1. gr. Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða. Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Til að ná því markmiði skal ríkissjóður veita árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum. Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2008 nema 0,20% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal greitt í október og byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs. Fjármálaráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari. 2. gr. Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða. Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti: - Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
- Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildar lífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
- Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.
3. gr. Úthlutun fjárframlags árið 2008. Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða með lögum nr. 177/2006, um breytingu á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2008 eingöngu renna til lífeyrissjóða á samningssviði Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2007 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2007 samtals kr. 725.985.462.474 og er áætlað fjárframlag ársins 2008 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 1.451.970.925 og skiptist það milli lífeyrissjóða á samningssviði Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem hér segir: Lífeyrissjóðir | | Fjárhæð, kr. | | Hlutfall | Eftirlaunasjóður Sláturfélags Suðurlands | | 580.788 | | 0,040% | Festa, lífeyrissjóður | | 160.442.787 | | 11,050% | Gildi, lífeyrissjóður | | 597.921.627 | | 41,180% | Stapi, lífeyrissjóður | | 206.542.864 | | 14,225% | Lífeyrissjóður Rangæinga | | 8.058.439 | | 0,555% | Kjölur, lífeyrissjóður | | 4.210.716 | | 0,290% | Lífeyrissjóður verslunarmanna | | 250.755.379 | | 17,270% | Lífeyrissjóður Vestfirðinga | | 41.453.770 | | 2,855% | Lífeyrissjóður Vestmannaeyja | | 44.357.712 | | 3,055% | Sameinaði lífeyrissjóðurinn | | 82.980.138 | | 5,715% | Stafir, lífeyrissjóður | | 54.666.705 | | 3,765% |
Við greiðslu fjárframlags ársins 2009, í október 2009, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2008 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2007. 4. gr. Leiðrétting fjárframlags ársins 2007. Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2006 er kr. 665.922.575.754. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2006 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 988/2007, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2007 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2006 er kr. 27.175.288.906 til hækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2007 nam 0,15% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétt fjárframlag ársins 2007, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 988/2007, er því samtals kr. 40.762.933 og skiptist það milli lífeyrissjóða á samningssviði Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands sem hér segir: Lífeyrissjóðir | | Fjárhæð, kr. | | Hlutfall | Eftirlaunasjóður Sláturfélags Suðurlands | | 16.305 | | 0,040% | Festa, lífeyrissjóður | | 4.243.421 | | 10,410% | Gildi, lífeyrissjóður | | 15.742.645 | | 38,620% | Lífeyrissjóður Rangæinga | | 258.845 | | 0,635% | Lífeyrissjóður verslunarmanna | | 7.628.783 | | 18,715% | Lífeyrissjóður Vestfirðinga | | 1.249.384 | | 3,065% | Lífeyrissjóður Vestmannaeyja | | 1.247.346 | | 3,060% | Lífeyrissjóðurinn Skjöldur | | 2.038 | | 0,005% | Sameinaði lífeyrissjóðurinn | | 2.549.722 | | 6,255% | Stafir, lífeyrissjóður | | 1.504.152 | | 3,690% | Kjölur, lífeyrissjóður | | 116.174 | | 0,285% | Stapi, lífeyrissjóður | | 6.204.118 | | 15,220% |
5. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Fjármálaráðuneytinu, 29. október 2008. Árni M. Mathiesen. Baldur Guðlaugsson. |