1. gr. Við 92. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi: Diplómanám í áfallastjórnun er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu BA/BS-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. 2. gr. Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi. Háskóla Íslands, 7. mars 2012. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |