Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 810/2010

Nr. 810/2010 11. október 2010
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007, sbr. samþykkt nr. 795/2009.

1. gr.

2. mgr. 68. gr. samþykktarinnar sem ber yfirskriftina „Æðsti yfirmaður starfsmanna – staðgenglar“ verður svohljóðandi:

Formaður borgarráðs er staðgengill borgarstjóra. Í fjarveru formanns borgarráðs eru skrifstofustjóri borgarstjórnar, borgarlögmaður og skrifstofustjóri borgarstjóra stað­genglar borgarstjóra.

Samþykkt þessi sem borgarstjórn Reykjavíkur hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 11. október 2010.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 26. október 2010