Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 655/2011

Nr. 655/2011 1. júlí 2011
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 637/2005, um verkunarstöðvar fyrir hreindýrakjöt.

1. gr.

Við 10. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Kjöt sem er heimtekið af veiðimanni til eigin nota og ráðstöfunar skal stimpla „heimtekin villibráð“.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. mgr. 5. gr. laga nr. 96/1997, um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum og 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. júlí 2011.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 4. júlí 2011