Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
514/2007
|
1. gr. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1851/2003 frá 17. október 2003 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71, að því er varðar jöfnun réttinda og einföldun málsmeðferðar, sem vísað er til í VI. viðauka (félagslegt öryggi) við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2005 frá 8. febrúar 2005, skal öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði hennar lúta að atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1851/2003 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu nr. 468/2007 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu nr. 463/2007 er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um réttindi samkvæmt lögum um almannatryggingar. 2. gr. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1851/2003 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2005, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 32, 23. júní 2005, bls. 12-14, er birt sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins nr. 463/2007. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 35. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Félagsmálaráðuneytinu, 7. júní 2007. Jóhanna Sigurðardóttir. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
|
B-deild - Útgáfud.:
12. júní 2007
|