Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 621/2014

Nr. 621/2014 11. júní 2014
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1106/2012 um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuvarnaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

1. gr.

Heiti reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi:

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur áfengis- og vímuefnaráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

2. gr.

Í stað orðsins „vímuvarnaráðgjafi" í öllum föllum, eintölu og fleirtölu komi í samsvarandi falli og tölu: vímuefnaráðgjafi.

3. gr.

  1. Í stað orðsins „vímuvarnaráðgjöf“ í 1. tölul. 4. mgr. og 6. mgr. 3. gr. komi: vímu­efna­ráðgjöf.
  2. Í stað orðsins „vímuvarnameðferð“ í 1. tölul. 4. mgr. 3. gr. komi: vímuefna­meðferð.

4. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, öðlast gildi 1. júlí 2014.

Velferðarráðuneytinu, 11. júní 2014.

Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.

Margrét Björnsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. júní 2014