1. gr. Í 2. gr. reglnanna undir liðnum Fjölþjóða þróunarbankar bætist eftirfarandi við í upptalninguna: Fjölþjóðlega fjárfestingarábyrgðarstofnunin. 2. gr. Í viðauka II með reglunum um flokkun ríkja í svæði A og B, sbr. 4. gr. reglnanna, bætast eftirtalin ríki við upptalningu á ríkjum sem falla undir svæði A: Eistland Kýpur (gríski hlutinn) Lettland Litháen Malta Slovenía 3. gr. Reglur þessar eru settar með heimild í 4. mgr. 30. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Með breytingu samkvæmt 1. gr. þessara reglna er innleitt í íslenskan rétt ákvæði tilskipunar nr. 2004/69/EB. Fjármálaeftirlitinu, 9. nóvember 2005. Jónas Fr. Jónsson. Ragnar Hafliðason. |