1. gr. Við 1. gr. bætast eftirfarandi málgreinar: Við mat á því hvort skip fullnægi skilyrðum til þess að fá leyfi til hrefnuveiða sbr. 2. ml. 1. gr. skal Fiskistofa ganga úr skugga um að eftirfarandi skilyrðum sé fullnægt: 1. Að minnsta kosti einn úr áhöfn hafi reynslu af hrefnuveiðum.
2. Skyttur sem annast veiðar og aflífun dýra skulu hafa sótt viðurkennt námskeið í meðferð skutulbyssa og sprengiskutla og í aflífunaraðferðum við hvalveiðar. Auk þessa skal skytta hafa fullnægjandi skotvopnaleyfi. Við veiðarnar skal nota búnað sem tryggir að hrefnur aflífist samstundis eða aflífun taki sem skemmstan tíma og valdi þeim sem minnstum þjáningum. Til að tryggja ofangreint skal Fiskistofa ganga úr skugga um að skip sem ætlað er til hrefnuveiða sé búið eftirfarandi veiðibúnaði: 1. Riffli a.m.k. 11,6 (.458 cal.) að stærð sem skal nota ef þörf er á seinna skoti. Riffillinn skal ásamt skotfærum, vera staðsettur í nánd við skutulbyssu. Aflífist hrefna ekki samstundis við skutulskot skal svo fljótt sem auðið er aflífa hana með riffilskoti í höfuðið. Einungis skal nota alklæddar kúlur með rúnuðum oddi (e. round nosed full metal jacket).
2. Vélknúinni vindu til að draga hrefnuna að skipinu og um borð í það. Vindan skal þola a.m.k. 5.000 kg álag og hafa a.m.k. 2.500 kg togkraft. Skotlínu skal tengja inn á vinduna og er óheimilt að sleppa línuenda lausum frá skipi eftir að hrefna hefur verið skutluð.
3. Línu sem þolir a.m.k. 5.000 kg álag.
4. Fjörðunarbúnaði sem þolir a.m.k. 5.000 kg álag og hefur fjöðrun upp á a.m.k. 1,5 m eða línu sem hefur a.m.k. 20% teygjanleika. Óheimilt er að nota skutul án skutulsprengju (kaldskutul). Einungis skal nota skutulsprengjur af gerðinni hvalgranat-99. Óheimilt er að hleypa af skoti án þess að skutulsprengja sé fest á skutulinn og lína fest í skutul í annan endann og í skipið í hinn endann. 2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 26 3. maí 1949, um hvalveiðar, til að öðlast þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 9. mars 2009. Steingrímur J. Sigfússon. Sigurgeir Þorgeirsson. |