1. gr. 44. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum bæjarstjórnarkosningum kjósa þrjá bæjarstjórnarmenn í bæjarráð og þrjá til vara til eins árs og á árs fresti eftir það að hverjum fundi þegar heilt ár hefur liðið frá bæjarstjórnarkosningum. Einungis aðalmenn í bæjarstjórn eru kjörgengir í bæjarráð sem aðalmenn. Varamenn er heimilt að kjósa úr hópi aðal- og varamanna í bæjarstjórn. Kosningar í bæjarráð skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarstjórnarmaður og kjörinn í bæjarráðið. Bæjarstjórn getur heimilað flokki eða framboðslista sem fulltrúa á í bæjarstjórn en ekki hefur fengið kjörinn bæjarráðsmann að tilnefna einn fulltrúa til setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt. Skylt er bæjarstjórn að gefa fulltrúa flokks/framboðslista kost á setu í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt þann tíma sem fundir bæjarstjórnar falla niður vegna sumarleyfa. 2. gr. 11. tölul. 57. gr. samþykktarinnar verður svohljóðandi: Stjórn Akranesstofu er skipuð 5 fulltrúum og fimm til vara, kosnum af bæjarstjórn. Hvalfjarðarsveit tilnefnir einn fulltrúa í stjórnina þegar fjallað er um málefni Byggðasafnsins í Görðum skv. skipulagsskrá um safnið. Bæjarstjórn kýs formann úr hópi nefndarmanna. Nefndin skiptir að öðru leyti með sér verkum. Kjörtímabil hennar er sama og bæjarstjórnar. Stjórn Akranesstofu fer með stjórn markaðs- og kynningarmála, menningarmála, ferðamála og safnamála Akraneskaupstaðar í umboði bæjarstjórnar skv. erindisbréfi þar um. Stjórnin gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnumörkun á þessum sviðum og vinnur að samhæfingu aðgerða. Stjórnin fer auk þess með eftirfarandi verkefni:
a) | Stjórn Byggðasafnsins að Görðum. | b) | Stjórn bókasafns, ljósmyndasafns og skjalasafns Akraness. | c) | Málefni Listasetursins Kirkjuhvols. | d) | Málefni Bíóhallarinnar. | e) | Málefni tjaldstæða og upplýsingamiðstöðvar Akraness. |
Stjórn Akranesstofu fylgist með því að stofnanir á hennar vegum vinni að settum markmiðum, veiti góða þjónusta og að starfsemi þeirra sé skilvirk og hagkvæm. Stjórnin stuðli að öflugu starfi í málaflokkum sínum og skal hafa um það samstarf við þá aðila sem starfa á þeim sviðum.3. gr. Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 18. júní 2008. F. h. r. Ragnhildur Hjaltadóttir. Stefanía Traustadóttir. |