Með vísan til 1. mgr. 4 gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða atvinnu- og fjölbýlishúsin að Hringbraut 35 til 49 í Reykjavík. Friðunin nær til ytra byrðis húsanna. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 23. nóvember 2010. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |