Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 914/2006

Nr. 914/2006 27. október 2006
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu, með síðari breytingum.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir er orðast svo:

Styrkir sem veittir eru úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga vegna alvarlegra veik­inda.

Styrkir sem veittir eru úr minningarsjóðum sem starfa samkvæmt skipulags­skrá stað­festri af dómsmálaráðuneytinu samkvæmt lögum nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. gr. laga nr. 45/1987, um stað­greiðslu opin­berra gjalda, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2007.

Fjármálaráðuneytinu, 27. október 2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 8. nóvember 2006