Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 394/2015

Nr. 394/2015 10. apríl 2015
REGLUGERÐ
um gjöld og þóknanir sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á.

1. gr.

Markmið.

Markmið þessar reglugerðar er að innleiða reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 319/2014, frá 27. mars 2014, um þóknanir og gjöld lögð á af Flugöryggisstofnuninni Evrópu, sbr. 2. gr. reglugerðar þessarar.

2. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 319/2014, frá 27. mars 2014, um þóknanir og gjöld sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á, og sem fellir brott reglugerð (EB) nr. 539/2007, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 290/2014 frá 12. desember 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 5. febrúar 2015, bls. 705.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Frá og með sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 118/2009 um sama efni, ásamt síðari breytingum.

Innanríkisráðuneytinu, 10. apríl 2015.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

B deild - Útgáfud.: 29. apríl 2015