Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 69/2013

Nr. 69/2013 23. maí 2013
FORSETAÚRSKURÐUR
um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar og laga um Stjórnarráð Íslands, ber stjórnarmálefni undir ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands sem hér segir:

1. gr.

Forsætisráðuneyti.

Forsætisráðuneyti fer með mál er varða:

1. Stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráð Íslands í heild, þar á meðal:

  1. Embætti forseta Íslands, þ.m.t. ákvörðun kjördags, embættisgengi og embættis­bústað.
  2. Alþingi.
  3. Ríkisráð Íslands.
  4. Ríkisstjórn Íslands.
  5. Skipun ráðherra og lausn.
  6. Skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.
  7. Skiptingu starfa milli ráðherra.
  8. Skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta.
  9. Ráðherranefndir.
  10. Forystu og samhæfingu innan Stjórnarráðs Íslands.
  11. Stjórnarfar almennt, þ.m.t. lög um Stjórnarráð Íslands, stjórnsýslulög og upp­lýsinga­lög.
  12. Framfylgd laga og reglna um undirbúning stjórnarfrumvarpa.
  13. Siðareglur fyrir ráðherra og starfsmenn Stjórnarráðs Íslands.
  14. Málstefnu fyrir Stjórnarráð Íslands.
  15. Ráðstöfun skrifstofuhúsa ráðuneyta og gestahúsa ríkisstjórnarinnar.
  16. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

2. Þjóðmenning, þar á meðal:

  1. Vernd sögulegrar og menningartengdrar byggðar og umhverfis- og skipulagsmál því tengd.
  2. Vernd þjóðargersema.
  3. Minjasöfn, þ.m.t. Þjóðminjasafn Íslands.
  4. Fornleifar.
  5. Húsafriðun.
  6. Varðveislu menningararfsins, þ.m.t. jarðfastra minja og gripa og flutning menn­ingar­verðmæta úr landi og skil þeirra til annarra landa.
  7. Minjastofnun Íslands.
  8. Örnefni.
  9. Bæjanöfn.
  10. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
  11. Örnefnanefnd.

3. Þjóðartákn og orður, þar á meðal:

  1. Fána Íslands og ríkisskjaldarmerki.
  2. Þjóðsöng Íslendinga.
  3. Hina íslensku fálkaorðu.
  4. Önnur heiðursmerki.

4. Skipulag forsætisráðuneytisins og starfsmannahald.

5. Annað, þar á meðal:

  1. Hagskýrslugerð, og upplýsingar um landshagi, þ.m.t. málefni Hagstofu Íslands.
  2. Almannavarna- og öryggismálaráð.
  3. Vísinda- og tækniráð.
  4. Þjóðlendur og málefni óbyggðanefndar.
  5. Rannsókn á orsökum ofanflóðs og afleiðingum þess ef manntjón hlýst af.
  6. Rannsókn á starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn.
  7. Embætti ríkislögmanns.
  8. Umboðsmann barna.
  9. Þingvelli og Þingvallaþjóðgarð.

2. gr.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Fjármála- og efnahagsráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag fjármála- og efnahagsráðuneytisins og starfsmannahald.

2. Fjárreiður ríkisins og fjármál að því marki sem þau eru ekki falin öðrum aðilum, þar á meðal:

  1. Stefnumörkun og langtímaáætlun í ríkisfjármálum.
  2. Forsvar og gerð frumvarps til fjárlaga, fjáraukalaga og lokafjárlaga.
  3. Skuldbindingar fram yfir fjárlagaárið, þ.m.t. rekstrar- og þjónustu­samn­inga.
  4. Almennt eftirlit með framkvæmd fjárlaga.
  5. Sjóðsstýringu.
  6. Lánsfjármál og lántökur.
  7. Ríkisaðstoð, ríkisábyrgðir og styrki til einkafyrirtækja.
  8. Reikningshald ríkisins.
  9. Samhæfingu fjármála sveitarfélaga við ríkisfjármál.
  10. Fjársýslu ríkisins.

3. Eignir ríkisins, þar á meðal:

  1. Fasteignir, verðbréf og hlutabréf og fyrirsvar þeirra að því marki sem þær eignir eru ekki faldar öðrum.
  2. Húsnæðismál ríkisstofnana.
  3. Bifreiðamál ríkisstofnana.
  4. Opinberar framkvæmdir.
  5. Ríkisjarðir, land í eigu ríkisins og samninga vegna nýtingar vatns- og jarð­hita­réttinda, náma og jarðefna á landi utan þjóðlendna.
  6. Jarðasjóð ríkisins.
  7. Bankasýslu ríkisins.
  8. Fasteignir ríkissjóðs.
  9. Framkvæmdasýslu ríkisins.

4. Tekjuöflun ríkisins, þar á meðal:

  1. Skattamál, svo sem álagningu, uppgjör og aðra skattframkvæmd, skatt­rannsóknir og úrskurði í skattamálum, þ.m.t. málefni ríkisskattstjóra, skattrannsóknarstjóra ríkisins og yfirskattanefnd.
  2. Tolla og vörugjöld, þ.m.t. tollgæslu og innheimtu opinberra gjalda, málefni toll­stjóra og ríkistollanefndar.
  3. Aðrar tekjur ríkissjóðs, þ.m.t. arðgreiðslur, leigutekjur og ýmis gjöld.

5. Starfsmannamál ríkisins, þar á meðal:

  1. Almenna stefnumótun í mannauðsmálum ríkisins og fræðslu.
  2. Launa- og kjaramál.
  3. Launavinnslu.
  4. Réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna.
  5. Kjararáð.

6. Lífeyrismál, þar á meðal:

  1. Lífeyrismál starfsmanna ríkisins, forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæsta­réttardómara.
  2. Skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
  3. Starfsemi lífeyrissjóða að því marki sem þau verkefni eru ekki falin öðrum.
  4. Viðbótartryggingarvernd og séreignarsparnað, þ.m.t. starfstengda eftir­launa­sjóði.

7. Hagstjórn, þar á meðal:

  1. Mat á þróun og horfum í efnahagsmálum og gerð þjóðhagsspár.
  2. Efnahagsáætlanir og samstillingu opinberrar hagstjórnar.
  3. Vexti og verðtryggingu.
  4. Lögeyri, gjaldeyri og fjármagnshreyfingar milli landa.
  5. Seðlabanka Íslands.

8. Fjármálamarkað, lagaumgjörð og eftirlit, þar á meðal:

  1. Fjármálafyrirtæki.
  2. Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki.
  3. Verðbréfamarkaði.
  4. Úrskurðarnefnd verðbréfamiðstöðva.
  5. Innstæðutryggingar.
  6. Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta.
  7. Vátryggingar og vátryggingastarfsemi.
  8. Úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum.
  9. Viðlagatryggingu Íslands.
  10. Úrskurðarnefnd um viðlagatryggingu.
  11. Greiðslukerfi og greiðsluþjónustu.
  12. Fjármálaeftirlitið.

9. Almennar umbætur í ríkisrekstri, þar á meðal:

  1. Skipulag og stjórnarhætti í ríkisstarfsemi.
  2. Opinber innkaup og málefni Ríkiskaupa.
  3. Kærunefnd útboðsmála.
  4. Hagræðingu í ríkisrekstri og árangursstjórnun.

10. Önnur verkefni, þar á meðal:

  1. Kröfulýsingu í þjóðlendur.
  2. Verslun með áfengi og tóbak og málefni Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis­ins.
  3. Málefni og eigendaforsvar fjölþjóðlegra lánastofnana, annarra en þeirra sem fara með þróunaraðstoð, þ.m.t. gagnvart Norræna fjárfestingar­bank­anum (NIB), Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF) og Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD).

3. gr.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og starfsmannahald.

2. Almenn starfsskilyrði- og stuðningsumhverfi atvinnulífs þar á meðal:

  1. Atvinnuþróun, tæknirannsóknir og nýsköpun.
  2. Stuðning ríkisins við rannsóknir, þróunarstarf og nýsköpun í atvinnugreinum.
  3. Opinberar fjárfestingar í nýsköpunarfyrirtækjum.
  4. Ívilnanir vegna nýfjárfestinga og gerð fjárfestingarsamninga annarra en milliríkja- samninga.
  5. Fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri.
  6. Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
  7. Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.
  8. Skrifstofu rannsóknarstofnana atvinnuveganna.

3. Byggðamál, þar á meðal:

  1. Gagnasöfnun og rannsóknir til undirbúnings stefnu í byggðamálum.
  2. Byggðaáætlun og jöfnun búsetuskilyrða.
  3. Samstarf og samráð um stuðningsaðgerðir.
  4. Jöfnun flutningskostnaðar.
  5. Byggðastofnun.

4. Orkumál og auðlindanýtingu þar á meðal:

  1. Öryggi raforkukerfisins.
  2. Raforkumarkað.
  3. Jöfnun kostnaðar við húshitun og dreifingu raforku.
  4. Forystu um orkusparnað, nýtingu orku og orkuskipti.
  5. Visthönnun vöru sem notar orku og orkumerkingar.
  6. Hitaveitur, gjaldskrár og stofnstyrki.
  7. Leyfi til nýtingar á auðlindum í jörðu og á, í eða undir hafsbotni.
  8. Leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíuleit).
  9. Nýting vatns.
  10. Orkustofnun.
  11. Úrkurðarnefnd raforkumála.

5. Viðskiptalíf, almenn lagaumgjörð, þar á meðal:

  1. Rafræn viðskipti, rafræna þjónustu og rafrænar undirskriftir.
  2. Frum- og milliinnheimtu peningakrafna.
  3. Víxla, tékka og skuldabréf.
  4. Fyrningu kröfuréttinda.
  5. Ábyrgðarmenn.
  6. Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar, þ.m.t. einkaleyfi, vörumerki, félagamerki, upp­finn­ingar starfsmanna og hönnun.
  7. Einkaleyfastofu.
  8. Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar.
  9. Félagarétt, þ.m.t. bókhald, endurskoðendur og ársreikninga.
  10. Skráningu fyrirtækja og félaga og málefni fyrirtækjaskrár og ársreikningaskrár.
  11. Framkvæmd útboða.
  12. Samkeppnismál.
  13. Samkeppniseftirlitið.
  14. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála.
  15. Staðla og Staðlaráð Íslands.
  16. Faggildingu.
  17. Löggildingu viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
  18. Löggildingu endurskoðenda og málefni Endurskoðendaráðs.

6. Sjávarútveg og veiði í ám og vötnum, eldi og ræktun nytjastofna, þar á meðal:

  1. Stjórn á verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafs­botnsins.
  2. Veiðigjöld.
  3. Rannsóknir og eftirlit með verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auð­linda hafsins og hafsbotnsins.
  4. Hafrannsóknastofnun.
  5. Framkvæmd fiskveiðisamninga við erlend ríki.
  6. Fiskvinnslu og aðra vinnslu úr sjávarfangi.
  7. Uppboðsmarkað sjávarafla.
  8. Eldi hvers konar nytjastofna í sjó eða ferskvatni, skipulag og eftirlit með því.
  9. Veiði í ám og vötnum.
  10. Fiskræktarsjóð.
  11. Matsnefnd skv. lögum um lax- og silungsveiði.
  12. Nýsköpun og þróun í sjávarútvegi.
  13. Fiskistofu.
  14. Málefni úrskurðarnefndar um ólögmætan sjávarafla.
  15. Verðlagsstofu skiptaverðs, verðlagsráð sjávarútvegsins.
  16. Málefni úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna.

7. Landbúnað, matvæli og matvælaöryggi, þar á meðal:

  1. Framleiðslu landbúnaðarafurða.
  2. Búfjárhald og slátrun.
  3. Verðlagningu og sölu á búvörum.
  4. Inn- og útflutning landbúnaðarafurða.
  5. Eftirlit með inn- og útflutningi dýra og plantna og erfðaefna þeirra.
  6. Velferð dýra.
  7. Varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði og yrkisrétt.
  8. Framkvæmd búnaðarlaga.
  9. Stuðning ríkisins við framleiðslu- og markaðsmál, þ.m.t. framkvæmd búvörulaga.
  10. Almenn jarðamál, ábúðarmál, afrétti, fjallskil og girðingar, þ.m.t. málefni úttektar­manna og yfirmatsnefndar samkvæmt ábúðarlögum.
  11. Nýtingu hlunninda jarða.
  12. Dýralæknaþjónustu, þ.m.t. starfsleyfi dýralækna.
  13. Heilbrigðiseftirlit með framleiðslu, vinnslu, inn- og útflutningi og markaðssetningu matvæla og fóðurs.
  14. Heilbrigði dýra og varnir gegn dýrasjúkdómum.
  15. Heilbrigði plantna og varnir gegn plöntusjúkdómum.
  16. Eftirlit með sáðvöru og áburði.
  17. Hagþjónustu landbúnaðarins.
  18. Matvælarannsóknir.
  19. Matvælastofnun.
  20. Úrskurðarnefndir á sviði landbúnaðar, þ.m.t. æðardúnsnefnd, ullarmatsnefnd og gærumatsnefnd.
  21. Bjargráðasjóð.

8. Iðnað, verslun og þjónustu, þar á meðal:

  1. Iðnað, þ.m.t. verksmiðjuiðnað, handiðnað, stóriðju og fjárfestingarsaminga.
  2. Ferðaþjónustu og stuðning ríkisins við gæða- og skipulagsmál greinarinnar.
  3. Ferðamálastofu.
  4. Úrbætur og uppbyggingu á ferðamannastöðum.
  5. Veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
  6. Bílaleigur.
  7. Skapandi greinar í þágu atvinnuþróunar.
  8. Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar.
  9. Sala fasteigna, fyrirtækja og skipa.
  10. Verslunaratvinnu.
  11. Verslunarskrár, firmu og prókúruumboð.
  12. Umboðssöluviðskipti.
  13. Starfsréttindi í iðnaði.
  14. Löggildingu starfsheita í tækni- og hönnunargreinum.

4. gr.

Innanríkisráðuneyti.

Innanríkisráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag innanríkisráðuneytisins og starfsmannahald.

2. Ákæruvald, þar á meðal:

  1. Embætti ríkissaksóknara.
  2. Embætti sérstaks saksóknara.

3. Dómstóla, aðra en félagsdóm, þar á meðal:

  1. Dómstólaráð.
  2. Dómnefnd um hæfi umsækjenda um dómarastörf.
  3. Nefnd um dómarastörf.

4. Réttarfar, þar á meðal:

  1. Meðferð einkamála.
  2. Meðferð sakamála.
  3. Endurupptökunefnd.
  4. Aðför, kyrrsetningu, lögbann og löggeymslu.
  5. Gjaldþrotaskipti, greiðslustöðvun og nauðasamninga.
  6. Nauðungarsölur.
  7. Lögbókandagerðir.
  8. Öflun sönnunargagna vegna ætlaðra brota á hugverkaréttindum.

5. Réttaraðstoð, þar á meðal:

  1. Gjafsókn.
  2. Réttaraðstoð vegna nauðasamninga.
  3. Gagnkvæma alþjóðlega réttaraðstoð.

6. Refsirétt.

7. Skaðabótarétt og sanngirnisbætur, þar á meðal:

  1. Bætur til þolenda afbrota, þ.m.t. málefni bótanefndar um greiðslu bóta til þolenda afbrota.
  2. Sanngirnisbætur, þ.m.t. málefni úrskurðarnefndar um sanngirnisbætur.
  3. Skaðabætur utan samninga.
  4. Niðurjöfnunarmenn sjótjóns.

8. Lögmenn, dómtúlka og skjalaþýðendur, þ.m.t. málefni útskurðarnefndar lögmanna.

9. Birtingu laga og stjórnvaldserinda, þar á meðal:

  1. Lagasafn.
  2. Lögbirtingablað.
  3. Stjórnartíðindi.

10. Eignarétt og veðrétt, þar á meðal:

  1. Eigna- og afnotarétt fasteigna.
  2. Framkvæmd eignarnáms, er eigi ber undir annað ráðuneyti, þ.m.t. málefni mats­nefndar eignarnámsbóta.
  3. Þinglýsingar.

11. Fullnustu dóma, þar á meðal:

  1. Fangelsi.
  2. Fangavist.
  3. Reynslulausn fanga og samfélagsþjónustu.
  4. Flutning dæmdra manna.
  5. Náðun, sakaruppgjöf og uppreist æru.
  6. Fangelsismálastofnun ríkisins.

12. Almannavarnir.

13. Leit og björgun, þar á meðal:

  1. Samræmda neyðarsímsvörun.
  2. Vöktun innviða.
  3. Köfun.

14. Lögreglu og löggæslu, þar á meðal:

  1. Landamæravörslu.
  2. Gæslu landhelgi og fiskimiða.
  3. Framsal/afhendingu sakamanna.
  4. Schengen.
  5. Peningaþvætti.
  6. Erfðaefnaskrá lögreglu.
  7. Öryggisþjónustu í atvinnuskyni.
  8. Lögregluskóla ríkisins.
  9. Embætti ríkislögreglustjóra.
  10. Lögreglustjóraembætti.

15. Sjómælingar og sjókortagerð.

16. Vopnamál.

17. Áfengismál, sem ekki heyra undir annað ráðuneyti.

18. Samgöngur í lofti, á landi og á sjó, þar á meðal:

  1. Flugvelli, vegi, hafnir, vita og sjóvarnir.
  2. Skipulag og uppbyggingu samgöngukerfisins.
  3. Viðhald og rekstur samgöngukerfisins.
  4. Fólksflutninga, farmflutninga og almenningssamgöngur.
  5. Samgönguöryggi.
  6. Samgönguvernd.
  7. Samgönguáætlun.
  8. Skipsströnd og vogverk.
  9. Rannsókn samgönguslysa, þ.m.t. málefni rannsóknarnefndar flugslysa, rann­sóknar­nefndar sjóslysa og rannsóknarnefndar umferðarslysa.
  10. Samgöngutækjaskrár.
  11. Eftirlit með skráningu og búnaði samgöngutækja.
  12. Eftirlit með loftferðum og umferð ökutækja og skipa.
  13. Leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi samgangna.
  14. Réttindamál fagaðila í skipum, loftförum og ökutækjum.
  15. Slysavarnarskóla sjómanna.
  16. Lögskráningu sjómanna.
  17. Flugmálastjórn Íslands.
  18. Siglingastofnun Íslands.
  19. Umferðarstofu.
  20. Vegagerðina.

19. Fjarskipti, þar á meðal:

  1. Fjarskiptanet, þó ekki efni sem sent er á fjarskiptanetum.
  2. Fjarskiptaþjónustu, gagnaflutninga og fjarskiptarekstur.
  3. Fjarskiptavernd.
  4. Öryggi rafrænna samskipta og netöryggi.
  5. Lén og málefni netsins.
  6. Eftirlit með fjarskiptum.
  7. Fjarskiptasjóð.
  8. Póstþjónustu, póstrekstur og eftirlit með póstþjónustu.
  9. Póst- og fjarskiptastofnun og málefni úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála.

20. Almannaskráningu og lögheimili, fasteignaskrá, landamerki og fasteignamat, þar á meðal:

  1. Þjóðskrá Íslands.
  2. Yfirfasteignamatsnefnd.

21. Málefni upplýsingasamfélagsins.

22. Mannréttindi og mannréttindasáttmála.

23. Sifjarétt, þar á meðal:

  1. Málefni barna, nema barnavernd, þ.m.t. ættleiðingar og brottnám.
  2. Hjúskap.

24. Persónurétt og persónuvernd, þar á meðal:

  1. Lögræði.
  2. Mannanöfn og málefni mannanafnanefndar.
  3. Persónuvernd.

25. Erfðarétt, lög um horfna menn og yfirfjárráð, skipti á dánarbúum.

26. Kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu.

27. Trúmál, þar á meðal:

  1. Trúfélög.
  2. Þjóðkirkjuna, biskupsstofu og áfrýjunarnefnd í málefnum þjóðkirkjunnar.
  3. Bókasöfn prestakalla.
  4. Sóknargjöld.
  5. Kristnisjóð.
  6. Kirkjumálasjóð.
  7. Helgidagafrið.
  8. Lífsskoðunarfélög.

28. Persónuskilríki, þ.m.t. vegabréf, önnur en diplómatísk.

29. Ríkisborgararétt og málefni útlendinga (að frátöldum atvinnuleyfum).

30. Útlendingastofnun.

31. Neytendamál, þar á meðal:

  1. Eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
  2. Vöruöryggi, þ.m.t. vörur unnar úr eðalmálmum.
  3. Neytendalán.
  4. Lausafjárkaup, fasteignakaup, neytendakaup og þjónustukaup, þ.m.t. málefni kæru­nefndar um lausafjár- og þjónustukaup.
  5. Samningarétt.
  6. Alferðir.
  7. Afnotarétt orlofshúsnæðis.
  8. Húsgöngu- og fjarsölusamninga.
  9. Mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.
  10. Neytendastofu.
  11. Talsmann neytenda.
  12. Áfrýjunarnefnd um neytendamál.

32. Happdrætti, veðmálastarfsemi, talnagetraunir og almennar fjársafnanir.

33. Sveitarstjórnarmál, þar á meðal:

  1. Stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga.
  2. Tekjustofna og fjármál sveitarfélaga.
  3. Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
  4. Mörk sveitarfélaga.
  5. Landskipti.
  6. Innheimtustofnun sveitarfélaga.

34. Sýslumenn og hreppstjóra.

35. Kosningar:

  1. Kjör til forseta Íslands, kosningar til Alþingis og sveitarstjórna, þjóðar­atkvæða­greiðslur og aðrar almannakosningar sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
  2. Fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og upplýsingaskyldu þeirra.

36. Málefni sjóða og stofnana sem starfa skv. staðfestri skipulagsskrá.

37. Landhelgisgæslu Íslands.

5. gr.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag mennta- og menningarmálaráðuneytisins og starfsmannahald.

2. Fræðslumál, þar á meðal:

  1. Leikskóla.
  2. Grunnskóla.
  3. Framhaldsskóla.
  4. Háskóla.
  5. Tónlistarskóla.
  6. Framhaldsfræðslu og málefni Fræðslusjóðs.
  7. Listaskóla.
  8. Námskrárgerð.
  9. Námsgögn.
  10. Námsmat.
  11. Vinnustaðanámssjóð.
  12. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.
  13. Úrskurðarnefnd vegna kostnaðar við skólagöngu fósturbarna.
  14. Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema.
  15. Námsgagnastofnun.
  16. Námsmatsstofnun.

3. Námsaðstoð, þar á meðal:

  1. Námslán.
  2. Námsstyrki.
  3. Lánasjóð íslenskra námsmanna.
  4. Málsskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
  5. Námsstyrkjanefnd.

4. Vísindamál, þar á meðal:

  1. Rannsóknastarfsemi, einkum á sviði grunnrannsókna.
  2. Vísindastarfsemi sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
  3. Opinberan stuðning við vísindastarfsemi.
  4. Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum.
  5. Rannsóknarmiðstöð Íslands.

5. Safnamál, að frátöldum málefnum minjasafna, þar á meðal:

  1. Bókasöfn, utan bókasafna prestakalla, þ.m.t. Landsbókasafn Íslands.
  2. Skjalasöfn, þ.m.t. málefni Þjóðskjalasafns Íslands.
  3. Safnasjóð.
  4. Listasöfn, þ.m.t. málefni Listasafns Íslands.
  5. Náttúruminjasafn Íslands.

6. Listir og menningu, þar á meðal:

  1. Bókmenntir.
  2. Myndlist.
  3. Listskreytingar opinberra bygginga.
  4. Sviðslist.
  5. Tónlist, þ.m.t. málefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og málefni tónlistarsjóðs.
  6. Kvikmyndir, þ.m.t. málefni Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Kvikmyndasafns Íslands.
  7. Starfslaun listamanna.
  8. Stuðning við listir og kynningu íslenskrar listar innanlands og utan.
  9. Miðstöð íslenskra bókmennta og bókmenntasjóð.
  10. Listskreytingarsjóð.
  11. Þjóðleikhúsið.
  12. Íslenska dansflokkinn.

7. Höfundarétt, þar á meðal:

  1. Fylgiréttargjald samkvæmt höfundalögum og lögum um verslunaratvinnu.
  2. Úrskurðarnefnd höfundaréttarmála.

8. Íslenska tungu og íslenskt táknmál.

9. Fjölmiðla, þar á meðal:

  1. Mynd- og hljóðmiðla.
  2. Netmiðla.
  3. Prentmiðla.
  4. Eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum.
  5. Ríkisútvarpið.
  6. Fjölmiðlanefnd.

10. Ábyrgðarreglur og efnisréttindi á netinu, þ.m.t. höfundarétt.

11. Íþróttamál, þar á meðal:

  1. Málefni þjóðarleikvanga.
  2. Frjáls félagasamtök.
  3. Sjóði.
  4. Íslenskar getraunir.
  5. Launasjóð stórmeistara í skák og málefni Skákskóla Íslands.

12. Æskulýðsmál, þar á meðal:

  1. Æskulýðsráð ríkisins.
  2. Æskulýðssjóð.
  3. Frjáls félagasamtök.

13. Lögvernduð starfsheiti, þar á meðal:

  1. Starfsréttindi bókasafns- og upplýsingafræðinga.
  2. Lögverndun starfsréttinda leik-, grunn- og framhaldsskólakennara.
  3. Starfsréttindi náms- og starfsráðgjafa.
  4. Viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

14. Erlent samstarf á sviði menntunar, menningar og vísinda.

15. Annað, þar á meðal:

  1. Félagsheimili.
  2. Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands.
  3. Grænlandssjóð.

6. gr.

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og starfsmannahald.

2. Náttúruvernd, þar á meðal:

  1. Líffræðilega fjölbreytni, s.s. verndun vistkerfa, búsvæða, tegunda og erfðaefnis, þar með talið í hafi.
  2. Vernd jarðmyndana.
  3. Verndarsvæði í hafi til varðveislu náttúruminja eða sérstakra vistkerfa á hafsbotni til að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið fer með framkvæmd á.
  4. Friðlýst svæði, þ.m.t. málefni Vatnajökulsþjóðgarðs og annarra þjóðgarða að frátöldum Þingvallaþjóðgarði.
  5. Svæði sem njóta verndar samkvæmt sérlögum vegna náttúru eða landslags, þ.m.t. málefni Náttúrurannsóknarmiðstöðvarinnar við Mývatn.
  6. Sinubrennur og meðferð elds á víðavangi.
  7. Úrbætur og uppbyggingu á aðstöðu til móttöku ferðamanna í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum.

3. Skógrækt, landgræðslu og varnir gegn landbroti, þar á meðal:

  1. Gróður- og jarðvegsvernd.
  2. Landshlutabundin verkefni í skógrækt.
  3. Endurheimt vistkerfa, þ.m.t. votlendis.
  4. Landgræðslu ríkisins.
  5. Skógrækt ríkisins.

4. Rannsóknir og skráningu upplýsinga um náttúru landsins, hafsins og hafsbotnsins, þar á meðal:

  1. Umhverfisrannsóknir og umhverfisvöktun.
  2. Rannsóknir á jarðrænum auðlindum á landi og á hafsbotni öðrum en olíu og ráðgjöf um nýtingu þeirra, þ.m.t. málefni Íslenskra orkurannsókna.
  3. Rannsóknir á lífríki í ám og vötnum og ráðgjöf um nýtingu þeirra, þ.m.t. málefni Veiðimálastofnunar.

5. Söfnun upplýsinga um umhverfis- og auðlindamál og sjálfbærni á norðurslóðum, þ.m.t. málefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.

6. Stjórn vatnamála og ráðgjöf um nýtingu vatns.

7. Mengunarvarnir, þar á meðal:

  1. Hljóðvist.
  2. Mengun hafs og stranda, vatns og jarðvegs.
  3. Meðhöndlun úrgangs og úrvinnslugjald, þ.m.t. málefni Úrvinnslusjóðs.
  4. Fráveitur.
  5. Loftgæði.

8. Umhverfisábyrgð.

9. Loftslagsvernd, þar á meðal:

  1. Losun gróðurhúsalofttegunda.
  2. Viðskipti með losunarheimildir.
  3. Skráningarkerfi gróðurhúsalofttegunda og losunarheimilda.

10. Hollustuhætti.

11. Efni og efnavörur.

12. Skipulagsmál, þar á meðal:

  1. Landsskipulagsstefnu.
  2. Skipulag haf- og strandsvæða.
  3. Skipulagsstofnun.

13. Sjálfbæra þróun, þar á meðal:

  1. Stefnumörkun um sjálfbæra þróun og ráðgjöf um nýtingu auðlinda.
  2. Viðmið um sjálfbæra nýtingu auðlinda.

14. Mat á umhverfisáhrifum áætlana og framkvæmda.

15. Upplýsingarétt um umhverfismál.

16. Landupplýsingar og grunnkortagerð, þ.m.t. málefni Landmælinga Íslands.

17. Mannvirki, þar á meðal:

  1. Eftirlit með mannvirkjum og gerð þeirra.
  2. Brunavarnir.
  3. Eftirlit með byggingarvörum.
  4. Eftirlit með öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga í mannvirkjum.
  5. Mannvirkjastofnun.

18. Veður og náttúruvá, þar á meðal:

  1. Veðurþjónustu.
  2. Vöktun á náttúruvá.
  3. Varnir gegn ofanflóðum.
  4. Rannsóknir og vöktun á vatnafari landsins.
  5. Veðurstofu Íslands.

19. Veiðistjórnun og alþjóðaverslun með villt dýr og plöntur, þar á meðal:

  1. Stjórnun veiða villtra fugla og villtra spendýra, annarra en sjávarspendýra.
  2. Vernd og friðun villtra dýra og villtra fugla.
  3. Alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna í útrýmingarhættu.

20. Erfðabreyttar lífverur.

21. Framkvæmd alþjóðasamninga um umhverfismál.

22. Áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

23. Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.

24. Umhverfisstofnun.

25. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

7. gr.

Utanríkisráðuneyti.

Utanríkisráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag utanríkisráðuneytisins og starfsmannahald.

2. Utanríkismál, þar á meðal:

  1. Skipti forseta Íslands og annarra þjóðhöfðingja.
  2. Sendiráð, fastanefndir og ræðisskrifstofur Íslands erlendis.
  3. Sendiráð og ræðisskrifstofur erlendra ríkja á Íslandi.
  4. Skipti við erlend ríki, þ.m.t. norræna samvinnu.
  5. Réttindi Íslendinga og íslenska hagsmuni erlendis.
  6. Samninga við önnur ríki og gerð þeirra og framkvæmd tiltekinna samninga, sbr. m.a. lög nr. 90/1994, 57/2000, 93/2008 og 58/2010.
  7. Aðild Íslands að alþjóðlegum samtökum, stofnunum, ráðstefnum og fundum er varða opinbera hagsmuni og eigi ber undir annað ráðuneyti samkvæmt ákvæðum þessa úrskurðar eða eðli máls. Friðhelgi og forréttindi alþjóðastofnana.
  8. Diplómatísk vegabréf, þjónustuvegabréf og áritun vegabréfa.
  9. Kynningu Íslands og íslenskra efna með öðrum þjóðum nema slík mál séu lögð til annars ráðuneytis.
  10. Íslandsstofu.
  11. Varnarmál, aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO), varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna, samskipti og samstarf við erlend ríki, hermálayfirvöld og alþjóðastofnanir á sviði öryggis- og varnarmála, varnarsvæði, öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og önnur öryggissvæði, þ.m.t. skipulags- og mannvirkjamál, rekstur mannvirkja og eigna Atlantshafsbandalagsins á Íslandi, þ.m.t. íslenska ratsjár- og loftvarnakerfið (IADS).
  12. Útflutningsverslun.
  13. Undirbúning og framkvæmd viðskiptasamninga.
  14. Skipti Íslands við alþjóðleg viðskiptasamtök.
  15. Vörusýningar erlendis.
  16. Þróunarsamvinnu, friðargæslu og neyðarhjálp.
  17. Þróunarsamvinnustofnun Íslands.
  18. Hafréttarmál.

8. gr.

Velferðarráðuneyti.

Velferðarráðuneyti fer með mál er varða:

1. Skipulag velferðarráðuneytisins og starfsmannahald.

2. Félags- og fjölskyldumál, þar á meðal:

  1. Barnavernd.
  2. Barnaverndarstofu.
  3. Kærunefnd barnaverndarmála.
  4. Málefni fatlaðs fólks.
  5. Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.
  6. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
  7. Málefni aldraðra.
  8. Málefni innflytjenda og flóttafólks.
  9. Fjölmenningarsetur.
  10. Félagslega aðstoð.
  11. Greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
  12. Félagsþjónustu sveitarfélaga.
  13. Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála.
  14. Ráðgjöf og úrræði vegna fjármála heimilanna, þ.m.t. greiðsluaðlögun einstaklinga.
  15. Umboðsmann skuldara.
  16. Kærunefnd greiðsluaðlögunarmála.
  17. Ættleiðingastyrki.
  18. Orlof húsmæðra.

3. Almannatryggingar, þar á meðal:

  1. Lífeyristryggingar og eftirlaun aldraðra.
  2. Tryggingastofnun ríkisins.
  3. Sjúkratryggingar.
  4. Sjúklingatryggingu.
  5. Slysatryggingar.
  6. Sjúkratryggingastofnun.
  7. Úrskurðarnefnd almannatrygginga.
  8. Fjárhagsaðstoð við lifandi líffæragjafa.

4. Heilbrigðisþjónustu, þar á meðal:

  1. Heilsugæslu.
  2. Sjúkrahús.
  3. Heilbrigðisstofnanir.
  4. Sérhæfða heilbrigðisþjónustu utan stofnana.
  5. Endurhæfingarstarfsemi og meðferðarstofnanir.
  6. Lyf.
  7. Ávana- og fíkniefni.
  8. Lækningatæki.
  9. Lyfjastofnun.
  10. Lyfjagreiðslunefnd.
  11. Tæknifrjóvgun.
  12. Sjúkraskrár og gagnasöfn á heilbrigðissviði.
  13. Réttindi sjúklinga.
  14. Starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu.
  15. Embætti landlæknis.
  16. Heyrnar- og talmeinastöð.

5. Málefni aldraðra, þar á meðal:

  1. Hjúkrunarheimili.
  2. Dvalarheimili.
  3. Dagdvöl aldraðra.
  4. Framkvæmdasjóð aldraðra.

6. Lýðheilsu og forvarnir, þar á meðal:

  1. Heilsueflingu.
  2. Áfengis- og vímuvarnir.
  3. Slysavarnir.
  4. Sóttvarnir.
  5. Tóbaksvarnir.
  6. Geislavarnir.
  7. Geislavarnir ríkisins.

7. Lífvísindi og lífsiðfræði, þar á meðal:

  1. Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.
  2. Vísindasiðanefnd.
  3. Lífsýnasöfn.
  4. Líffæragjafir og líffæraígræðslu.
  5. Ákvörðun dauða, dánarvottorð og krufningar.

8. Húsnæðismál, þar á meðal:

  1. Húsnæðislán.
  2. Greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga.
  3. Greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
  4. Íbúðalánasjóð.
  5. Húsaleigumál.
  6. Húsaleigubætur.
  7. Húsnæðissamvinnufélög og byggingarsamvinnufélög.
  8. Fjöleignarhús.
  9. Frístundabyggð.
  10. Kærunefnd húsamála.

9. Vinnumál, þar á meðal:

  1. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
  2. Starfsmannaleigur.
  3. Aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
  4. Vinnueftirlit ríkisins.
  5. Vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum.
  6. Félagsdóm.
  7. Vinnumarkaðsaðgerðir.
  8. Sáttastörf í vinnudeilum.
  9. Ríkissáttasemjara.
  10. Atvinnuleysistryggingar.
  11. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.
  12. Atvinnutengda starfsendurhæfingu.
  13. Atvinnuréttindi útlendinga.
  14. Ábyrgð á launum við gjaldþrot.
  15. Fæðinga- og foreldraorlof.
  16. Úrskurðarnefnd um fæðinga- og foreldraorlofsmál.
  17. Vinnumálstofnun.
  18. Félagsmálaskóla alþýðu.

10. Jafnréttismál, þar á meðal:

  1. Jafnrétti kynjanna.
  2. Jafnréttisstofu.
  3. Kærunefnd jafnréttismála.
  4. Jafnrétti á vinnumarkaði.

11. Annað, þar á meðal:

  1. Græðara.
  2. Kynáttunarvanda.
  3. Fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir.
  4. Úrskurðarnefnd um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir.

9. gr.

Ágreiningur.

Málefni sem eigi er getið í 1.–8. gr. skulu lögð til ráðuneytis þar sem þau eðli sínu sam­kvæmt eiga heima.

Nú leikur vafi á um, eða ágreiningur rís um, hvaða ráðuneyti skuli með mál fara og sker forsætisráðherra þá úr.

10. gr.

Gildistaka.

Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi ákvæði eldri forsetaúrskurðar nr. 66 frá 23. apríl 2013 um skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Gjört á Bessastöðum, 23. maí 2013.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

              A deild - Útgáfud.: 23. maí 2013