Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 717/2009

Nr. 717/2009 19. ágúst 2009
AUGLÝSING
um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma.

Að tillögu Matvælastofnunar, skv. heimild í 12. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum, eru hér með settar svofelldar reglur um skiptingu varnarlína vegna sauðfjársjúkdóma:

1. gr.

Aðalvarnarlínur.

Aðalvarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:

 

1.

Sogslína:

Ölfusá og Sog í Þingvallavatn.

 

2.

Bláskógalína:

Úr Þingvallavatni um Ármannsfell í Hvalfjarðarlínu við Kvíg­indis­fell.

 

3.

Brúará:

Brúará.

 

4.

Hlíðarbæjarlína:

Frá Brúará um Fullsæl og Andarlæk um Múlanes í Tungu­fljót og Far í Hagavatn.

 

5.

Hvalfjarðarlína:

Úr Hvalfirði við Múlafjall um Hvalvatn að Kvígindisfelli að Matbrunnum við Uxahrygg í Hrúðurkarla við Þórisjökul.

 

6.

Snæfellslína:

Úr Skógarnesi um Ljósufjöll í Álftafjörð.

 

7.

Hvammsfjarðarlína:

Úr Hvammsfirði milli Þorbergsstaða og Hrútsstaða um Laxár­dalsheiði í Hrútafjörð sunnan Fjarðarhorns.

 

8.

Gilsfjarðarlína:

Úr Gilsfirði um Snartartungu í Bitrufjörð.

 

9.

Kollafjarðarlína:

Úr Kollafirði í Ísafjarðarbotn.

 

10.

Tvídægrulína:

Úr Hvammsfjarðarlínu við Skeggöxl um Kvíslavötn og Arnar­vatn stóra í Langjökul við Jökulstalla.

 

11.

Miðfjarðarlína:

Úr Miðfirði um Miðfjarðarvatn í Arnarvatn stóra.

 

12.

Vatnsneslína:

Úr Miðfjarðarvatni í Síðukrók við ósa Víðidalsár.

 

13.

Kjalarlína:

Milli Langjökuls og Hofsjökuls.

 

14.

Blöndulína:

Blanda.

 

15.

Héraðsvatnalína:

Héraðsvötn - Jökulsá eystri.

 

16.

Eyjafjarðarlína:

Eyjafjarðará sunnan Bringu að Sjónarfelli og að Miklafelli í Hofsjökli.

 

17.

Sprengisandslína:

Úr Miklafelli að Tungnafellsjökli og um Vonarskarð í Vatna­jökul.

 

18.

Skjálfandalína:

Skjálfandafljót - Fjórðungakvísl.

 

19.

Fjallalína:

Jökulsá á Fjöllum.

 

20.

Jökuldalslína:

Jökulsá á Dal.

 

21.

Lagarfljótslína:

Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljót.

 

22.

Hamarsfjarðarlína:

Hamarsá í Hamarsfirði í Þrándarjökul og þaðan í Vestur­dals­jökul.

 

23.

Breiðamerkursandslína:

Jökulsá á Breiðamerkursandi.

 

24.

Skeiðarársandslína:

Sandgígjukvísl.

 

25.

Tungnaárlína:

Frá Botnjökli í Mýrdalsjökli um Mælifellssand í Torfajökul, frá Hábarmi um Kirkjufellsvatn í Tungnaá og þaðan að Jökulgrindum í Vatnajökli.

 

26.

Markarfljótslína:

Markarfljót og Syðri-Emstruá.

 

27.

Þjórsárlína:

Þjórsá.

2. gr.

Aukavarnarlínur.

Aukavarnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma eru:

 

1.

Smjörfjallalína:

Um Smjörvatnsheiði og Smjörfjöll í Böðvarsdalsá og til sjávar.

 

2.

Hvítárlína:

Hvítá í Árnessýslu frá Hvítárvatni að Brúará.

3. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 155/1987 um varnarlínur sauðfjár­varnar­svæða. Auglýsingin tekur þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 19. ágúst 2009.

Jón Bjarnason.

Arnór Snæbjörnsson.

B deild - Útgáfud.: 21. ágúst 2009