Samkvæmt 59. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, hefur samgönguráðherra samþykkt þann 23. júlí 2009, skipulagsreglur fyrir Reykjavíkurflugvöll. Uppkast að reglunum var til kynningar frá 17. mars til og með 14. apríl 2009. Þrettán athugasemdir og ábendingar bárust og breytingar gerðar með hliðsjón af þeim. Greinargerð hefur verið send til þeirra sem gerðu athugasemdir. Reglurnar og umsögn um athugasemdirnar má nálgast á heimasíðu samgönguráðuneytisins, http://www.samgonguraduneyti.is, heimasíðu Flugmálastjórnar Íslands, http://www.caa.is, og heimasíðu Flugstoða ohf., http://www.flugstodir.is. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við ákvæði VII. kafla laga um loftferðir nr. 60/1998. Reglurnar öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 23. júlí 2009. Kristján L. Möller. Karl Alvarsson. |