1. gr. Frá og með 31. desember 2012 falla niður reglur nr. 482/2010 um Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands. 2. gr. Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt samkvæmt heimild í 4. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 26. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, taka gildi 31. desember 2012. Háskóla Íslands, 11. desember 2012. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |