Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 842/2013

Nr. 842/2013 20. september 2013
AUGLÝSING
um ásetningshlutfall sauðfjár almanaksárið 2014.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið, að tillögu framkvæmdanefndar búvörusamninga, að til að hljóta fullar beingreiðslur árið 2014 skuli fjöldi vetrarfóðraðs sauðfjár vera að lágmarki 0,65 á hvert ærgildi greiðslumarks á lögbýli. Ákvörðun þessi nær til framleiðslu almanaksárið 2014. Til að meta hvort skilyrði um lágmarksfjölda vetrarfóðraðs sauðfjár séu uppfyllt skal hafa mið af haustskýrslum sem sauðfjáreigendur senda Matvælastofnun skv. 11. og 13. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl og þeim upplýsingum sem stofnunin aflar með eftirliti skv. 10. gr. laga nr. 38/2013 um búfjárhald.

Auglýsing þessi er sett með heimild í 3. mgr. 39. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. september 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Rebekka Hilmarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 23. september 2013