Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 682/2010

Nr. 682/2010 18. ágúst 2010
SAMÞYKKT
um stjórn og fundarsköp Djúpavogshrepps.

I. KAFLI

Um skipan sveitarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

Sveitarstjórn Djúpavogshrepps er skipuð fimm sveitarstjórnarmönnum kjörnum sam­kvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitar­stjórnar­laga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil sveitarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar út kjörtímabilið.

3. gr.

Sveitarstjórn fer með stjórn Djúpavogshrepps samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer sveitarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Sveitarstjórn skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.

5. gr.

Sveitarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og sam­þykktum.

Þá getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Meðal verkefna sveitarstjórnar Djúpavogshrepps er:

  1. Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara árs­reikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunar­fyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu, stofnunum þess og fyrirtækjum.
  2. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins og ráða sveitarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, sbr. 54., 56., 57. og 58. gr.
  3. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarstjórnar, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitarfélagsins reglur, m.a. um ábyrgðarmörk nefnda, kjörinna fulltrúa og embættismanna, gjaldskrár o.þ.h. eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  4. Að gera fjárhagsáætlanir og starfsáætlanir, sem eru stefnumótandi fyrir deildir og stofnanir.
  5. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga og VI. kafla samþykktar þessarar. Sveitarstjórn tekur ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.

II. KAFLI

Um fundarsköp sveitarstjórnar.

7. gr.

Sveitarstjórn heldur reglulega fundi einu sinni í hverjum mánuði, annan fimmtudag hvers mánaðar, í fundarsal sveitarstjórnar. Sveitarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 15.00. Heimilt er að fella niður fundi í sveitarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Þá getur sveitarstjóri í samráði við oddvita ákveðið að fella niður einstaka fundi, þegar sérstaklega stendur á.

Aukafundi skal halda í sveitarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati oddvita og sveitar­stjóra og skylt er að halda aukafundi í sveitarstjórn ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnar­manna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

8. gr.

Sá kjörinn fulltrúi sem á að baki lengstu setu í sveitarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í sveitarstjórn átt jafnlengi setu í sveitarstjórn fer aldurs­forseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.

9. gr.

Sveitarstjóri, sbr. þó 8. gr., boðar sveitarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi sveitarstjórn ekki gert það.

10. gr.

Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær sveitar­stjórnar­fundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.

Í upphafi kjörtímabils tekur sveitarstjórn ákvörðun um hvernig fundir hennar verði aug­lýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti, svo sem í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.

11. gr.

Sveitarstjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu oddvita sveitarstjórnar og varaoddvita, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, svo og ráðningar sveitarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.
  2. Fundargerðir ráða, nefnda og stjórna á vegum sveitarfélagsins, sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
  3. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri og/eða oddviti ákveður að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarmanna óskar að tekin verði á dagskrá.

Sveitarstjórnarmaður sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna sveitarstjóra það skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólar­hringum fyrir fund.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem sveitarstjóri telur nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti undirbúið sig fyrir fund. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta sveitarstjórnarfundar hafi hún ekki verið send út áður.

12. gr.

Sveitarstjóri skal hafa sent sveitarstjórnarmönnum fundarboð sveitarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir sveitarstjórnarfund.

13. gr.

Dagskrá sveitarstjórnarfundar skal vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á auglýsingatöflu sveitarfélagsins, heimasíða þess, skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem sveitarstjórn ákveður.

14. gr.

Sveitarstjóri sveitarfélagsins skal senda sveitarstjórnarmönnum fundarboð aukafundar í sveitarstjórn þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund.

15. gr.

Sá sveitarstjórnarmaður er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjör­innar sveitarstjórnar og stýrir honum uns oddviti hefur verið kjörinn.

Oddviti sveitarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef oddviti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni, skal hann víkja sæti og oddvitakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn oddviti sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri sveitarstjórnarmenn fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti sveitar­stjórnar sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn skal hlutkesti ráða kosningu.

Oddviti sveitarstjórnar stjórnar kjöri varaoddvita sveitarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varaoddvitar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og oddviti.

Tilkynna skal kjör oddvita og varaoddvita til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þegar að því loknu.

Sé enginn oddvita á fundi gegnir aldursforseti oddvitastörfum nema sveitarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef oddviti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa oddvita í hans stað til loka kjörtímabils oddvita.

16. gr.

Sveitarstjórn getur kosið tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi sveitarstjórnarmanna til eins árs í senn á sama fundi og oddvitakosning fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í sveitarstjórninni.

17. gr.

Sveitarstjórnarfund skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

Sveitarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar m.a. um aðgang fatlaðs fólks. Meðan ákvæðum 2. mgr. 17. gr. er ekki fullnægt, skal sveitarstjórn sjá til þess að fatlaðir fái nauðsynlega aðstoð vilji þeir hlýða á sveitarstjórnarfund.

Sveitarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem ef til umræðu eru viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur sveitarstjórn ákveðið að sveitarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í sveitarstjórn.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í sveitar­stjórn.

18. gr.

Sveitarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur sveitarstjórnarmanna er mættur á fundinn. Getur sveitarstjórn enga bindandi ályktun gert nema sveitar­stjórnar­fundur sé lögmætur.

19. gr.

Oddviti sveitarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók sveitar­stjórnarinnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.

Oddviti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar. Oddviti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á sveitar­stjórnarfundum og er sveitarstjórnarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal. Leyfi oddvita þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á sveitar­stjórnarfundum.

20. gr.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í sveitarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema oddviti eða sveitarstjórn ákveði annað.

Heimilt er að taka til meðferðar á sveitarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarmanna samþykkja slíkt afbrigði.

21. gr.

Sveitarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  2. Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  3. Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.

22. gr.

Sveitarstjórnarmanni er skylt að sækja alla sveitarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé sveitarstjórnarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til sveitarstjóra og boða varamann sinn á fund. Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Þar sem sveitarstjórn hefur verið kjörin bundinni hlutfallskosningu taka varamenn sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast.

Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn sveitarstjórnarmaður.

Sveitarstjórn getur heimilað að maður utan sveitarstjórnar kveðji sér hljóðs á sveitarstjórnarfundi.

23. gr.

Sveitarstjórnarmanni ber að víkja sæti við umræður og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Sveitarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum sveitarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Sveitarstjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir sveitarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar sveitarstjórn fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um sveitarstjóra né þegar sveitarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.

Sveitarstjórnarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli sveitarstjórnar á því. Sveitarstjórnarmanni er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Sveitarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver sveitarstjórnarmanna sé vanhæfur. Sveitar­stjórnar­maður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Sveitarstjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitar­stjórnar við meðferð þess og afgreiðslu.

24. gr.

Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðarétt á sveitarstjórnarfundum. Sveitarstjórnarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu sveitarstjórnarmenn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða sveitarstjóra, framsögumann í máli eða sveitar­stjórnar­mann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri.

Hafi tveir eða fleiri sveitarstjórnarmenn kvatt sér hljóðs samtímis ákveður oddviti í hvaða röð þeir skuli tala. Sveitarstjórnarmaður skal flytja mál sitt úr ræðustól nema oddviti leyfi annað.

25. gr.

Sveitarstjórnarmaður skal beina máli sínu til oddvita eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð nefndar, ráðs eða stjórnar skal sveitarstjórnarmaður taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.

Sveitarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitar­stjórnarmanni að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögu­maður (talsmaður flutningsmanna) má þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Ekki má sveitarstjórnarmaður lesa upp prentað mál við umræður í sveitarstjórn nema með leyfi oddvita.

26. gr.

Beri sveitarstjórnarmaður aðra menn brigslum skal oddviti víta hann. Oddviti getur lagt til við sveitarstjórn að sveitarstjórnarmaður sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist sveitarstjórnarmaður ekki úrskurði oddvita eða sveitarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

27. gr.

Telji oddviti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarmaður kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhags­áætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

28. gr.

Sveitarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar, ef oddviti óskar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

29. gr.

Mál er afgreitt í sveitarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá sveitarstjórn eða vísa því til annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða sveitarstjóra. Máli sem sveitarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Sveitarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

30. gr.

Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Oddviti biður sveitarstjórnarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur sveitarstjórnarmanna óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar sveitarstjórnarmaður, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarmaður óskar og sveitarstjórn samþykkir.

Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar ef sveitarstjórnarmaður fer fram á það.

31. gr.

Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Ef jafn mörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.

Kosningar sem fram fara í sveitarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihluta­kosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör.

32. gr.

Sveitarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan sveitarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók sveitarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál eru afgreidd. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð sveitarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál nema tilefni sé til annars.

Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema sveitarstjórn ákveði annað.

Fundargerðir sveitarstjórnar skulu að jafnaði skráðar í tölvu. Jafnframt skal bóka í gerðabók sveitarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal tölvufærðrar fundargerðar. Viðstaddir sveitarstjórnarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undir­rituð af fundarmönnum. Einnig skal oddviti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafs­stafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhald­andi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

Sveitarstjórnarmaður sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

Sveitarstjórn getur ákveðið að umræður á sveitarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal sveitarstjórn setja um það nánari reglur.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanns.

33. gr.

Sveitarstjórnarmanni er bæði rétt og skylt að sækja fundi sveitarstjórnar nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins. Hver sveitarstjórnarmaður er skyldur til að taka að sér þau störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar, svo sem oddvitastörf. Þó getur sá sem verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

34. gr.

Sveitarstjórnarmanni ber að gegna störfum sínum í sveitarstjórn af alúð og samvisku­semi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins, en í störfum sínum er sveitarstjórnar­maður einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

35. gr.

Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

Sveitarstjórnarmanni er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem sveitarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur oddviti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur sveitarstjórnarmanna tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá mál skv. 11. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar enda tilkynni hann það sveitarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

36. gr.

Sveitarstjórnarmaður á aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.

37. gr.

Sveitarstjórnarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í sveitarstjórn.

38. gr.

Sveitarstjórnarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst áfram eftir að sveitarstjórnarmaður lætur af þeim störfum.

39. gr.

Nú telur sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í sveitarstjórninni án óhæfilegs álags og getur sveitarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Missi fulltrúi í sveitarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er sveitarstjórnarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta og skal sveitarstjórnin þá veita honum lausn.

40. gr.

Sveitarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitar­stjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarmanns og fundar­staðar sveitarstjórnar getur sveitarstjórnin auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfi­lega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist sveitarstjórnarmaður á hendur ferð á vegum sveitarstjórnar samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar á hann rétt á greiðslu hæfi­legs ferða- og dvalarkostnaðar. Greiða skal í lífeyrissjóð af launum vegna setu í sveitar­stjórn og nefndum á vegum sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

41. gr.

Haga skal fundum sveitarstjórnar þannig að sveitarstjórnarmaður eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

42. gr.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna gilda einnig um vara­menn sem taka sæti í sveitarstjórninni.

IV. KAFLI

Nefndir, ráð og stjórnir.

43. gr.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfalls­kosningar ef einhver sveitarstjórnarmanna óskar þess. Starfsmenn fyrirtækja og stofn­ana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.

44. gr.

Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja fundi nefnda eða sveitarstjórnar ef þess er óskað.

45. gr.

Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða sveitarstjórn ákveði annað. Oddviti sveitarstjórnar eða sveitarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af sveitarstjórn. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.

46. gr.

Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi fulltrúa einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

47. gr.

Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn sveitarfélagsins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

48. gr.

Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

49. gr.

Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið sveitarstjórn til ákvörðunar.

50. gr.

Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnarinnar, sbr. 32. gr.

51. gr.

Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna sveitarfélagsins skulu að jafnaði teknar á dagskrá sveitarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar sveitarstjórnar eru þær lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktun ætíð lögð fyrir sveitarstjórn sem afgreiðir hana endanlega.

52. gr.

Sveitarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti:

A. Fulltrúar kjörnir til eins árs á fundi í júní ár hvert:

  1. Fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, skv. samþykktum þar að lútandi.
  2. Fulltrúi á aðalfund héraðsnefndar Múlasýslna, skv. samþykktum þar að lútandi.
  3. Í fulltrúaráð Skólaskrifstofu Austurlands, skv. samþykktum þar að lútandi.

B. Til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnar­kosningum:

  1. Kjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Kjörstjórn fer jafnframt með kosningar til sveitarstjórna skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
  2. Skoðunarmenn. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitar­stjórnarlaga nr. 45/1998.
  3. Skipulags-, byggingar- og umhverfismálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Nefndin starfar einnig skv. 11. gr. laga um náttúruvernd. Hún fer jafnframt með málefni vatnsveitu sam­kvæmt lögum nr. 81/1991.
  4. Félagsmálaráð. Ráðið er samstarfsvettvangur Djúpavogshrepps, Breiðdalshrepps, Fljótsdalshrepps, Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepps og Vopnafjarðarhrepps samkvæmt samþykktum þar um. Fimm aðalmenn eru kjörnir í ráðið og jafnmargir til vara. Þar af eiga Djúpavogshreppur, Breiðdalshreppur og Fljótsdalshreppur sameiginlega einn aðalmann og annan til vara. Félagsmálaráð fer með verkefni skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Ráðið fer jafnframt með störf þau sem barnaverndarnefnd eru falin skv. lögum nr. 80/2002 og öldrunar­mál, skv. 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999.
  5. Hafnarnefnd. Þrír aðalmenn og þrír til vara skv. 10. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Nefndin skal vera sveitarstjórn til ráðgjafar og veita umsögn um málefni Djúpavogshafnar og annast þau mál önnur, sem sveitar­stjórn felur henni.
  6. Húsnæðisnefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998. Nefndin annast auk þess þau mál önnur, sem sveitarstjórn felur henni.
  7. Skóla- og jafnréttisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Jafnframt fer skólanefnd með málefni tónlistarskólans skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985, málefni leikskóla skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og jafnréttismál skv. 12. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, og vinnur að þeim verkefnum öðrum, sem sveitarstjórn felur nefndinni til úrlausnar.
  8. Landbúnaðarnefnd. Þrír aðalmenn og þrír til vara. Landbúnaðarnefnd fer með málefni sveitanna, einkum hvað varðar landbúnaðarmál og samgöngumál í dreifbýli, er til ráðgjafar varðandi búfjáreftirlit í samræmi við lög nr. 103/2002 og reglugerð nr. 743/2002, fer með fjallskilamál samkvæmt lögum um afrétta­málefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986 og fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur nr. 472/1991, gerir tillögur um fyrirkomulag refa- og minkaveiða og annast þau mál önnur er sveitarstjórn felur henni.
  9. Stjórn Nönnusafns. Einn aðalmaður af 3 í stjórn Nönnusafns í Berufirði og annar til vara.
  10. Stjórn Ríkarðssafns. Einn aðalmaður af 3 í stjórn Ríkarðssafns á Djúpavogi og annar til vara.
  11. Sveitarstjórn setur starfsnefndum skv. tl. 3, 5, 6, 7, 8, 9 og 10 sérstök erindisbréf í upphafi kjörtímabils.

C. Aðrir fulltrúar kjörnir til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

  1. Fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sbr. lög þess.
  2. Heilbrigðisnefnd Austurlands. Sveitarstjórnir á Austurlandi kjósa sameiginlega 5 aðalmenn og jafnmarga til vara í nefndina skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og skv. stofnsamningi um byggðarsamlag um rekstur heilbrigðiseftirlits. Sveitarstjórn tilnefnir aðal- eða varafulltrúa, komi til þess að Djúpavogshreppur eigi kost á því.

Ennfremur kýs / tilnefnir sveitarstjórn, þótt ekki sé talið hér að framan í grein þessari, í stjórnir eða nefndir á öðrum þeim samstarfsvettvangi sveitarfélaga sem Djúpavogs­hreppur á aðild að skv. samþykktum, sem sveitarfélagið hefur undirgengist.

53. gr.

Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Sveitarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.

V. KAFLI

Um framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélagsins.

54. gr.

Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við hann þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af sveitarstjórn.

55. gr.

Sveitarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. Hann undirbýr fundi sveitarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum sveitarstjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum.

Sveitarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og málefna sveitar­félagsins að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki ákveðið annað.

Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til. Sveitarstjóra er heimilt með samþykki sveitarstjórnar að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru.

Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn ákveður hver gegna skuli störfum sveitarstjóra í forföllum hans.

56. gr.

Sveitarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, svo sem yfirmenn stofnana og deilda sveitarfélagsins, og veitir þeim lausn frá störfum.

57. gr.

Um ráðningu lausráðinna starfsmanna fer eftir reglum sem sveitarstjórn setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.

58. gr.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga.

VI. KAFLI

Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.

59. gr.

Fyrir lok janúarmánaðar ár hvert skal sveitarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun sveitarsjóðs, fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins fyrir yfirstandandi ár að undangengnum tveimur umræðum í sveitarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur sveitarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna sveitarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár, ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhags­áætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

Sveitarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitar­félagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.

60. gr.

Fjárhagsáætlun skv. 59. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sveitarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af sveitarstjórn.

Samþykki sveitarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni.

61. gr.

Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er sveitarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir sveitarstjórn við eina umræðu, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í sveitarstjórn með dagskrá við­komandi sveitarstjórnarfundar.

62. gr.

Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal sveitarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins. Skal hún unnin og afgreidd af sveitarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

63. gr.

Strax að lokinni afgreiðslu sveitarstjórnarinnar skal senda samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 59. gr. og þriggja ára áætlun skv. 62. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 61. gr.

64. gr.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir lok aprílmánaðar.

Sveitarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endur­skoðanda og skoðunarmanna.

Sveitarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní ár hvert. Sveitarstjórnarmenn og sveitarstjóri skulu árita ársreikninginn.

Eintak af ársreikningnum skal senda samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Hag­stofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunar­manna.

Samþykkt þessi, sem sveitarstjórn Djúpavogshrepps hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, með síðari breytingum, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Djúpavogshrepps nr. 786/2006, með síðari breytingum.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 18. ágúst 2010.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 3. september 2010