Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 480/2015

Nr. 480/2015 26. maí 2015

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 560/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 25. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2015/796 frá 21. maí um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Bandaríkin í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyfður er innflutningur til Sambandsins eða umflutningur um Sambandið á tilteknum alifuglavörum í tengslum við alvarlega fuglainflúensu í kjölfar frekari uppkoma í því landi.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar, sem talin er upp í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. maí 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 27. maí 2015