Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 685/2011

Nr. 685/2011 22. júní 2011
REGLUR
um Raunvísindastofnun Háskólans.

1. gr.

Almennt.

Raunvísindastofnun Háskólans (RH) er vettvangur grunnrannsókna á fræðasviðum sínum og starfar í alþjóðlegu vísindaumhverfi. Stofnunin er hluti af raunvísinda- og jarðvísinda­deildum verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands eins og nánar er kveðið á um í reglum þessum.

2. gr.

Hlutverk.

Hlutverk Raunvísindastofnunar Háskólans er að:

a)

Afla nýrrar þekkingar með grunnrannsóknum og nytjarannsóknum í raun­vísindum.

b)

Hýsa öndvegissetur og sérstaka aðstöðu viðamikilla rannsókna.

c)

Annast þjónusturannsóknir eftir því sem við á og veita ráðgjöf um eðlis- og efnisvísindi, náttúruvá, nýtingu auðlinda og umhverfismál.

d)

Starfa með innlendum og erlendum háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrir­tækjum með gagnkvæma miðlun á þekkingu í huga og til að afla þekkingar fyrir íslenskt samfélag.

e)

Veita ráðgjöf um málefni raunvísinda og miðla þekkingu með því að birta og kynna niðurstöður rannsókna á fræðasviðum sínum.

f)

Veita nemendum í rannsóknarnámi við raunvísinda- og jarðvísindadeildir aðstöðu og aðgang að búnaði til rannsóknarstarfa samkvæmt þjónustusamningi við viðkomandi deildir.

g)

Efla kennslu með því að byggja upp frjótt rannsóknarumhverfi fyrir nemendur og þjálfa þá í vísindalegri hugsun og vinnubrögðum í raunvísindum.

3. gr.

Stjórnskipulag.

Raunvísindastofnun Háskólans skiptist í tvær faglega sjálfstæðar stofnanir:

  1. Eðlis-, efna- og stærðfræðistofnun Háskólans (EH).
  2. Jarðvísindastofnun Háskólans (JH).

Heimilt er að starfrækja sjálfstæðar rannsóknarstofnanir innan Raunvísindastofnunar, aðrar en þær sem tilgreindar eru í 1. mgr., eða koma á fót sjálfstæðum rannsóknar­stofum innan stofnana Raunvísindastofnunar.

Stjórn Raunvísindastofnunar tekur ákvörðun um að koma á fót, hýsa eða leggja niður rannsóknarstofnanir eða -stofur skv. 2. mgr. að fengnu samþykki stofnunarfunda beggja stofnana sem tilgreindar eru í 1. mgr. og að fengnu samþykki forseta fræðasviðs. Í starfsreglum um rannsóknarstofnanir og -stofur er nánar kveðið á um stjórnskipulag þeirra, skipun stjórnar og að hve miklu leyti heimildir skv. þessum reglum eru nýttar, m.a. um stofuskiptingu, hlutverk stofnunarfunda, stofufunda og annarra funda innan stjórnunareininga. Í starfsreglum um stofnanir skal einnig tilgreind aðkoma hvorrar stofnunar að deildarráði viðkomandi deildar verkfræði- og náttúruvísindasviðs í samræmi við reglur viðkomandi deilda. Heimilt er í starfsreglum að kveða á um skipan nefnda um tiltekin verkefni og hafi nefndirnar jafnframt hlutverk við stjórn hverrar stofnunar.

Starfsreglur stofnana RH skulu hljóta staðfestingu stjórnar Raunvísindastofnunar og forseta fræðasviðs. Þá staðfestir stjórn Raunvísindastofnunar skipurit fyrir starfsemina, þar sem stjórnunareiningar eru tilgreindar og kveðið er á um hvaða stofnun starfsmenn tilheyri. Stjórn Raunvísindastofnunar setur stofum starfsreglur.

4. gr.

Rannsóknar- og skrifstofuaðstaða.

Raunvísindastofnun veitir starfsliði sínu, sbr. 9. gr., aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er. Til aðstöðu teljast skrifstofur og rannsóknarstofur ásamt búnaði þeirra, svo og geymslur fyrir tæki og búnað.

Heimilt er að veita kennurum við aðrar deildir rannsóknaraðstöðu við Raunvísinda­stofnun, enda starfi þeir á einhverju af fagsviðum stofnunarinnar.

5. gr.

Stjórn RH.

Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs skipar fimm manna stjórn Raunvísindastofnunar til fjögurra ára í senn, frá 1. júlí að telja, þar af einn stjórnarmann án tilnefningar. Formaður stjórnar er kjörinn í skriflegri kosningu af þeim hópum starfsmanna sem greinir í liðum a-d í 9. gr. og skal hann vera úr hópi starfsfólks skv. a- eða b-lið 9. gr. Stjórn Eðlis-, efna- og stærðfræðistofnunar tilnefnir einn fulltrúa í stjórn Raunvísindastofnunar og stjórn Jarðvísindastofnunar einn.

Starfsfólk Raunvísindastofnunar tilnefnir einn fulltrúa í stjórn úr hópi starfsfólks sem fellur undir d-lið 9. gr., sbr. 2. mgr. Fulltrúar, sem starfsfólk tilnefnir, sbr. 1. mgr., skulu valdir í skriflegri kosningu. Um atkvæðisrétt fer skv. ákvæðum 2. mgr. 8. gr.

Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Í þessu skyni skulu tilnefningaraðilar sbr. 1. mgr. tilnefna bæði karl og konu til setu í stjórn.

Stjórn Raunvísindastofnunar skiptir að öðru leyti með sér verkum.

6. gr.

Verkefni stjórnar RH og stjórna stofnana hennar.

Stjórn Raunvísindastofnunar ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar í heild gagnvart forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs.

Stjórn Raunvísindastofnunar ákveður skiptingu fjárveitinga í samræmi við vilja þeirra sem leggja starfseminni til fé, skv. 13. gr., og staðfestir reikninga liðins árs.

Stjórnir stofnana innan Raunvísindastofnunar semja rekstrar- og fjárhagsáætlun fyrir sína stofnun. Stjórn Raunvísindastofnunar ber ábyrgð á fjárhagsáætlun og uppgjöri gagnvart fjárveitendum og forseta fræðasviðs.

Stjórn Raunvísindastofnunar ráðstafar húsnæði því sem hún hefur til afnota til stofnana og sameiginlegra þarfa. Áætlanir um húsnæðisþörf og rannsóknaraðstöðu vegna starf­semi stofnunarinnar skulu lagðar fyrir forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs.

Stjórn Raunvísindastofnunar staðfestir nánari starfsreglur um stofnanafundi og önnur atriði sem varða einstakar stofnanir innan Raunvísindastofnunar.

Stjórn Raunvísindastofnunar stendur að útgáfu ársskýrslu stofnunarinnar.

Formaður stjórnar Raunvísindastofnunar kemur fram fyrir hönd hennar. Formenn stjórna einstakra stofnana eða stofa Raunvísindastofnunar koma fram fyrir hönd viðkomandi stofnunar eða stofu.

7. gr.

Fundir stjórnar Raunvísindastofnunar.

Formaður stjórnar Raunvísindastofnunar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með minnst þriggja daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundar. Formaður stýrir stjórnarfundum.

Skylt er að boða stjórnarfund óski einn eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef deildarforsetar aðildardeilda, sbr. 1. gr., forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs eða rektor bera fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum.

Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir for­manns­störfum.

Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana.

Afrit fundargerða skulu send forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs. Fundargerðir skulu varðveittar í skjalasafni Háskóla Íslands.

8. gr.

Starfsmannafundir Raunvísindastofnunar.

Formaður stjórnar Raunvísindastofnunar boðar til starfsmannafundar með minnst sjö daga fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundar. Formaður stjórnar stýrir starfsmannafundum.

Skylt er að boða til fundar ef forsetar aðildardeilda, forseti verkfræði- og náttúru­vísinda­sviðs, rektor eða þriðjungur þeirra, sem rétt eiga til fundarsetu, æskir þess. Rétt til setu á starfsmannafundi eiga allir starfsmenn stofnunarinnar. Starfsmenn skv. liðum a-d í 9. gr. hafa atkvæðisrétt en starfsmenn skv. e- og f-lið 9. gr. hafa málfrelsi og tillögurétt án atkvæðisréttar. Starfsmannafundur er ályktunarbær ef meiri­hluti atkvæðisbærra manna sækir fund.

Starfsmannafundir eru vettvangur stjórnarinnar til þess að kynna störf sín. Starfs­manna­fundir fjalla um sameiginleg málefni stofnunarinnar og gera tillögur til stjórnar um meðferð sameiginlegra málefna.

Fundargerðir skulu varðveittar í skjalasafni Háskóla Íslands.

9. gr.

Starfslið.

Starfslið Raunvísindastofnunar er:

a)

Sérfræðingar sem ráðnir eru til sjálfstæðra rannsókna.

b)

Kennarar við Háskóla Íslands sem veitt er rannsóknaraðstaða á stofnuninni.

c)

Háskólamenntaðir rannsóknarmenn sem lúta verkefnisstjórum við rann­sóknar­störf, norrænir styrkþegar, nýdoktorar, svo og sérfræðingar með rann­sóknar­stöðu­styrki.

d)

Annað starfslið, þar á meðal tæknimenntaðir starfsmenn og starfslið á skrifstofu.

e)

Doktors- og meistaranemar sem ráðnir eru eða veitt rannsóknaraðstaða á stofn­uninni.

f)

Starfslið sem ráðið er til skemmri tíma en eins árs.

g)

Gestir sem stofustjóri eða formaður stjórnar veita starfsaðstöðu um takmark­aðan tíma.

Um ráðningu starfsfólks fer eftir ákvæðum sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands. Forseti fræðasviðs setur nánari verklagsreglur um ráðningu starfsfólks.

10. gr.

Starfsskyldur.

Sérfræðingar, sem ráðnir eru til sjálfstæðra rannsókna, og kennarar við Háskóla Íslands, sem veitt er rannsóknaraðstaða á Raunvísindastofnun, njóta akademísks rannsóknar­frelsis.

Forseti fræðasviðs, í samráði við stjórn viðkomandi stofnunar, ákveður skiptingu starfs­skyldna milli rannsókna, stjórnunar og annarra starfa fyrir starfsmenn sína, sam­kvæmt ákvæðum sameiginlegra reglna nr. 605/2006 um starfsskyldur kennara og sérfræð­inga við Háskóla Íslands og skal skipting starfsskyldna koma fram í ráðningar­samningi. Ef við á skal tiltaka í ráðningarsamningi hve hátt hlutfall rannsóknar­skyldunnar eru þjónusturannsóknir á vegum stofnunar. Um þjónustu­rannsóknir gilda ekki ákvæði um rannsóknarfrelsi. Starfsmenn skv. a- og b-lið 9. gr. eru verkefnisstjórar. Þeir bera faglega ábyrgð á verkefnum sínum og fjárhagslega ábyrgð gagnvart stjórn stofnunar eða stofustjóra viðkomandi stofu, sé stofnun skipt með þeim hætti. Þegar sértekna er aflað skulu verkefnisstjórar, eftir því sem við á, gera skriflegan samning við kostunaraðila um skilgreiningu verkefnis, framvindu og greiðsluáætlun.

Óski verkefnaráðinn starfsmaður skv. c-lið 9. gr. eftir því að sækja um styrk til sjálfstæðra rannsókna með aðstöðu á stofnuninni, skal hann afla samþykkis stofustjóra og formanns stjórnar fyrir því.

Um kennslustörf sérfræðinga stofnunarinnar fer samkvæmt samningum stofnana Raun­vís­indastofnunar, að fengnu samþykki forseta fræðasviðs, við viðkomandi háskóla­deildir.

Starfsmönnum er óheimilt að skuldbinda stofu eða stofnun án samþykkis viðkomandi stofu­stjóra eða stjórnarformanns.

11. gr.

Dagleg stjórnun.

Daglegur rekstur Raunvísindastofnunar og einstakra stofnana hennar skal vera í höndum framkvæmdastjóra (skrifstofustjóra) sem forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs ræður að fenginni tillögu stjórnar stofnunarinnar. Forseti fræðasviðs setur framkvæmdastjóra erindisbréf að fenginni umsögn stjórnar RH þar sem nánar er kveðið á um verksvið hans. Framkvæmdastjóri á sæti á stjórnarfundum og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur stofnunarinnar samkvæmt erindisbréfi og sér um framkvæmd á þeim málum sem stjórnin felur honum. Framkvæmdastjóri er ábyrgur gagnvart stjórn RH og forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs í starfi sínu. Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands, sbr. 9. gr. reglna þessara. Verklagsreglur verkfræði- og náttúruvísindasviðs um rekstrar­málefni gilda einnig fyrir RH.

12. gr.

Stofustjórar og deildarstjórar.

Sé stofnun skipt í rannsóknarstofur skal stofustjóri vera fyrir faglegum málefnum hverrar þeirra. Stofustjóri ásamt varamanni er kjörinn í skriflegri kosningu til fjögurra ára í senn úr hópi verkefnisstjóra viðkomandi stofu. Kjörtímabil stofustjóra er hið sama og stjórnar RH. Falli atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða niðurstöðu kosningar.

Sé stofu skipt í deildir skal deildarstjóri kjörinn ásamt varamanni á sama hátt.

Stofustjóri hefur eftirlit með fjármálum stofu sinnar og er ábyrgur gagnvart stjórn stofnunarinnar í starfi sínu.

13. gr.

Fjármál og reikningshald.

Tekjur Raunvísindastofnunar Háskólans eru eftirfarandi:

a)

framlög úr ríkissjóði,

b)

framlag frá Háskóla Íslands skv. ákvörðun háskólaráðs,

c)

framlag frá verkfræði- og náttúruvísindasviði og aðildardeildum,

d)

fjárveitingar og styrkir til einstakra verkefna,

e)

greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,

f)

aðrar tekjur eða gjafir.

Reikningshald Raunvísindastofnunar er hluti af reikningshaldi Háskóla Íslands og lýtur reglum þess en skal vera aðgreint í bókhaldi. Fjárhagsáætlun og ársreikningur skulu borin undir forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs til staðfestingar.

Veiti Raunvísindastofnun þjónustu í frjálsri samkeppni við atvinnustarfsemi annarra aðila skal sú starfsemi afmörkuð frá öðrum rekstri. Gæta ber að þeim ákvæðum sam­keppnis­laga sem banna niðurgreiðslu samkeppnisrekstrar með opinberu fé.

Stjórn Raunvísindastofnunar ákveður bókhalds-, stjórnunar- og aðstöðugjald til stofn­unar­innar af sértekjum, innan ramma sameiginlegra reglna Háskóla Íslands.

14. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 27. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 398/2004 um Raunvísindastofnun Háskólans, með áorðnum breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Við gildistöku reglna þessara fellur niður umboð núverandi stjórnar Raunvísindastofnunar og ný stjórn skal skipuð.

Háskóla Íslands, 22. júní 2011.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 7. júlí 2011