheyrandi fundarfriði bæjarstjórnar getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta bæjarstjórnar þarf til að hljóðrita umræður og/eða taka myndir á bæjarstjórnarfundum. 11. gr. Varaforseti bæjarstjórnar. Fyrsti varaforseti bæjarstjórnar sinnir skyldu forseta samkvæmt 10. gr. í fjarveru hans. Sé fyrsti varaforseti ekki viðstaddur skal annar varaforseti gegna skyldum forseta í hans stað. 12. gr. Skrifari bæjarstjórnar Á fyrsta fundi bæjarstjórnar skal kjósa tvo skrifara bæjarstjórnar úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn. Skrifarar skulu telja atkvæði þegar atkvæði eru greidd í bæjarstjórn. 13. gr. Dagskrá funda bæjarstjórnar. Bæjarstjóri skal semja dagskrá bæjarstjórnarfunda í samráði við forseta bæjarstjórnar. Öll nauðsynleg gögn vegna fundarins skulu fylgja fundarboði s.s. dagskrá fundarins, tillögur og afrit fundargerða nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, sbr. 2. mgr. 5. gr. samþykktar þessarar. Á dagskrá bæjarstjórnar skal taka: 1. Lögákveðnar kosningar bæjarstjórnar s.s. kosningar forseta og varaforseta bæjarstjórnar og ráðningu bæjarstjóra og kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar. 2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda og stjórna á vegum sveitarfélagsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. 3. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá. Óski bæjarfulltrúi eftir að taka mál á dagskrá skal hann tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. fjórum sólarhringum fyrir fund. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slík afbrigði. Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg bæjarbúum á skrifstofum sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma og á vefsvæði þess eða með öðrum hætti sem bæjarstjórn ákveður. 14. gr. Mál sem þurfa tvær umræður í bæjarstjórn. Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni: 1. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja. 2. Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja. 3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra. 4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir. 5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar sveitarfélaga skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. 15. gr. Fundarsköp bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúi skal ávarpa forseta í upphafi máls síns og beina máli sínu til hans og/eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð bæjarráðs, nefndar, ráðs eða stjórnar skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða lið eða liði fundargerða hann óski að ræða. Bæjarfulltrúa er heimilt að taka tvisvar til máls við hverja umræðu. Bæjarfulltrúa er þó heimilt að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað. Bæjarfulltrúa er óheimilt að lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta. Bæjarstjórn getur kallað til starfsmenn sveitarfélagsins eða aðra sem málum eru kunnugir til að upplýsa um vafaatriði í málum sem eru á dagskrá bæjarstjórnarfundar ef fyrir liggur samþykki meirihluta bæjarfulltrúa. Bæjarstjórn skal þó jafnan kappkosta að upplýsingar um mál liggi fyrir þegar mál eru tekin til umræðu og afgreiðslu. 16. gr. Atkvæðagreiðsla í bæjarstjórn. Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella, vísa því frá bæjarstjórn eða til afgreiðslu bæjarráðs, nefndar, stjórnar eða starfsmanna sveitarfélagsins. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó ekki vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma. Við atkvæðagreiðslu ræður einfaldur meirihluti úrslitum máls nema öðruvísi sé ákveðið í lögum eða samþykkt þessari. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef einhver bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu. Bæjarfulltrúa er heimilt að gera stutta grein fyrir atkvæði sínu. Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð. Ef jafnmörg atkvæði eru með máli og á móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti. 17. gr. Kosningar í bæjarstjórn. Kosningar sem fram fara í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d´Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitastjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri skal hún fara fram eins og við forsetakjör. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. 18. gr. Fundargerðir bæjarstjórnar. Skrifstofustjóri bæjarskrifstofu annast ritun fundargerða bæjarstjórnar. Ef skrifstofustjóri er forfallaður eða ef hann sinnir skyldum bæjarstjóra í fjarveru hans, skal forseti bæjarstjórnar gera tillögu um fundarritara úr röðum starfsmanna sveitarfélagsins. Tillaga forseta skal þá samþykkt með einföldum meirihluta við handauppréttingu til að öðlast gildi. Í inngangi fundargerðar skal koma fram hvar og hvenær fundurinn er haldinn, hverjir sátu fundinn, forföll bæjarfulltrúa og hver ritar fundargerð. Í fundargerð skal skrá þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila mála og meginefni. Þá skal skrá afgreiðslu mála fyrir bæjarstjórn. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði skiptust. Í fundargerð skal skráð hverjir taka til máls í umræðum, um hvaða málsliði dagskrár er fjallað og stutta athugasemd um afstöðu ræðumanns til viðkomandi máls óski hann þess. Fulltrúar skulu að jafnaði afhenda ritara slíkar bókanir skriflega. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða og dagsetningu fundargerða. Í fundargerð skal skrá ef einstakir fulltrúar víkja af fundi við afgreiðslu máls vegna vanhæfis. Þá skal einnig skrá í fundargerð komi fulltrúi til fundar eftir að hann er hafinn og undir hvaða lið, sama gildir ef fulltrúi þarf að víkja af fundi áður en honum lýkur. Í niðurlagi fundargerðar skal skrá hvenær fundi er slitið. Í lok fundar skulu allir bæjarfulltrúar sem viðstaddir voru fundinn kynna sér fundargerðina og undirrita hana til staðfestingar á efni hennar. Bæjarfulltrúi sem vill gera athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði. Óheimilt er að gera efnislegar breytingar á fundargerð eftir að hún hefur verið undirrituð. Þó er heimilt að leiðrétta stafsetningu og málfar í fundargerð til birtingar á opinberum vettvangi. Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn. 19. gr. Tölvuskráð fundargerð. Bæjarstjórn getur ákveðið að fundargerð verði skráð í tölvu. Sé það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók dagskrá fundar, upphafstíma fundar, fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerðar. Viðstaddir bæjarfulltrúar, bæjarstjóri og skrifstofustjóri skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skulu forseti og fundarritari setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerðar sem tölusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu. Ef fundargerðir eru tölvuritaðar skal bæjarfulltrúi afhenda skrifstofustjóra á fundarstað skriflegar bókanir sínar á tölvutæku formi ef kostur er. 20. gr. Hljóðritun og miðlun bæjarstjórnarfunda. Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum skuli hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Sé það ákveðið skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur. III. KAFLI Réttindi og skyldur bæjarfulltrúa. 21. gr. Aðalfulltrúar í bæjarstjórn. Bæjarfulltrúi er einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni. Honum ber að gegna störfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins og íbúa þess. Bæjarfulltrúi fer með vald í krafti fjölskipaðs stjórnvalds. Hann hefur ekki sjálfstætt boðvald í málefnum sveitarfélagsins eða yfir starfsmönnum og getur ekki skuldbundið sveitarfélagið nema með samþykktum í bæjarstjórn. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjastjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari. Bæjarfulltrúi sem vill taka til máls skal óska heimildar forseta. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar þess. Slíkar tillögur skulu bornar upp á undan viðkomandi máli, en forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti þær skuli teknar til afgreiðslu. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í bæjarstjórn. Hyggist bæjarfulltrúi gera grein fyrir afstöðu sinni í bókun skal hann jafnan afhenda fundarritara hana skriflega í upphafi máls síns. Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn vegna óhæfilegs álags og getur bæjarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans samkvæmt. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Missi fulltrúi í bæjarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir. Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar. 22. gr. Varafulltrúar í bæjarstjórn. Varafulltrúar í bæjarstjórn taka sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af, falla frá, flytjast burt eða forfallast varanlega á annan hátt eða um stundarsakir frá því að sitja í bæjarstjórn. Nú er framboðslisti borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum og geta þá aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast, sbr. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem taka sæti í bæjarstjórn, eftir því sem við á. 23. gr. Fundarskylda bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi stundvíslega nema lögmæt forföll hamli svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé bæjarfulltrúi forfallaður boðar hann varamann sinn og tilkynnir það til bæjarstjóra. 24. gr. Nefndar- og verkefnaskylda bæjarfulltrúa. Aðal- og varafulltrúa í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins. Aðal- og varafulltrúa í bæjarstjórn er skylt að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar, svo sem forsetastörf. Þó getur sá sem hefur verið forseti eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd eitt kjörtímabil eða lengur skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi. 25. gr. Hæfi bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af, skv. 19. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 með síðari breytingum. Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf. Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórn eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórnin fjallar um málið. Ákvæði 3. mgr. á ekki við um bæjarstjóra sveitarfélagsins eða þegar sveitarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins. Bæjarfulltrúa sem veit að hæfi sitt orkar tvímælis ber að vekja athygli á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur til að afgreiða, að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt. Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess. 26. gr. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Ef um er að ræða mál sem bæjarstjórn er skylt lögum samkvæmt að afgreiða s.s. fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka skuli atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa tekur þátt í henni. 27. gr. Aðgangur bæjarfulltrúa að gögnum. Aðalfulltrúar í bæjarstjórn eiga óhindraðan aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og einnig að stofnunum og fyrirtækjum þess á venjulegum afgreiðslutíma til að afla upplýsinga vegna starfa sinna. 28. gr. Þagnarskylda bæjarfulltrúa. Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu. Þagnarskylda helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum. 29. gr. Orlof og fleira. Bæjarfulltrúar eiga rétt á að störfum sveitarstjórnar sé þannig hagað að þeir geti tekið sér hæfilegt orlof árlega. IV. KAFLI Bæjarráð sveitarfélagsins. 30. gr. Kosning bæjarráðs. Byggðarráð sveitarfélagsins kallast bæjarráð og skal það skipað þremur aðalmönnum bæjarstjórnar kjörnum til eins árs af bæjarstjórn. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og þrjá til vara. Kosningar í bæjarráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Ef aðal- og varafulltrúi framboðslista eða kosningabandalags eru báðir löglega forfallaðir getur næsti aðalfulltrúi viðkomandi framboðslista samkvæmt kosningarröð, tekið sæti í bæjarráði. Ef enginn aðalfulltrúi framboðslistans getur setið fund bæjarráðs skal halda fundinn, svo fremi sem hann er ályktunarhæfur skv. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og 34. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. 31. gr. Valdsvið bæjarráðs. Bæjarráð ásamt bæjarstjóra fer með framkvæmda- og fjármálastjórn sveitarfélagsins í umboði bæjarstjórnar á milli bæjarstjórnarfunda, að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins. Bæjarstjórn getur falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli fyrir um annað. Bæjarráði er heimilt að fullnaðarafgreiða mál sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Bæjarstjórn skal í upphafi kjörtímabils setja viðmiðunarfjárhæð fyrir hvað telst vera verulegt. 32. gr. Verkefni bæjarráðs. Bæjarráð skal undirbúa árlegar fjárhagsáætlanir og leggja fram drög að fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar í samráði við bæjarstjóra. Bæjarráð skal í samráði við bæjarstjóra sjá til þess að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins séu lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu eins og sveitarstjórnarlög mæla fyrir um. Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. 33. gr. Fundarboð bæjarráðs. Bæjarstjóri skal boða til funda bæjarráðs með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá einum sólarhring fyrir fund hið minnsta. Geti bæjarráðsfulltrúi ekki sótt fund bæjarráðs skal hann boða varamann sinn og tilkynna það til bæjarstjóra. 34. gr. Fundir bæjarráðs. Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku. Aukafundi bæjarráðs skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess. Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi og tekur við erindum sem þar eiga að vera til umfjöllunar. Bæjarráð getur kallað aðila máls til að afla sér upplýsinga frá fyrstu hendi. Bæjarstjóri skal þó kappkosta að mál sé nægjanlega upplýst til afgreiðslu áður en mál koma fyrir bæjarráð og að öll sjónarmið í máli liggi fyrir. 35. gr. Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs. Bæjarráð skal á fyrsta fundi bæjarráðs kjósa sér formann og varaformann. 36. gr. Formaður bæjarráðs. Formaður bæjarráðs stjórnar fundum bæjarráðs og sér til þess að allt fari löglega og skipulega fram á fundum. Formaður bæjarráðs úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum. Heimilt er að skjóta úrskurði formanns bæjarráðs til atkvæðagreiðslu sé þess óskað af bæjarráðsfulltrúa. 37. gr. Varaformaður bæjarráðs. Varaformaður bæjarráðs skal sinna skyldu formanns í fjarveru hans. 38. gr. Fundargerðir bæjarráðs. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar sbr. 18. og 19. gr. Skrifstofustjóri bæjarins skal annast fundarritun bæjarráðs. 39. gr. Aðstoð við störf bæjarráðs. Starfsmönnum sveitarfélagsins er skylt að sitja fundi bæjarráðs sé þess óskað. Bæjarráði er heimilt að óska eftir sérfræðiáliti vegna verkefna sinna. V. KAFLI Fjármálastjórn sveitarfélagsins. 40. gr. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins skal vera meginregla um fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu. Ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöld séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórn. Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar, skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda s.s. með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. 41. gr. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar. Bæjarstjórn skal afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, bæjarfyrirtækja og stofnana fyrir næsta ár eigi síðar en fyrir lok desember ár hvert, að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn sbr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreikninga bæjarins og skal þar greint á milli rekstraráætlunar, fjárfestingaráætlunar og áætlunar um fjármagnshreyfingar. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármagns á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af veltufjárstöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsárs og áætla fyrir þeim breytingum, sem nauðsynlegt er talið að gera á veltufjárstöðunni. Áætlunina skal senda til samgönguráðuneytis strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar. Sama á við endurskoðaða áætlun eða breytta samkvæmt 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Nú tekst ekki að afgreiða fjárhagsáætlun samkvæmt 1. mgr. og skal bæjarstjórn þá sækja skriflega um frest til samgönguráðuneytisins og tilgreina ástæðu fyrir umsókninni. 42. gr. Endurskoðun fjárhagsáætlunar. Bæjarstjórn er heimilt að endurskoða fjárhagsáætlun. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu í bæjarstjórn, enda hafi breytingatillögurnar verið sendar bæjarfulltrúum með fundarboði og dagskrá fyrir bæjarstjórnarfund. 43. gr. Afgreiðsla ársreikninga. Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs og fyrirtækja hans eigi síðar en 1. júní ár hvert samkvæmt 67. og 72. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Bæjarstjórn skal senda Hagstofu Íslands og samgönguráðuneytinu eintak af ársreikningnum fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna. Viðurlög skv. 4. mgr. 72. gr. sveitarstjórnarlaga liggja við vanrækslu bæjarstjórnar á afgreiðslu og skilum ársreikninga. 44. gr. Þriggja ára áætlun. Árlega skal bæjarstjórn semja þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarins. Áætlunin skal vera rammi árlegrar fjárhagsáætlunar bæjarins og skal unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Áætlunina skal senda til samgönguráðuneytis strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar. 45. gr. Fjármálareglur. Bæjarstjórn skal setja reglur fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins um meðferð fjármuna, innkaup, lántökur o.þ.h. Í reglunum skulu skilgreindar heimildir starfsmanna til að skuldbinda sveitarfélagið og valda því útgjöldum. VI. KAFLI Nefndir og stjórnir á vegum sveitarfélagsins. 46. gr. Kosning í nefndir. Bæjarstjórn kýs nefndir og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá eða nefndir sem fara með málefni þeirra, sbr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Kjörtímabil nefnda er að jafnaði kjörtímabil bæjarstjórnar. Bæjarstjórn skal kjósa formenn nefnda, en á fyrsta fundi nefndar skal kjósa varaformann og ritara nema lög eða bæjarstjórn ákveði annað. Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. 47. gr. Valdsvið nefnda. Um hlutverk og valdsvið nefnda og stjórna fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum, erindisbréfum eða samþykktum bæjarstjórnar. Bæjarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka með nánari samþykkt í viðauka við samþykkt þessa, nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar. Bæjarstjórn getur afturkallað umboð það sem hún hefur falið nefnd í einstökum málum eða málaflokkum, óski hún eftir að fjalla um viðkomandi mál eða málaflokk sjálf, sbr. 5. tl. 1. mgr. 2. gr. samþykktar þessarar, eða fela það öðrum til umfjöllunar eða afgreiðslu. Ef ákvæðum erindisbréfa nefnda og samþykktum þeirra um valdsvið ber ekki saman við samþykkt þessa skal orðalag samþykktar þessarar gilda. Orðalag erindisbréfs eða samþykktar skal þá endurskoðað. 48. gr. Fjöldi nefndarmanna. Nefndir á vegum sveitarfélagsins skulu að jafnaði vera skipaðar fimm aðalmönnum og fimm varamönnum. Bæjarstjórn er heimilt að breyta frá þessari meginreglu í sérstökum tilvikum. Tala nefndarmanna skal vera oddatala. 49. gr. Fundaboðun nefnda. Bæjarstjóri skal kalla nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveða hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið kosinn af bæjarstjórn. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara með skriflegri dagskrá. Heimilt er að boða til fundar með rafrænum hætti enda hafi viðkomandi fulltrúar áður undirritað yfirlýsingu þess efnis. Bæjarstjóri getur kallað saman tvær eða fleiri nefndir til að ræða mál er varða starfssvið fleiri en einnar nefndar. 50. gr. Nefndarfundir. Nefndarfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum. Heimilt er að halda fundi með síma- eða fjarfundarbúnaði. Nefnd getur í samráði við bæjarstjóra kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Einnig getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál. Skal þá sá sem kallaður er fyrir nefndina koma inn á fundinn til að sinna því erindi sem honum er ætlað og yfirgefa fundinn að því loknu. Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Geti nefndarmaður ekki sótt fund boðar hann varamann sinn og tilkynnir það til viðkomandi starfsmanns sem vinnur með nefndinni. Nú forfallast aðalmaður í nefnd um stundarsakir, skal þá varamaður taka sæti í nefndinni. Nú flyst aðalmaður í nefnd burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega og tekur þá varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju. Taki varamaður sæti aðalmanns í nefnd skal bæjarstjórn kjósa nýjan varamann. 51. gr. Formenn nefnda. Formaður nefndar semur dagskrá nefndarfunda, boðar til funda og stýrir fundum. 52. gr. Varaformenn nefnda. Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa varaformann og skal hann sinna störfum formanns í forföllum hans. 53. gr. Ritarar nefnda. Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa ritara nefndar og skal hann rita fundargerð nefndarinnar. Ritari skal vera aðalmaður í nefndinni eða fastur starfsmaður hennar. 54. gr. Aðalmenn nefnda. Aðalmenn nefnda hafa málfrelsi, tillögurétt, rétt til að koma málum á dagskrá nefndar og atkvæðisrétt á fundum nefnda. 55. gr. Varamenn nefnda. Varamenn nefnda skulu taka sæti aðalmanna í forföllum. Þegar varamenn sinna störfum aðalmanna skulu þeir njóta sömu réttinda og aðalmenn. 56. gr. Fundargerðir nefnda. Nefndir og stjórnir skulu halda gerðabækur. Ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Staðfesting fundarmanna sem sitja fund í gegnum síma- eða fjarfundabúnað skal gerð strax að loknum fundi. Skal senda fundargerð í tölvupósti eða myndsíma til viðkomandi sem endursendir hana með staðfestu samþykki sínu. Fjarstaddir staðfesta síðan fundargerðina með undirritun sinni svo fljótt sem verða má. Um ritun fundargerða nefnda og stjórna gilda að öðru leyti sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 18. og 19. gr. og ákvæði í erindisbréfum nefnda sem samþykkt eru af bæjarstjórn. Fundargerðir nefnda og stjórna sveitarfélagsins skulu teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar afgreiðslu bæjarráðs eða bæjarstjórnar eru fundargerðir lagðar fram til kynningar. 57. gr. Nefndir á vegum sveitarfélagsins. Bæjarstjórn skal sjá til þess að neðangreindar nefndir séu starfræktar: 1. Almannavarnarnefnd 2. Atvinnu- og ferðamálanefnd 3. Félagsmálanefnd 4. Frístundanefnd 5. Fræðslunefnd 6. Hafnarstjórn 7. Húsnæðisnefnd 8. Menningarnefnd 9. Skipulags- og umhverfisnefnd 10. Kjörstjórn Nefndir sveitafélagsins samkvæmt 1. mgr. skulu skipaðar fimm aðalmönnum og fimm varamönnum, nema kjörstjórn sem skal skipuð þrem aðalmönnum og þrem varamönnum sbr. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Bæjarstjórn er heimilt að starfrækja fleiri nefndir en taldar eru upp samkvæmt 1. mgr., enda er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun sveitafélagsins. Bæjarstjórn skal kveða nánar á um hlutverk og valdsvið nefnda í viðauka við samþykkt þessa. 58. gr. Nefndir vegna tímabundinna eða afmarkaðra verkefna. Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils og fyrr sé verkefni þeirra lokið. Bæjarstjórn getur afturkallað umboð nefnda samkvæmt 1. mgr. hvenær sem er sbr. 3. mgr. 47. gr. 59. gr. Fulltrúar í samstarfsnefndum og stjórnum. Bæjarstjórn skal kjósa fulltrúa Fjallabyggðar í samstarfsnefndum, stjórnum byggðasamlaga, samtaka, fyrirtækja, félaga o.þ.h. sem sveitarfélagið er aðili að, samkvæmt stofnsamþykktum viðkomandi samstarfsvettvangs. Um valdheimildir og umboð fulltrúa Fjallabyggðar í samstarfsnefndum, stjórnum byggðasamlaga, fyrirtækja og félaga skal kveðið í skipunarbréfi viðkomandi fulltrúa. VII. KAFLI Starfsmenn sveitarfélagsins. 60. gr. Bæjarstjóri. Framkvæmdastjóri sveitarfélagsins kallast bæjarstjóri og er ráðinn af bæjarstjórn. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarstjórnar að veita öðrum starfsmanni bæjarins prókúru. Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og bæjarmálefna að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki ákveðið annað. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar. Hann hefur málfrelsi og tillögurétt á bæjarstjórnarfundum, en atkvæðisrétt hefur hann ekki nema hann sé kjörinn bæjarfulltrúi. Bæjarstjóri situr fundi í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð. Ef mál sem bæjarráð hefur heimild til að afgreiða eru samhljóða samþykkt í bæjarráði hefur bæjarstjóri heimild til að láta framkvæma þau. Ef mótatkvæði kemur fram í bæjarráði við afgreiðslu máls bíður frekari vinnsla þess afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarstjórn ákveður hver gegna skuli störfum bæjarstjóra í forföllum hans eða ef enginn starfandi bæjarstjóri er í sveitarfélaginu. 61. gr. Ráðning í fastar stöður á vegum sveitarfélagsins. Allar fastar stöður skal auglýsa lausar til umsóknar á opinberum vettvangi. Bæjarráð getur ákveðið hvaða almenn skilyrði gilda um ráðningu í störf hjá sveitarfélaginu. Bæjarstjórn ræður deildarstjóra sem heyra beint undir bæjarstjóra í skipuriti að fengnum tillögum frá bæjarstjóra og umsögn frá viðkomandi nefnd. Ennfremur ræður bæjarstjórn framkvæmdastjóra fyrirtækja með sjálfstæðan fjárhag en í eigu bæjarsjóðs að fengnum tillögum viðkomandi nefndar. Bæjarráð ræður forstöðumenn stofnana að fengnum umsögnum deildarstjóra og viðkomandi nefndar. Forstöðumenn stofnana ráða aðra fasta starfsmenn en þá sem greinir í 1. mgr. í samráði við deildarstjóra eða fagnefndir þar sem það á við, enda séu stöðuheimildir fyrir hendi og ekki á annan veg mælt í reglugerð eða reglum sem bæjarstjórn hefur sett. 62. gr. Ráðning í tímabundnar stöður á vegum sveitarfélagsins. Forstöðumenn stofnana og fyrirtækja bæjarins ráða starfsmenn í tímabundnar stöður eftir þeim reglum sem bæjarráð setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga. 63. gr. Uppsagnir starfsmanna. Um uppsagnir starfsmanna fer eftir ákvæðum kjarasamninga Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Sé starfsmaður ekki í stéttarfélagi skal farið eftir ákvæðum þeirra kjarasamninga sem laun hans eru miðuð við. Líta ber á uppsögn starfsmanns af hálfu sveitarfélagsins sem stjórnvaldsákvörðun og skal í öllu farið að sveitarstjórnarlögum og stjórnsýslulögum við meðferð slíkra mála. Bæjarráð skal setja nánari reglur um uppsagnir starfsmanna. Bæjarstjórn getur ein tekið ákvörðun um hópuppsagnir starfsmanna eða uppsagnir vegna skipulagsbreytinga. 64. gr. Réttindi starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, reglum um ábyrgðarmörk, starfsmannastefnu og jafnréttisáætlun. Fastráðnir starfsmenn bæjarins skulu ráðnir til óákveðins tíma með gagnkvæmum 3 mánaða uppsagnarfresti miðað við mánaðamót. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við alla starfsmenn, þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma og uppsagnarfrest sbr. 1. mgr. svo og starfssvið þeirra. Gerðir skulu viðaukar við samninga vegna kjaraliða umfram grunnlaun og lögbundnar greiðslur, svo sem yfirvinnu og akstursstyrki. Um kaup og kjör fer eftir ráðningarsamningi og gildandi kjarasamningum. Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur sett skv. ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 9. júní 2009. F. h. r. Hermann Sæmundsson. Stefanía Traustadóttir. |