Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 250/2010

Nr. 250/2010 8. mars 2010
SAMÞYKKT
um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar.

I. KAFLI

Um skipan sveitarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

Skipan bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn er skipuð 9 bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil.

Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Valdsvið bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn fer með stjórn Fjarðabyggðar samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið það öðrum.

4. gr.

Hlutverk bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins og vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa.

5. gr.

Verkefni bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og sam­þykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að bærinn taki að sér verkefni sem varða íbúa hans sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Helstu verkefni bæjarstjórnar.

Meðal verkefna bæjarstjórnar er:

  1. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla sveitarstjórnarlaga og IV. kafla samþykktar þessarar og skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga bæjarins skv. VI. kafla sveitar­stjórnarlaga. Ennfremur að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunar­fyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá bæjarfélaginu.
  2. Að setja samþykktir og reglur eftir því sem lög mæla fyrir um og æskilegt er til þess að stuðla að málefnalegri og vandaðri stjórnsýslu á vegum sveitarfélagsins.
  3. Að stuðla að því að sveitarfélagið veiti íbúum Fjarðabyggðar góða þjónustu, svo sem með því að staðfesta áætlanir og stefnumarkanir í einstökum málaflokkum.
  4. Að stjórna fjármálum bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja, skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga og VI. kafla samþykktar þessarar svo sem með ákvörðun um nýtingu tekjustofna sveitarfélagsins og setningu gjaldskráa.
  5. Að ákveða stjórnkerfi bæjarins, ráða bæjarstjóra og ákveða fyrirkomulag á ráðningum annarra starfsmanna bæjarins samkvæmt V. kafla sveitarstjórnarlaga og V. kafla samþykktar þessarar.
  6. Að vera vettvangur fyrir lýðræðislega umfjöllun um málefni bæjarins og stuðla að kynningu á stjórnsýslu, þjónustu og öðrum málefnum bæjarfélagsins.

II. KAFLI

Um fundarsköp bæjarstjórnar.

7. gr.

Fundartími bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi 1. og 3. fimmtudag hvers mánaðar, enda beri dagana ekki upp á helgidaga eða almenna frídaga. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.00. Frávik frá reglulegum fundardegi og venjulegum fundartíma skulu ákveðin af forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar og skylt er að halda aukafundi í bæjarstjórn, ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

Heimilt er að halda bæjarstjórnarfundi með síma- eða fjarfundabúnaði ef veður og færð hamla eðlilegum samgöngum. Slíka fundi má þó aðeins halda ef brýna nauðsyn ber til og ekki er hægt að fresta afgreiðslu þeirra mála sem á dagskrá fundarins eru að mati forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra. Tryggja skal almenningi aðgang að þessum fundum eins og um venjulegan bæjarstjórnarfund væri að ræða.

Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur fer bæjarráð með heimildir bæjarstjórnar.

8. gr.

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar.

Sá kjörni fulltrúi sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn kveður bæjarstjórnina saman til fyrsta fundar að afloknum bæjarstjórnarkosningum. Eigi fleiri bæjarfulltrúar en einn að baki jafnlanga setu í bæjarstjórn er það aldursforsetinn úr þeim hópi sem kveður til fundarins. Skal það gert eigi síðar en 15 dögum eftir að ný bæjarstjórn tekur við störfum að kosningum loknum og stýrir hlutaðeigandi fundi þar til forseti hefur verið kjörinn.

9. gr.

Boðun bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjóri, sbr. þó 8. gr. samþykktar þessarar, boðar bæjarstjórnarfundi samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það. Ákvörðun um boðun bæjarstjórnar skal jafnframt fela í sér með hvaða hætti boðun fer fram og á hvaða formi fundargögn eru send út.

10. gr.

Auglýsing funda.

Íbúum bæjarins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar bæjarins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni. Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur hún ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum bæjarins með tryggum hætti svo sem á heimasíðu sveitarfélagsins.

11. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta bæjarstjórnar og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og ráðningu bæjarstjóra og endur­skoðenda bæjarins.
  2. Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins.
  3. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tl., og þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
  4. Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri og/eða forseti bæjarstjórnar ákveða að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.

Bæjarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. fimm sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna, sem bæjarstjóri telur nauðsynleg.

12. gr.

Sending fundarboðs.

Bæjarstjóri skal í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund hafa sent bæjarfulltrúum fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum.

13. gr.

Boðun aukafunda

Bæjarstjóri skal senda bæjarfulltrúum fundarboð aukafundar í bæjarstjórn ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund. Heimilt er þó að boða aukafund með styttri fyrirvara ef aðkallandi mál bíður afgreiðslu, enda sé hann boðaður með dagskrá.

14. gr.

Kosning forseta og varaforseta bæjarstjórnar.

Sá kjörni fulltrúi í bæjarstjórninni sem á þar lengsta setu setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn.

Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn, skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný. Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður frá forsetastörfum skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils forseta.

Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta bæjarfulltrúa. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal draga um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal draga um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn, skal hlutkesti ráða kosningu.

Forseti bæjarstjórnar stjórnar kjöri 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. næstu málsgrein hér að framan. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti. Sé enginn forseta á fundi, gegnir aldursforseti forsetastörfum nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

15. gr.

Kjör skrifara.

Bæjarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu kosnir hlutfallskosningu. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn.

16. gr.

Opinn eða lokaður fundur.

Bæjarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og er almenningi heimill aðgangur að þeim, eftir því sem húsrúm leyfir. Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum s.s. viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál. Jafnframt getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarstjórnarfundur, þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn. Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.

17. gr.

Lögmæti bæjarstjórnarfunda.

Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er á fundi. Bæjarstjórn getur enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lögmætur.

18. gr.

Fundarstjórn.

Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans og stjórnar umræðum og afgreiðslu mála, sér um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd.

Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um, að allt fari skipulega og löglega fram á bæjar­stjórnar­fundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundar­sköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundar­sal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnar­fundum.

19. gr.

Afgreiðsla dagskrármála á fundi.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá, nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál, sem ekki hefur verið á dagskrá, ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slík afbrigði.

20. gr.

Afgreiðsla mála, tvær umræður.

Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlun bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
  2. Ársreikninga bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
  3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir sem gilda til lengri tíma en árs, s.s. þriggja ára áætlanir, framkvæmda­áætlanir og skipulagsáætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga samkvæmt 75. gr. sveitarstjórnarlaga.

21. gr.

Fundarsókn, varamenn.

Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann boða varamann sinn á fund og jafnframt tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir ef aðalfulltrúar þess lista sem þeir eru kosnir af falla frá, flytjast burtu eða forfallast varanlega á annan hátt eða um stundarsakir, sbr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

22. gr.

Vanhæfi bæjarfulltrúa.

Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Bæjarfulltrúi er vanhæfur til meðferðar máls:

  1. Ef hann er aðili máls, fyrirsvarsmaður eða umboðsmaður aðila.
  2. Ef hann er eða hefur verið maki aðila, er skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum legg til hliðar eða tengdur aðila, með sama hætti vegna ætt­leiðingar.
  3. Ef hann tengist fyrirsvarsmanni eða umboðsmanni aðila með þeim hætti sem segir í 2. tölulið.
  4. Ef mál er kært til úrskurðar bæjarstjórnar, nefndar eða ráðs og hlutaðeigandi hefur áður átt aðkomu að málinu, sbr. þó 1. mgr. 23. gr. samþykktar þessarar.
  5. Ef mál varðar hann sjálfan verulega, venslamenn hans samkvæmt 2. tölulið, næstu yfirmenn persónulega eða stofnun eða fyrirtæki í einkaeign sem hann er í fyrirsvari fyrir.
  6. Ef hann er jafnframt starfsmaður Fjarðabyggðar og hefur sem slíkur átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórn er hann vanhæfur þegar bæjarstjórn fjallar um málið. Þessi töluliður á ekki við þegar bæjarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga Fjarðabyggðar og á ekki við um störf bæjarstjóra.
  7. Ef að öðru leyti eru fyrir hendi aðstæður sem fallnar eru til þess að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu.

23. gr.

Hvað veldur ekki vanhæfi.

Þrátt fyrir ákvæði 22. gr. er bæjarfulltrúi ekki vanhæfur þegar:

  1. Hann hefur sem nefndarmaður komið að ákvörðun nefndar, ráðs eða stjórnar innan stjórnkerfis Fjarðabyggðar.
  2. Valdir eru fulltrúar til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnar eða þóknun fyrir slík störf er ákveðin.
  3. Ef engin hætta er talin á að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á ákvörðun þar sem hagsmunir eru það smávægilegir eða þáttur bæjarfulltrúans í meðferð málsins er lítilvægur.

24. gr.

Meðferð máls um vanhæfi.

Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæða­greiðslu um hæfi sitt.

Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

Í fundargerð skal gera grein fyrir atkvæðagreiðslu um vanhæfi og að vanhæfur fundar­maður víki af fundi.

25. gr.

Fundarsköp, málfrelsi.

Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjar­fulltrúi sem taka vill til máls, skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjar­fulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjar­fulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjar­fulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis, ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarstjórn getur heimilað að maður utan bæjarstjórnar geri grein fyrir máli á bæjarstjórnar­fundi.

26. gr.

Fundarsköp, takmarkanir á málfrelsi.

Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta. Þegar til umræðu er fundargerð bæjarráðs, annarra nefnda, ráða eða stjórna skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða lið/liði fundar­gerðarinnar hann óskar að ræða.

Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við umræðu um hvern dagskrárlið. Heimilt er þó bæjar­fulltrúa að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athuga­semd við fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögu­maður mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Ef bæjarfulltrúi vill beina fyrirspurn til bæjarstjóra skal hann að jafnaði hafa hana skriflega og afhenda með sama fyrirvara og um tillögu sé að ræða, sbr. 11. gr. samþykktar þessarar. Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.

27. gr.

Fundarsköp, vítur á bæjarfulltrúa.

Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum, skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn, að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

28. gr.

Fundarsköp, takmarkanir á ræðutíma.

Telji forseti umræður dragast úr hófi fram, getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir, ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

29. gr.

Fundarsköp, meðferð tillagna.

Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.

30. gr.

Fundarsköp, afgreiðsla mála.

Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða, verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál, sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

31. gr.

Fundarsköp, atkvæðagreiðsla og kosningar.

Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæða­greiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athuga­semd verði við það gerð.

Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.

32. gr.

Fundarsköp, úrslit mála.

Við atkvæðagreiðslu ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum máls nema öðruvísi sé ákveðið í lögum. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.

Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar samkvæmt d´Hondts reglu sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna.

Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kosningu eins fulltrúa úr hópi margra, skal kosning fara fram með sama hætti og kosning forseta bæjarstjórnar sbr. 14. gr. þessarar samþykktar.

Kosningar skulu vera skriflegar og leynilegar nema bæjarstjórn ákveði annað.

33. gr.

Fundarritun og fundargerð.

Bæjarstjórn ræður fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast undirbúning funda og ritun fundargerða bæjarstjórnar. Í fundargerð skal getið:

hvar og hvenær fundur er haldinn;
hverjir sitja fundinn;
einstakra mála sem tekin eru fyrir, dagsetningar þeirra og aðila máls;
meginefnis máls, hvaða gögn eru lögð fram á fundi og hvenær þau eru dagsett;
tillagna um afgreiðslu máls;
hvernig mál er afgreitt;
helstu forsendna fyrir ákvörðun ef um stjórnsýsluákvörðun er að ræða og upplýsingar um þær er ekki að finna í framlögðum gögnum;
hvernig atkvæði hafa fallið, ef mál er ekki afgreitt samhljóða.

Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda, nægir að skrá um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningar fundargerða, fjölda töluliða og hverjir taka til máls. Ályktana eða samþykkta í fundargerðum nefnda sem þarfnast staðfestingar bæjarstjórnar, skal geta sem sérstaks dagskrárliðar, sbr. 3. tl. 11. gr.

Bæjarfulltrúi á rétt á að bóka stutta athugasemd um afstöðu sína til máls fyrir bæjarstjórn. Athugasemd skal lögð fram skriflega.

Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi sbr. 16. gr. samþykktar þessarar skal skrá sem trúnaðarmál.

Fundargerðir skulu skráðar í tölvu nema annað sé ákveðið sérstaklega. Í gerðabók bæjarstjórnar skal jafnframt bóka númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða, sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð.

Forseti skal hafa eftirlit með því, að fundargerðir séu skipulega og rétt færðar. Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir bæjarfulltrúar undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað. Einnig skal forseti bæjarstjórnar og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerðar. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu. Sé símafundur haldinn undirrita þeir sem ekki voru viðstaddir á bæjarskrifstofu fundargerð á næsta fundi bæjarstjórnar.

Bæjarfulltrúi, sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð, getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði. Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum skuli hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið, skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa.

34. gr.

Fundarseta.

Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli sbr. 21. gr. samþykktar þessarar. Hver bæjarfulltrúi, aðal- eða varafulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnar, s.s. forsetastörf og störf í bæjarráði eða öðrum nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða öðru ráði eða nefnd sama tímabil, skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

35. gr.

Lausn úr bæjarstjórn.

Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórn án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Missi bæjarfulltrúi kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórn, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

36. gr.

Málfrelsi, tillöguréttur, atkvæðisréttur.

Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

Bæjarfulltrúi á rétt á að fá mál samkvæmt 4. tl. 11. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar, enda tilkynni hann það bæjarstjóra skriflega a.m.k. fimm sólarhringum fyrir fund. Bæjarfulltrúa er ekki skylt að greiða atkvæði um einstök mál en hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Þegar um er að ræða mál, sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða s.s. fjárhagsáætlun eða ársreikningur eða kjör fulltrúa í lögboðin ráð og nefndir getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef meira en helmingur bæjarfulltrúa situr hjá við atkvæðagreiðsluna.

37. gr.

Hagsmunir bæjarins.

Bæjarfulltrúa ber að gegna bæjarfulltrúastörfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarins en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

38. gr.

Aðgangur að upplýsingum.

Bæjarfulltrúi á aðgang að bókum, skjölum og öðrum gögnum bæjarins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna. Beiðnir um upplýsingar og aðgang að gögnum beinast til bæjarstjóra eða staðgengils hans.

39. gr.

Þagnarskylda.

Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum, eðli máls eða sérstakri ákvörðun bæjarstjórnar. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarstjórnar­maður lætur af þeim störfum.

40. gr.

Þóknun.

Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.

Ef um langan veg er að fara milli heimilis bæjarfulltrúa og fundarstaðar bæjarstjórnar getur bæjarstjórn auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna ferða­kostnaðar.

Bæjarstjórn setur reglur um greiðslur samkvæmt ákvæði þessu.

41. gr.

Orlof og fundartími.

Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega, sbr. 7. gr. samþykktar þessarar.

42. gr.

Varamenn.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn sem sitja bæjarstjórnarfundi.

IV. KAFLI

Bæjarráð, ráð, aðrar nefndir og stjórnir.

43. gr.

Kosning í bæjarráð.

Bæjarstjórn skal á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs. Kosningar í bæjarráð síðar á kjörtímabilinu skulu fara fram í júní ár hvert.

Varamenn í bæjarráði eru þeir aðal- og varafulltrúar sem kosningu hafa hlotið af sama framboðslista og hinn kjörni bæjarráðsmaður í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Aðalfulltrúar í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð.

Flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn en hefur ekki fengið kjörinn bæjarráðsmann er heimilt að tilnefna fulltrúa og einn varafulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt.

44. gr.

Kosning í aðrar nefndir, ráð og stjórnir – kjörgengi.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar, bundnar hlutfalls­kosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess.

Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir á vegum Fjarðabyggðar sem kosn­ingarétt eiga í sveitarfélaginu.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá. Bæjarstjórn getur ákveðið að víkja frá þessu ákvæði ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starf viðkomandi einstaklings er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum þrátt fyrir nefndarsetu.

45. gr.

Fundartími bæjarráðs og annarra nefnda.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fundi vikulega á reglulegum fundartímum. Aukafund skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess. Aðrar nefndir, ráð eða stjórnir ákveða sjálfar fundartíma. Heimilt er að halda fund með síma- eða fjarfundabúnaði.

46. gr.

Undirbúningur og boðun bæjarráðsfunda.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með dagskrá tveimur sólarhringum fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann boða varamann sinn eða hlutast til um að varamaður verði boðaður. Bæjarráð ákveður form boðunar og nánara fyrirkomulag dreifingar fundargagna.

47. gr.

Kosning formanns og varaformanns bæjarráðs.

Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs. Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum, sem upp kunna að koma út af fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilkynnt í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmaður óskar þess. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs.

48. gr.

Hlutverk bæjarráðs.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarins, fjármálastjórn og starfsmannastjórn, að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarins. Bæjarráð hefur umsjón með undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, undirbýr frumvarp að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og bæjarfyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir séu ásamt ársreikningum bæjarfyrirtækja lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu eins og sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

Undir bæjarráð heyra brunamál sem og önnur mál A-hluta stofnana og B-hluta fyrirtækja sem ekki eru falin öðrum í samþykkt þessari eða öðrum samþykktum bæjarstjórnar. Auk þess hefur bæjarráð með höndum vinabæjasamskipti, atvinnu- og kynningarmál.

Bæjarráð ákveður skiptingu rekstrarfjármuna til einstakra málaflokka samkvæmt frumvarpi að fjárhagsáætlun. Mannvirkjanefnd gerir tillögu til bæjarráðs um forgangs­röðun framkvæmda svo sem um gatnagerð og nýbyggingar.

Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála, sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála, sem ekki varða verulega fjár­hag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Bæjarráð skal hafa til viðmiðunar að stefnu­markandi og fordæmisgefandi málefni séu afgreidd með fullnaðarákvörðun bæjar­stjórnar ef ekki liggja fyrir reglur, samþykktir, stefnumörkun eða áætlanir staðfestar af bæjarstjórn.

Bæjarstjórn getur falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli fyrir á annan veg.

Heimilt er að bóka einstök mál sem tekin eru fyrir í bæjarráði í sérstaka trúnaðarbók, svo sem ef um er að ræða viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál. Til viðmiðunar um hvenær það getur átt við skal litið til upplýsingalaga nr. 50/1996.

49. gr.

Starfsmenn á fundi bæjarráðs.

Starfsmönnum bæjarins er skylt að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað.

50. gr.

Kjör formanna og varaformanna nefnda, ráða og stjórna.

Bæjarstjórn kýs nefndum formann og varaformann. Ritari nefndar skal valinn úr hópi starfsmanna hlutaðeigandi málaflokks og ber hann ásamt formanni ábyrgð á undirbúningi nefndarfunda. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.

51. gr.

Fundarseta í nefndum.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

52. gr.

Lokaðir fundir.

Fundir í ráðum og nefndum skulu haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins. Ennfremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

53. gr.

Fundarstjórn og málsmeðferð.

Formaður nefndar stýrir fundum.

Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarins, eftir því sem við á.

54. gr.

Hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum bæjarstjórnar.

Heimilt er bæjarstjórn að sameina nefndir þannig að ein nefnd fari með verkefni á fleiri en einu sviði.

55. gr.

Fullnaðarafgreiðsla.

Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðri málsmeðferð getur bæjarstjórn ákveðið með viðauka við samþykkt þessa að fela nefnd, ráði eða stjórn fullnaðar­afgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs ef lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því, sbr. viðauka nr. 1.0 – 7.0, sem birtir eru með samþykkt þessarari.

Á sama hátt og með sömu skilyrðum er bæjarstjórn heimilt að fela embættismönnum innan stjórnsýslu Fjarðabyggðar fullnaðarafgreiðslu mála, sbr. viðauka nr. 8.0, sem birtur er með samþykkt þessari.

Bæjarstjórn, bæjarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt 1. og 2. mgr. og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.

Sá aðili sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu samkvæmt 2. mgr., eða þriðjungur fulltrúa ef um nefnd, ráð eða stjórn er að ræða, samanber 1. mgr., getur ávallt óskað eftir því að bæjarstjórn, bæjarráð eða viðkomandi nefnd samkvæmt samþykktum um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar taki ákvörðun í máli.

Þegar bæjarstjórn neytir heimildar samkvæmt 1. eða 2. mgr. skal jafnframt kveðið á um það hvernig fara skuli með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.

Heimildir nefnda, ráða og stjórna til fullnaðarafgreiðslu mála eru háðar því að samþykktir þeirra sem hafa í för með sér útgjöld séu innan heimilda í fjárhagsáætlun fyrir við­komandi málaflokk.

56. gr.

Fundargerðabækur.

Nefndir, ráð og stjórnir bæjarins skulu halda fundargerðir og gerðabækur. Nefndir eiga aðgang að fundarritara úr hópi starfsmanna hlutaðeigandi málaflokks. Skráning fundar­gerða skal fara fram í samræmi við 33. gr. samþykktar þessar. Í fundarlok skal fundar­gerð lesin upp og allir viðstaddir nefndarmenn undirrita hana. Sé fjarfundur haldinn undir­rita þeir sem ekki voru viðstaddir á fundinum á bæjarskrifstofu fundargerð á næsta fundi. Þegar nefnd tekur stjórnsýsluákvörðun á grundvelli heimildar til fullnaðar­afgreiðslu, sbr. 55. gr. samþykktar þessarar, skal þess getið í fundargerð.

57. gr.

Afgreiðsla fundargerða nefnda, ráða og stjórna.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir næsta fund bæjarráðs og því næst fyrir bæjarstjórn ásamt fundargerðum bæjarráðs.

Afgreiðsla bæjarráðs á fundargerðum nefnda og einstökum samþykktum nefnda skal taka mið af hlutverki bæjarráðsins samkvæmt 48. gr., svo sem almennu umsjónar­hlutverki þess með stjórnsýslu Fjarðabyggðar og fjárstjórn bæjarfélagsins sérstak­lega. Í öðrum tilvikum en þegar nefnd hefur afgreitt mál með fullnaðarafgreiðslu, getur bæjarráð staðfest samþykkt nefndar í samræmi við ákvæði 3. mgr. 48. gr. Þegar bæjarráð tekur einstakar samþykktir nefnda til umfjöllunar getur ráðið jafnframt vísað máli til frekari umfjöllunar í stjórnkerfi sveitarfélagsins eða gert sérstakar tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu á grundvelli hlutverks ráðsins, skv. 48. gr. Hafi samþykkt nefndar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal bæjarráð ávallt gera tillögu til bæjarstjórnar um afgreiðslu, nema ráðið taki fullnaðarákvörðun í málinu og hafi þá jafnframt fjárheimildir sem veitt er til viðkomandi málaflokks.

Bæjarstjórn tekur fundargerðir nefnda til almennrar umfjöllunar. Að því marki sem fullnaðarákvörðun hefur ekki þegar verið tekin í máli og ákvörðun þarfnast sérstakrar staðfestingar, afgreiðir bæjarstjórn samþykktir bæjarráðs og nefnda, m.a. með tilliti til umfjöllunar bæjarráðs um málið. Slík mál skulu sérstaklega tilgreind á dagskrá bæjar­stjórnarfunda, sbr. 3. tl. 11. gr.

Fundargerðir nefnda sem starfa í umboði fagnefndar, skulu lagðar fyrir viðkomandi nefnd áður en afgreiðsla þeirra samkvæmt 1. mgr. á sér stað.

58. gr.

Nefndir, ráð, stjórnir, embættismenn: Tilnefningar, skipanir og kosningar.

A. Nefndir og stjórnir. Hér er um að ræða fagnefndir og stjórnir sem sinna faglegu starfi á grundvelli sérstakra samþykkta sem staðfestar eru í bæjarstjórn. Kjörtímabil nefndanna er hið sama og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann við kosningu nefndar. Bæjarstjórn ákveður verkefni þeirra með nánari samþykkt, í samræmi við lög og reglur sem um störf þeirra gilda.

Fagnefndir undirbúa stefnumörkun í málefnum sem þeim eru falin. Nefndirnar hafa umsjón með verkefnum sem falla undir verksvið þeirra og að framkvæmd þeirra samræmist stefnumörkun bæjarstjórnar í viðkomandi málaflokki og sé innan heimilda í fjárhagsáætlun. Við undirbúning ákvarðana og önnur störf nefnda skulu þær njóta faglegs stuðning frá starfsmönnum þannig að ákvarðanir stjórnkerfis Fjarðabyggðar uppfylli kröfur laga og séu í samræmi við góða stjórnsýsluhætti.

Bæjarstjórn kýs í eftirtaldar nefndir, ráð og stjórnir:

a-hluti - skipan til eins árs.

  1. Bæjarráð. Kjósa skal í bæjarráð í samræmi við 43. gr. samþykktar þessarar.

b-hluti - skipan til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar.

  1. Félagsmálanefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í félagsmála­nefnd. Hlutverk og verkefni félagsmálanefndar eru ákveðin í sérstakri samþykkt en hún fer m.a. með undirbúning stefnumótunar og verkefni barnaverndarnefndar, jafnréttisnefndar, áfengisvarnarnefndar, húsnæðisnefndar, hefur umsjón með daggæslu í heimahúsum, framkvæmd laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, málefni fatlaðra og málefni aldraðra.
  2. Fræðslunefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í fræðslunefnd. Hlutverk og verkefni fræðslunefndar eru ákveðin í sérstakri samþykkt en hún fer m.a. með undirbúning stefnumótunar og málefni leikskóla samkvæmt leikskóla­lögum, grunnskóla samkvæmt grunnskólalögum, tónskóla samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónskóla og framhaldsskóla samkvæmt ákvæðum framhaldsskólalaga og samstarfssamninga sem um rekstur framhalds­skóla gilda hverju sinni.
  3. Hafnarstjórn. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í hafnarstjórn samkvæmt lögum um hafnamál. Hlutverk og verkefni hafnarstjórnar eru lögbundin en jafnframt ákveðin í sérstakri samþykkt sem bæjarstjórn setur um störf hennar.
  4. Mannvirkjanefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í mannvirkjanefnd. Hlutverk og verkefni mannvirkjanefndar eru ákveðin í sérstakri samþykkt en hún fer m.a. með málefni eignasjóðs, veitna, þjónustumiðstöðvar og tækjamiðstöðvar og umferðar- og umferðaröryggismál. Hún sér um nýbygg­ingarverkefni og hönnunar- og byggingarstjórn og gerir tillögur um forgangs­röðun nýframkvæmda og viðhaldsáætlanir bæjarins.
  5. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd. Hlutverk og verkefni nefndarinnar eru ákveðin í sérstakri samþykkt en hún fer m.a. með undirbúning stefnumótunar í tómstunda- og ferðamálum. Nefndin ber ábyrgð á safnamálum, æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarfi, málefnum ferðaþjónustunnar sem atvinnu­greinar, menningarviðburðum og hátíðum sem og menningarmálum í víðustum skilningi. Hún er bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra minja skv. þjóðminjalögum.
  6. Umhverfis- og skipulagsnefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í umhverfis- og skipulagsnefnd sem fer með verkefni byggingar- og skipulags­nefndar. Hlutverk og verkefni umhverfis- og skipulagsnefndar eru ákveðin í sérstakri samþykkt en hún fer m.a. með undirbúning stefnumótunar og sinnir lögbundnum verkefnum skipulags- og byggingarnefnda, gróðurverndar­nefndar samkvæmt lögum um landgræðslu og náttúruverndar­nefndar samkvæmt náttúruverndarlögum. Nefndin fer með landbúnaðar-, búfjárhalds- og hreinlætismál og málefni tengd meðhöndlun úrgangs. Nefndin skal í störfum sínum huga að ferlimálum fatlaðra samkvæmt lögum þar um.
  7. Öldrunarþjónustunefnd. Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í öldrunarþjónustunefnd. Hlutverk og verkefni öldrunarþjónustunefndar eru ákveðin í sérstakri samþykkt en hún fer m.a. með undirbúning stefnumótunar í öldrunarmálum, tengsl við heilbrigðisstofnanir og eftirlit og stjórnun með dvalar- og hjúkrunarheimilum sem rekin eru á ábyrgð bæjarins.
  8. Ungmennaráð. Ungmennaráð skal starfa í samræmi við ákvæði 11. gr. æskulýðs­laga nr. 70/2007. Hlutverk þess er m.a. að vera bæjarstjórninni til ráð­gjafar um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu. Menningar-, íþrótta- og ferðamála­nefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar um verklagsreglur varðandi val í ungmenna­ráðið og verkefni þess.
  9. Landbúnaðarnefnd. Landbúnaðarnefnd skal fjalla um fjallskilamál, búfjáreftirlit og girðingamál í umboði umhverfis- og skipulagsnefndar. Í landbúnaðarnefnd sitja fimm fulltrúar kosnir af umhverfis- og skipulags­nefnd. Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar að samþykkt um hlutverk og verkefni landbúnaðar­nefndar.
  10. Kjörstjórnir. Bæjarstjórn kýs þrjá fulltrúa og jafnmarga til vara í yfirkjörstjórn, samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna og lögum um kosningar til Alþingis. Kjörstjórn kýs sér oddvita og ritara úr sínum hópi. Ennfremur kýs bæjarstjórn undirkjörstjórnir jafnmargar og kjördeildir eru sem skipaðar eru þremur aðalmönnum og þremur varamönnum. Kjörstjórnir fara með þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt ákvæðum laga um kosningar til sveitarstjórna og lögum um kosningar til Alþingis.

B. Stjórnir og samstarfsnefndir. Hér er um að ræða stjórnir stofnana með sjálf­stæðan fjárhag og tilnefningar í samstarfsnefndir sem hafa endanlegt ákvörðunar­vald í málefnum sínum, þ.e. þurfa ekki staðfestingu bæjarstjórnar til að koma málum í framkvæmd. Kjörtímabil þeirra er hið sama og bæjarstjórnar nema kveðið sé á um annað í lögum.

  1. Almannavarnanefnd. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í almannavarnanefnd á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar. Skipan í almannavarnanefnd er samkvæmt samþykkt um skipan almannavarnarmála í Fjarðabyggð.
  2. Stjórn Náttúrustofu Austurlands. Bæjarráð skipar einn aðalfulltrúa og annan til vara í þriggja manna stjórn Náttúrustofu Austurlands. Þá velur bæjarráð stjórninni formann í samráði við bæjarráð Fljótsdalshéraðs. Náttúrustofan starfar samkvæmt ákvæðum laga og reglugerða um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
  3. Stjórn Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar. Bæjarstjórn skipar einn fulltrúa og annan til vara í stjórn Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar að fenginni tilnefningu menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar.
  4. Starfskjaranefndir. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í starfskjaranefndir eftir ákvæðum kjarasamninga og samþykkta frá launanefnd sveitarfélaga.
  5. Stjórn Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar. Samkvæmt ákvæðum reglugerðar um Lífeyris­sjóð Neskaupstaðar skipar bæjarstjórn einn aðalfulltrúa og annan til vara í stjórn sjóðsins.
  6. Þjónustuhópur aldraðra. Eftir tilnefningu öldrunarþjónustunefndar skipar bæjar­stjórn tvo fulltrúa í þjónustuhóp aldraðra.

C. Tilnefningar og kosningar. Kosnir fulltrúar á ársþing og ársfundi stofnana sem bærinn á aðild að. Kjörtímabil þeirra er hið sama og bæjarstjórnar nema kveðið sé á um annað og skal kosning fara fram á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar eða í júní ár hvert vegna þeirra tilnefninga sem gilda skemur.

a. kosnir af bæjarstjórn.

  1. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt lögum um Samband íslenskra sveitarfélaga kýs bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa á landsþing sambands­ins.
  2. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Bæjarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands.
  3. Samband sveitarfélaga á Austurlandi. Bæjarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa á aðalfund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi samkvæmt lögum sambandsins. Fulltrúar bæjarfélagsins eru fyrst kosnir á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og síðan í júní ár hvert vegna næstkomandi aðalfundar.

b. tilnefningar staðfestar af bæjarstjórn.

  1. Fulltrúaráð Skólaskrifstofu Austurlands. Samkvæmt stofnsamningi Skólaskrifstofu Austurlands og eftir tilnefningu fræðslunefndar skipar bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa í fulltrúaráð og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
  2. Fulltrúaráð Héraðsskjalasafns Austfirðinga. Samkvæmt stofnsamningi Héraðs­skjalasafns Austfirðinga og eftir tilnefningu menningar-, íþrótta- og ferðamála­nefndar skipar bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa í fulltrúaráð safnsins og er kjör­tímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
  3. Menningarráð Austurlands. Bæjarstjórn kýs fulltrúa á aðalfund og jafnmarga til vara, samkvæmt samþykktum ráðsins, að fenginni tillögu menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar.
  4. Stjórn Sjóminjasafns Austurlands. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í stjórn Sjóminja­safns Austurlands samkvæmt stofnsamningi þess og eftir tilnefningu menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar.
  5. Stjórn Smiðju- og sjóminjasafns Jósafats Hinrikssonar. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í stjórn safnsins samkvæmt stofnsamningi þess og eftir tilnefningu menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar.

D. Samkvæmt lögum skal bæjarstjórn kjósa í eftirtalin verkefni:

  1. Skoðunarmenn bæjarsjóðsreikninga. Bæjarstjórn kýs tvo skoðunarmenn og jafnmarga til vara, samkvæmt 69. gr. sveitarstjórnarlaga. Skoðunarmenn bæjarsjóðsreikninga eru kosnir á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar til loka kjörtímabils bæjarstjórnar.
  2. Fjallskilastjórar. Bæjarstjórn kýs fjallskilastjóra eftir tilnefningu landbúnaðar­nefndar, samanber ákvæði fjallskilasamþykktar fyrir Múlasýslur.

E. Verkefnabundnar nefndir. Bæjarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnar eða fyrr ef verki nefndar er lokið. Bæjarstjórn getur afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.

V. KAFLI

Um framkvæmdastjórn og starfslið bæjarins.

59. gr.

Ráðning bæjarstjóra.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans og kaup og kjör. Ráðningar­samningur skal staðfestur af bæjarstjórn.

60. gr.

Hlutverk bæjarstjóra.

Bæjarstjóri er framkvæmdarstjóri bæjarins. Hann undirbýr fundi bæjarráðs og bæjar­stjórnar, semur dagskrá og boðar til funda sbr. 9. gr. samþykktar þessarar. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt, þ.m.t. rétt til bókana, en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarins með sömu réttindum.

Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og bæjarmálefna að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki ákveðið annað.

Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs, hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarins, lántökur og aðrar skuldbindingar hans. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarráðs að veita stjórnendum fyrirtækja og stofnana prókúru.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarins. Forstöðumaður mannauðs- og upp­lýs­ingatæknimála er staðgengill bæjarstjóra.

61. gr.

Ráðning stjórnenda.

Bæjarráð ræður starfsmenn í þær stjórnunarstöður sem heyra beint undir bæjarstjóra samkvæmt skipuriti bæjarins að fenginni tillögu bæjarstjóra. Sama á við um yfirmenn stofnana og fyrirtækja í eigu bæjarins.

62. gr.

Ráðning annarra starfsmanna.

Forstöðumenn og stjórnendur bæjarins ráða aðra starfsmenn.

63. gr.

Réttindi og skyldur.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarins fer eftir ákvæðum kjara­samninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga, reglum um ábyrgðar­mörk, starfsmannastefnu, starfsskyldum stjórnenda og jafnréttisáætlun.

VI. KAFLI

Um fjármálastjórn bæjarfélagsins.

64. gr.

Afgreiðsla fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn skal afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, bæjarfyrirtækja og stofnana fyrir lok desembermánaðar ár hvert að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn sbr. 20. gr. samþykktar þessarar. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun samkvæmt 1. mgr. skal bæjarstjórn sækja skriflega um frest til ráðuneytis sveitarstjórnarmála og tilgreina ástæðu fyrir umsókninni.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreikninga bæjarins og skal þar greint á milli rekstraráætlunar, fjárfestingaráætlunar og áætlunar um fjármagns­hreyfingar.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármagns á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsárs og áætla fyrir þeim breytingum, sem nauðsynlegt er talið að gera á fjárhagslegri stöðu.

Bæjarstjórn skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld bæjarins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum hans.

Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar. Sama á við um breytta eða endurskoðaða áætlun samkvæmt 62. gr. sveitarstjórnarlaga.

65. gr.

Um fjárveitingar og útgreiðslur.

Fjárhagsáætlun samkvæmt 64. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöld séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórn.

Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar, skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda s.s. með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

66. gr.

Endurskoðun fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn er heimilt að endurskoða fjárhagsáætlun. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu í bæjarstjórn, enda hafi breytingatillögurnar verið sendar bæjarfulltrúum með fundarboði og dagskrá fyrir fund bæjarstjórnar.

67. gr.

Þriggja ára áætlun.

Árlega skal bæjarstjórn semja þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarins. Áætlunin skal vera rammi árlegrar fjárhagsáætlunar bæjarins og skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu fjárhagsáætlunar. Áætlunina skal senda til ráðuneytis sveitarstjórnarmála strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar.

68. gr.

Afgreiðsla ársreikninga.

Ársreikningar bæjarins skulu fullgerðir, endurskoðaðir og tilbúnir til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar ár hvert samkvæmt 72. gr. sveitarstjórnarlaga, samanber 67. gr. sömu laga.

Bæjarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endur­skoðenda og skoðunarmanna.

Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikningana.

Eintak af ársreikningum skal senda Hagstofu Íslands og ráðuneyti sveitarstjórnarmála fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna. Viðurlög skv. 4. mgr. 72. gr. sveitarstjórnarlaga liggja við vanrækslu bæjarstjórnar á afgreiðslu og skilum ársreikninga.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. gr. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 808/2006.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. mars 2010.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 24. mars 2010