1. gr. Í stað „263.548 kr.“ í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 272.113 kr. 2. gr. Í stað „167.176 kr.“ í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 172.609 kr. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 33. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2013. Velferðarráðuneytinu, 19. desember 2012. Guðbjartur Hannesson. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |