Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
579/2012
|
1. gr. Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði 5. gr. a. svohljóðandi: 5. gr. a. Óveruleg, staðbundin og takmörkuð starfsemi. Afhending smásölufyrirtækis á matvælum úr dýraríkinu til annarra smásölufyrirtækja eða starfsstöðva telst óveruleg, staðbundin og takmörkuð í skilningi ii. liðar b-liðar, 5. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 853/2004 ef öll eftirfarandi atriði eru uppfyllt: Óveruleg afhending: Magn matvæla frá smásölufyrirtæki til annarra smásölufyrirtækja eða starfsstöðva er innan við 300 kg á viku að meðaltali á þriggja mánaða tímabili eða ef magn matvæla úr dýraríkinu frá smásölufyrirtæki til annarra smásölufyrirtækja eða starfsstöðva er innan við þriðjungur af heildarsölu fyrirtækisins á slíkum matvælum. Staðbundin afhending: Smásölufyrirtæki sem afhendir matvæli til smásölufyrirtækja og starfsstöðva hér á landi. Takmörkuð afhending: Afhending smásölufyrirtækis til annarra smásölufyrirtækja eða starfsstöðva sem dreifa eða markaðssetja matvæli beint til neytenda.
Smásölufyrirtæki sem hyggst nýta sér heimild skv. 1. mgr. skal, ef eftirlitsaðili fer fram á slíkt, leggja fram gögn sem sýna fram á að afhending þess sé óveruleg, staðbundin og takmörkuð í skilningi 1. mgr. Smásölufyrirtækið skal geyma gögn þessa efnis í að minnsta kosti tvö ár. 2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 3. júlí 2012. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Baldur P. Erlingsson.
|
B-deild - Útgáfud.:
6. júlí 2012
|