Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1138/2010

Nr. 1138/2010 27. desember 2010
SAMÞYKKT
um stjórn Norðurþings og fundarsköp bæjarstjórnar.

I. KAFLI

Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

Bæjarstjórn Norðurþings er skipuð níu bæjarstjórnarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Bæjarstjórn fer með stjórn Norðurþings samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga eftir því sem við á. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.

5. gr.

Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að sveitarfélagið taki að sér verkefni sem varðar íbúa þess sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Meðal annarra verkefna bæjarstjórnar Norðurþings er:

  1. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. IV. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara árs­reikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoð­unar­fyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu, stofnunum þess og fyrirtækjum.
  2. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins og ráða bæjarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu, sbr. 58. og 60. gr. samþykktar þessarar.
  3. Að móta stefnu fyrir starfsemi bæjarstjórnar, málefnasviða, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins, setja starfseminni samþykktir og reglur, m.a. um ábyrgðarmörk kjörinna fulltrúa, nefnda og stjórnenda, gjaldskrár og þess háttar eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  4. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.

II. KAFLI

Um fundarsköp sveitarstjórnarinnar.

7. gr.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi einu sinni í mánuði að jafnaði þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í einn mánuð að sumarlagi.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta bæjarstjórnar. Skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarstjórnarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

8. gr.

Sá kjörni fulltrúi í bæjarstjórninni sem á að baki lengstu setu í bæjarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

Hafi tveir eða fleiri fulltrúar átt jafnlengi setu í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.

9. gr.

Bæjarstjóri, sbr. þó 14. gr., boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það.

10. gr.

Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.

Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar skal hún taka ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti, svo sem á heimasíðu sveitarfélagsins eða með auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.

11. gr.

Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

  1. Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu forseta og varaforseta, kosningar í bæjarráð, nefndir og stjórnir á vegum sveitarfélagsins, svo og ráðningar bæjarstjóra og yfirmanna málefnasviða hjá sveitarfélaginu sbr. 55., 57. og 59. gr. samþykktar þessarar.
  2. Mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar, sbr. 6. gr., og bæjarstjóri, forseti, bæjarstjórnarfulltrúar eða nefndir vilja taka á dagskrá. Óski bæjarstjórnarfulltrúi eftir að taka mál á dagskrá skal hann tilkynna bæjarstjóra það skriflega eða með rafrænum hætti með tillögu eða fyrirspurn fyrir kl. 12.00 föstudaginn fyrir bæjar­stjórnar­fund.
  3. Fundargerðir bæjarráðs og málefnanefnda til afgreiðslu, nema lög mæli á annan veg.
  4. Fundargerðir annarra nefnda og stjórna á vegum sveitarfélagsins til kynningar og sem fylgiskjöl með fundargerðum sem eru til afgreiðslu skv. 3. tl.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna sem bæjarstjóri telur nauðsynleg til að bæjarstjórnarfulltrúar geti undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta bæjarstjórnarfundar.

12. gr.

Bæjarstjóri skal hafa sent bæjarfulltrúum og varamönnum þeirra fundarboð bæjar­stjórn­ar­fundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund. Aukafundir skulu á sama hátt boðaðir með a.m.k. sólarhrings fyrirvara. Heimilt er að boða bæjarstjórnarfulltrúa til fundar með rafrænum hætti enda hafi þeir áður undirritað yfirlýsingu þess efnis.

13. gr.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins þegar hún hefur verið samin, með þeim hætti sem bæjarstjórn ákveður, sbr. 10. gr. samþykktar þessarar.

14. gr.

Sá bæjarfulltrúi er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjar­stjórnar og stýrir honum uns forseti hefur verið kjörinn.

Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórninni, skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjar­stjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarstjórnarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti sem fleiri atkvæði fær þó að hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu.

Forseti stjórnar kjöri fyrsta og annars varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra og við kjör forseta. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti.

Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til ráðuneytis sveitarstjórnarmála þegar að því loknu.

Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti störfum forseta nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils forseta.

15. gr.

Bæjarstjórnarfundi skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður að­gangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir.

Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og bygg­ingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.

Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjarstjórnin ákveðið að bæjarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn.

Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.

16. gr.

Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarstjórnarfulltrúa er mættur á fundinn og getur bæjarstjórnin enga bindandi ályktun gert nema bæjarstjórnarfundur sé lögmætur.

17. gr.

Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála, telur atkvæði og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnarinnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar.

Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarstjórnarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir, hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum svo og til hljóðvarps-, sjónvarps- eða netútsendinga þaðan.

18. gr.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað.

Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál sem ekki hefur verið á dagskrá ef 2/3 viðstaddra bæjarstjórnarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði.

19. gr.

Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

  1. Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  2. Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.
  3. Samþykktir og reglugerðir sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
  4. Áætlanir fyrir sveitarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
  5. Tilkynningu til eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga skv. 75. gr. sveitar­stjórnar­laga.

20. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé bæjarstjórnarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn í bæjarstjórn taka sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast.

Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjar­stjórnar­fundi.

21. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúa ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Bæjarstjórnarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Bæjarstjórnarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn sveitarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.

Bæjarstjórnarfulltrúa sem telur hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarstjórnarfulltrúa er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarstjórnarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarstjórnarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Bæjarstjórnarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

22. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. bæjarstjórnarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarstjórnarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarstjórnarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarstjórnarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarstjórnarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað.

23. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta og/eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð bæjarráðs, nefndar eða stjórnar skal bæjarstjórnarfulltrúi taka fram hvaða lið fundargerðarinnar hann óskar að ræða.

Bæjarstjórnarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjar­stjórnar­fulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athuga­semd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) má þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Leyfi forseta þarf til að lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn.

24. gr.

Beri bæjarstjórnarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarstjórnarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarstjórnarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur.

25. gr.

Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarstjórnarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Sérhver bæjarstjórnarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðu­laust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukku­stundir ef einhver bæjarstjórnarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhags­áætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

26. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

27. gr.

Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu bæjarráðs, nefndar eða bæjarstjóra. Máli sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls nema um sé að ræða mál sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

28. gr.

Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarstjórnarfulltrúa sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur bæjarstjórnarfulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarstjórnarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarstjórnarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarstjórnarfulltrúi, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarstjórnarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir.

Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar ef einhver bæjarstjórnarfulltrúi óskar þess.

29. gr.

Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæða­greiðslu.

Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlut­kesti.

Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d’Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör.

30. gr.

Bæjarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast færslu gerðabókar bæjarstjórnar og ritun fundargerða. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál og skal bæjarstjórn halda sérstaka gerðabók vegna umfjöllunar og afgreiðslu þeirra.

Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað.

Bæjarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnarinnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir bæjarstjórnarfulltrúar skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal forseti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

Bæjarstjórnarfulltrúi sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undir­ritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

Bæjarstjórn getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti til varðveislu. Verði það ákveðið skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur.

III. KAFLI

Um réttindi og skyldur bæjarstjórnarfulltrúa.

31. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefndir, bæjarráð eða stjórnir á vegum sveitarfélagsins. Sérhver bæjarstjórnarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar, svo sem forsetastörf. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

32. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúa ber að gegna störfum sínum í bæjarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins, en í störfum sínum er bæjarstjórnarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

33. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

Bæjarstjórnarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða, svo sem fjárhagsáætlun, ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarstjórnarmanna tekur þátt í atkvæða­greiðslunni.

Bæjarstjórnarfulltrúi á rétt á að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar skv. 11. gr. samþykktar þessarar.

34. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúar og varamenn þeirra hafa aðgang að bókum og skjölum sveitar­félagsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum þess á venju­legum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna. Bæjarstjórnarfulltrúar og vara­menn þeirra hafa einnig aðgang að öllum fundarboðum og fundargerðum sveitarfélags­ins, hvort sem um er að ræða nefndir, ráð eða stjórnir þess.

35. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í bæjarstjórn.

36. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúar og varamenn þeirra skulu gæta þagnarskyldu um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarstjórnarfulltrúar og varamenn þeirra láta af þeim störfum.

37. gr.

Nú telur bæjarstjórnarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórninni án óhæfi­legs álags og getur bæjarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Missi fulltrúi í bæjarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er bæjarstjórnarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

38. gr.

Bæjarstjórnarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í þágu sveitar­félagsins skv. reglum sem bæjarstjórn setur. Ef um langan veg er að fara milli heimilis bæjarstjórnarfulltrúa og fundarstaðar bæjarstjórnar getur bæjarstjórnin auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Bæjarstjórnarfulltrúi á rétt á greiðslu ferða- og dvalarkostnaðar vegna ferða á vegum sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

39. gr.

Haga skal fundum sveitarstjórnar þannig að bæjarstjórnarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega, sbr. 7. gr. samþykktar þessarar

40. gr.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarstjórnarfulltrúa gilda einnig um varamenn.

IV. KAFLI

Ráð, nefndir og stjórnir.

41. gr.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Þá kýs bæjarstjórn formenn og varaformenn bæjarráðs og nefnda skv. B lið 55. gr. samþykktar þessarar. Kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarstjórnarfulltrúi óskar þess.

Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá.

42. gr.

Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjar­stjórnarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð en bæði aðalmenn og varamenn þeirra eru kjörgengir varamenn í bæjarráð.

Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarstjórnarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið.

Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðsaðila sem fulltrúa á í bæjarstjórn, en ekki hefur fengið kjörinn bæjarráðsmann, að tilnefna fulltrúa og varafulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skulu þeir fulltrúar vera aðal- eða varamenn í bæjarstjórn.

Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðsaðila kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa. Skulu þeir fulltrúar einnig vera aðal- eða varamenn í bæjarstjórn.

43. gr.

Bæjarráð skal að jafnaði halda þrjá fundi í mánuði. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðsins eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess. Heimilt er að halda fund með síma- eða fjarfundabúnaði, en þess skal þá getið í fundargerð.

44. gr.

Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Heimilt er að boða til fundar með rafrænum hætti enda hafi viðkomandi fulltrúar áður undirritað yfirlýsingu þess efnis. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna það varamanni sínum og boða hann til fundarins.

45. gr.

Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðsins. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmanna óskar þess.

Starfsmaður bæjarráðs annast ritun fundargerðar. Staðfesting fundarmanna sem sitja fund í gegnum síma- eða fjarfundabúnað skal gerð strax að loknum fundi. Skal senda fundargerð í tölvupósti til viðkomandi sem endursendir hana með staðfestingu á samþykki sínu. Fjarstaddir staðfesta síðan fundargerðina með undirritun svo fljótt sem verða má. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda að öðru leyti sömu reglur og um ritun fundargerða bæjar­stjórnarinnar, sbr. 30. gr.

46. gr.

Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins og undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar Bæjarráð semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

Bæjarráð hefur umsjón með framkvæmd og fjárhagsramma verkefna sem tengjast stuðningi við atvinnulíf sveitarfélagsins, frumkvöðla og fyrirtæki. Þá fer bæjarráð með yfirumsjón kjaramála starfsmanna sveitarfélagsins og skipar fulltrúa í kjaranefndir.

Bæjarráði er heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana hans umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu. Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.

47. gr.

Bæjarráðsfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum. Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað. Heimilt er að boða aðra á fundi bæjarráðs til viðræðna um tiltekin mál.

48. gr.

Á fyrsta fundi nefndar, þar sem bæjarstjórn kýs ekki formann og varaformann skal kjósa formann og varaformann nefndar nema lög mæli fyrir á annan veg.

Forseti bæjarstjórnar boðar nefndir, sbr. 55. gr., saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af bæjarstjórn.

Yfirmaður viðkomandi málefnasviðs undirbýr fundi í samráði við formann nefndar. Hann sér um að fundir séu boðaðir með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. tveimur sólar­hringum fyrir fund. Heimilt er að boða til fundar með rafrænum hætti enda hafi viðkom­andi fulltrúar áður undirritað yfirlýsingu þess efnis. Geti nefndarmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna það varamanni sínum og boða hann til fundarins.

Málefnanefndir skulu að jafnaði halda fund mánaðarlega. Eigi skal þó halda fundi sjaldnar en ársfjórðungslega. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, yfirmaður viðkomandi málefnasviðs, formaður eða a.m.k. tveir nefndarmanna óska þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni. Heimilt er að halda fundi með síma- eða fjarfundabúnaði, enda verði þess getið í fundargerð.

49. gr.

Fulltrúa í ráði eða nefnd er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður forfallast um stundarsakir skal varamaður taka sæti hans. Þegar aðalmaður flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórnin ákveði að kjósa aðalmann að nýju.

Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

50. gr.

Nefndarfundir skulu haldnir fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina frá ummælum einstakra fundarmanna á fundum. Skylt er starfsmönnum sveitarfélagsins að sitja þá fundi ef þess er óskað. Enn fremur getur ráð eða nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.

51. gr.

Formaður stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í bæjarráði, nefndum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.

52. gr.

Um hlutverk og valdsvið bæjarráðs, nefnda og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn getur falið viðkomandi nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar.

53. gr.

Nefndir, bæjarráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Starfsmaður nefndar annast ritun fundargerðar. Staðfesting fundarmanna sem sitja fund í gegnum síma- eða fjarfundabúnað skal gerð strax að loknum fundi. Skal senda fundargerð í tölvupósti til viðkomandi sem endursendir hana með staðfestingu á samþykki sínu. Fjarstaddir staðfesta síðan fundargerðina með undirritun svo fljótt sem verða má. Um ritun fundargerða nefnda og ráða gilda að öðru leyti sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnarinnar, sbr. 30. gr.

54. gr.

Með vísan til 11. gr. skulu fundargerðir nefnda og bæjarráðs teknar á dagskrá bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar bæjarstjórnarinnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarstjórnarinnar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir bæjarráð áður en hún er tekin til afgreiðslu í bæjarstjórn.

55. gr.

Bæjarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti:

A. Fulltrúar kjörnir til eins árs á fundi í júní ár hvert:

  1. Forseti bæjarstjórnar.
  2. Fyrsti varaforseti bæjarstjórnar.
  3. Annar varaforseti bæjarstjórnar.
  4. Bæjarráð. Þrír bæjarstjórnarfulltrúar sem aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og 1. mgr. 42. gr. samþykktar þessarar.

B. Fulltrúar í nefndir kjörnir til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

  1. Félagsmála- og barnaverndarnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
  2. Fræðslu- og menningarnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
  3. Tómstunda- og æskulýðsnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
  4. Skipulags- og byggingarnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
  5. Framkvæmda- og hafnanefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara.

C. Fulltrúar í aðrar nefndir og stjórnir og embættismenn kjörnir til fjögurra ára á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:

  1. Yfirkjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Þá kýs sveitarstjórn í undirkjörstjórnir I, II, III, IV og V, þrjá aðalmenn í hverja og jafnmarga til vara. Yfirkjörstjórn skal kjörin á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar en heimilt er að kjósa undirkjörstjórnir síðar.
  2. Skoðunarmenn. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Skoðunarmenn skulu kjörnir á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar.
  3. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Aðal- og varamenn skv. 4. gr. laga sambandsins.
  4. Eyþing, samtök sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu. Fulltrúar á aðalfund Eyþings skv. IV. kafla samþykktar sambandsins frá 30. ágúst 1996, aðalmenn og varamenn.
  5. Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra. Einn aðalmaður og annar til vara tilnefndir af bæjarstjórn skv. 2. gr. samstarfssamnings um skipan heilbrigðisnefndar og rekstur heilbrigðiseftirlits frá 2002.
  6. Héraðsnefnd Þingeyinga. Aðalmenn og varamenn skv. 6. gr. samþykktar nefndar­innar.
  7. Stjórn Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. Þrír aðalmenn og þrír til vara. Nefndin annast málefni þeirra safna sem falla undir Safnahúsið á Húsavík að undanskildu bókasafni. Aðrir eignaraðilar kjósa fjóra fulltrúa.
  8. Dvalarheimili aldraðra sf. í Þingeyjarsýslu. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara til setu á aðalfundi skv. 6. gr. samþykktar dvalarheimilisins frá 5. maí 1998.
  9. Stjórn Menningarsjóðs þingeyskra kvenna. Einn fulltrúi skv. 6. gr. skipulagsskrár sjóðsins.
  10. Rekstrarstjórn Hafralækjarskóla. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 3. gr. sam­rekstrarsamnings frá 6. febrúar 2002.
  11. Skólanefnd Hafralækjarskóla. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 6. gr. sam­rekstrarsamnings frá 6. febrúar 2002.
  12. Félagsheimilisnefnd Heiðarbæjar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 2. gr. starfs­reglna félagsheimilisins.
  13. Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar. Einn aðalmaður og annar til vara skv. 4. gr. reglugerðar sjóðsins. Sjóðfélagar kjósa einn fulltrúa í stjórnina og þá situr bæjarstjóri í stjórninni og er hann jafnframt formaður.
  14. Starfsmenntunarsjóður STH. Einn aðalmaður og annar til vara samkvæmt grein 12.4.1 í kjarasamningi við Starfsmannafélag Húsavíkur (1997). Starfsmannafélagið kýs tvo fulltrúa.
  15. Starfskjaranefnd STH. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt sérákvæði 16.12 í kjarasamningi við Starfsmannafélag Húsavíkur (1997). Starfsmannafélagið kýs tvo fulltrúa í nefndina.
  16. Kjaranefnd stéttarfélagsins Framsýnar. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt grein 14.1.1 í kjarasamningi við Framsýn sem kýs tvo fulltrúa.
  17. Bæjarstjórn skal í samráði við landeigendur í viðkomandi fjallskiladeild skipa einn mann í hverja fjallskiladeild sveitarfélagsins samkvæmt fjallskilasamþykkt fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar. Deildirnar eru: Reykjahverfisdeild: Skógarétt. Húsavíkur­deild: Húsavíkurrétt. Kelduhverfingadeild: Tjarnarleitisrétt. Öxarfjarðar­deild: Tungurétt, Sandfellshagarétt og Landsrétt. Núpasveitardeild: Katastaða­rétt. Sléttu­deild: Leirhafnarrétt.
  18. Búfjáreftirlitsnefnd, Húsavík – Reykjahverfi. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara samkvæmt samkomulagi við Tjörneshrepp frá 20. desember 2002, en samkomulagið byggir á lögum um búfjárhald og fleira nr. 103/2002.
  19. Búfjáreftirlitsmaður, Húsavík – Reykjahverfi. Einn og annar til vara skv. 10. gr. laga um búfjárhald nr. 103/2002, sbr. einnig samkomulag við Tjörneshrepp frá 20. desember 2002.
  20. Búfjáreftirlit, Kelduhverfi – Öxarfjörður – Núpasveit – Slétta – Raufarhöfn. Samningur við Búgarð á Akureyri
  21. Húsnefnd Skúlagarðs/Willardssafnsnefnd. Þrír aðalmenn og þrír til vara samkvæmt samþykktum félagsheimilisins.

D. Fulltrúar í aðrar nefndir, ráð og stjórnir og embættismenn kjörnir til mis­munandi tíma samkvæmt ákvæðum í viðkomandi lögum, reglum eða sam­þykktum:

  1. Skólanefnd Framhaldsskólans á Húsavík. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara tilnefndir af bæjarstjórn en menntamálaráðherra skipar skólanefndina til fjögurra ára í senn sbr. 5. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og er hún skipuð fimm fulltrúum og jafnmörgum til vara.
  2. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til vara kjörinn ári eftir sveitarstjórnarkosningar, sbr. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, nr. 68/1994. Kjörtímabil er fjögur ár, sbr. 10. gr. laga nr. 68/1994.
  3. Dettifossnefnd. Einn aðalmaður og einn til vara skv. auglýsingu í Stjórnartíðindum B nr. 457/1996 um náttúruvætti í Jökulsárgljúfrum.

56. gr.

Bæjarstjórn staðfestir erindisbréf fyrir bæjarráð og nefndir skv. A- og B-lið 55. gr. þar sem m.a. er kveðið á um hlutverk og valdsvið viðkomandi nefndar og helstu verkefni. Þá staðfestir bæjarstjórn erindisbréf annarra nefnda skv. C-lið 56. gr. eftir því sem við á. Fundargerðir bæjarráðs og nefnda skv. A- og B-lið 56. gr. skulu afgreiddar af bæjarstjórn en aðrar fundargerðir skv. 56. gr. skulu lagðar fyrir bæjarstjórn til kynningar sbr. 11. gr. samþykktar þessarar.

Auk þeirra nefnda, stjórna og ráða sem upp eru talin í 55. gr. getur bæjarstjórn kosið aðrar nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils bæjarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Bæjarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. Um fundarsköp og fundarritun slíkra nefnda skal farið að ákvæðum þessa kafla, eftir því sem við á. Fundargerðir þeirra skulu lagðar fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu eða kynningar.

V. KAFLI

Um framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélagsins.

57. gr.

Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem meðal annars skal kveðið á um ráðningartíma hans, kaup og kjör. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarráði.

58. gr.

Bæjarstjóri undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnarinnar og bæjarráðsins og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarráðið og bæjarstjórnina. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum.

Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og málefna sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórnin hefur ekki ákveðið annað.

Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnarinnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarráðs að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru.

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs sveitarfélagsins. Í forföllum bæjarstjóra gegnir fjármálastjóri störfum hans.

59. gr.

Bæjarstjórn ræður yfirmenn málefnasviða sem heyra beint undir bæjarstjóra í skipuriti. Bæjarstjóri ræður forstöðumenn einstakra stofnana sveitarfélagsins og fyrirtækja þess að fengnum tillögum yfirmanns viðkomandi málefnasviðs.

60. gr.

Forstöðumenn stofnana ráða aðra fasta starfsmenn en þá sem greinir í 59. gr. að fengnu samþykki bæjarstjóra og yfirmann viðkomandi málefnasviðs enda séu stöðuheimildir fyrir hendi og ekki á annan veg mælt í reglugerð eða reglum sem bæjarstjórn hefur sett.

Fastar stöður skulu auglýstar til umsóknar á opinberum vettvangi nema bæjarráð heimili annað. Bæjarráð getur ákveðið hver almenn skilyrði skuli gilda um ráðningu í stöður hjá sveitarfélaginu og skulu þau kunngerð umsækjendum við auglýsingu á stöðu.

61. gr.

Forstöðumenn stofnana ráða lausráðna starfsmenn í samráði við yfirmann viðkomandi málefnasviðs. Um ráðningu fer eftir reglum sem bæjarstjórn setur. Um kaup og kjör fer eftir gildandi kjarasamningum og ákvæðum í ráðningarsamningi.

62. gr.

Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjara­samninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga og starfsmannastefnu.

Komi til ágreinings vegna ráðninga skv. 61. eða 62. gr. skal málið afgreitt af viðkomandi málefnanefnd.

VI. KAFLI

Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.

63. gr.

Fjárhagsár Norðurþings, stofnana þess og fyrirtækja er almanaksárið. Fyrir lok desember­mánaðar ár hvert skal bæjarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun næsta árs fyrir bæjar­sjóð, fyrirtæki og stofnanir sveitarfélagsins að undangengnum tveimur umræðum í bæjar­stjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til ráðuneytis sveitarstjórnarmála og tilgreina ástæður fyrir umsókninni.

Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjar­sjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhags­árinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs í byrjun fjárhagsársins.

Bæjarstjórnin skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess.

64. gr.

Fjárhagsáætlun skv. 63. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn sveitarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr sjóðum sveitarfélagsins og fyrirtækja þess nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórninni.

Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda, svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhags­áætluninni.

65. gr.

Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er sveitarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu á bæjar­stjórnar­fundi, enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í bæjarstjórn með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnarfundar.

66. gr.

Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal bæjarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál sveitarfélagsins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins. Skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar.

67. gr.

Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnarinnar skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála fjárhagsáætlun skv. 63. gr. og þriggja ára áætlun skv. 66. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 65. gr.

68. gr.

Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjar­stjórn fyrir lok aprílmánaðar.

Bæjarstjórnin skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endur­skoðanda og skoðunarmanna.

Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana sveitar­félagsins og fyrirtækja þess eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarstjórnarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn.

Eintak af ársreikningnum skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna.

VII. KAFLI

Breytingar og gildistaka.

69. gr.

Til að gera breytingar á samþykkt þessari þarf umræðu á tveimur fundum bæjarstjórnar, sbr. 21. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, samþykki meirihluta bæjarstjórnar og stað­festingu ráðuneytis sveitarstjórnarmála.

Samþykkt þessi, sem bæjarstjórn Norðurþings hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Norðurþings nr. 627/2006.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 27. desember 2010.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Stefanía Traustadóttir.

B deild - Útgáfud.: 12. janúar 2011